Fréttablaðið - 03.12.2016, Side 104

Fréttablaðið - 03.12.2016, Side 104
Ódýrt í bíó TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS SÝND KL. 2 SÝND KL. 1:50 SÝND KL. 2 SÝND Í 2D SÝND Í 2D SÝND Í 2D Miðasala og nánari upplýsingar ÍSL TAL MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM SAMBÍÓANNA KR. 1250 Á GRÆNT OG KR. 950 Á APPELSÍNUGULT Morgunsýningar í Sambíóunum Álfabakka um helgina. Jólasveinarnir mæta og taka á móti krökkunum milli kl. 10 og 11 HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 Absolutely Fabulous 18:00 Baskavígin 18:00 One More Time With Feeling 20:00 The Nutcracker - ballet 20:00 amiina: Fantómas - Juce contre Fantómas 21:00 Slack Bay 22:15 Innsæi 22:15 Miðasala og nánari upplýsingar SÝND KL. 5, 8 í 3D / KL. 2 Í 2D SÝND KL. 6, 8, 10 SÝND KL. 1.50, 4, 6.20 SÝND KL. 8.40, 10.45 SÝND KL. 2, 4 TILBOÐ KL 2 TILBOÐ KL: 2 Í 2D TILBOÐ KL 1:50 Hvað? Hvenær? Hvar? Laugardagur hvar@frettabladid.is 3. desember Tónleikar Hvað? Leppalúðar og létt jólatónlist Hvenær? 22.00 Hvar? Græni hatturinn, Hafnarstræti 96, 600 Akureyri. Leppalúðar og Létt jólatónlist er stórskemmtilegt jólaskemmti- kvöld þar sem þjóðþekktir grínistar og tónlistarmenn láta móðan mása í tali og tónum. Um er að ræða Rögnvald gáfaða, Val og Sumarliða úr Hvanndalsbræðrum sem hafa aldrei verði jólalegri og sjaldan skemmtilegri, ber svo að nefna Sólmund Hólm grínista, útvarpsstjörnu, eftirhermu og Snapchat-meistara og síðast en ekki síst hið víðförla kyntákn landsbyggðarinnar Gísla Einars- son. Bræðurnir frá Hvanndal munu flytja nokkur af sínum þekktari jólalögum í bland við annað efni og fjölmiðlafríkin Sólmundur og Gísli munu reyta af sér brandara eins og fiður af nýskotinni gæs og ólíklegt er að Rögnvaldur gáfaði geti þagað heila kvöldstund. Ekki er ósennilegt að hópurinn muni svo blandast saman í eitt stórt jóla- brandaraband þegar líður á kvöld- ið. Stórskemmtileg skemmtun fyrir alla á Græna hattinum. Hvað? Skúli mennski heiðrar Skúla Mennska í Gym & Tonic Hvenær? 21.00 Hvar? Kex hostel, Skúlagötu 28 Jóladagskrá Kex er hafin og pró- grammið er glæsilegt. Skúli mennski heiðrar Skúla Mennska í Gym & Tonic í þetta sinn. Segið skilið við vanlíðan og stress og njótið aðdraganda jóla með okkur í rólegheitunum á Kexi í desember. Eggjapúns, Irish coffee, jólamat- seðill Sæmundar í sparifötunum, jóladjass, möndlur, tónleikahald, barnaskemmtun, upplestur og tólgarkertaljós. Leiksýningar Hvað? Jólasýning – Ævintýrið um Augastein Hvenær? 14.00 Hvar? Menningarhús, Gerðubergi Leikhópurinn á Senunni sýnir farandútgáfu af dásamlega fallegu barna- og fjölskyldusýningunni Ævintýrið um Augastein í A-sal í Gerðubergi á aðventunni. Leik- ritið er jólaævintýri fyrir börn á aldrinum 2-12 ára og tekur um 40 mínútur í flutningi. Uppistand Hvað? Ha ha voða fyndið Hvenær? 20.30 Hvar? Tjarnarbíó Aðeins of fyndin grínkvöld sem slegið hafa í gegn undanfarið í borg óttans. Hér segja skemmtileg- ustu spéfuglar skersins skondnar skrýtlur í skammdeginu. Þar á meðal Hugleikur Dagsson, Saga Garðarsdóttir, Bylgja Babýlons, Andri Ívars, Snjólaug Lúðvíks, Jóhannes Ingi og fleiri góðir. Hvert kvöld er einstakt og allt getur gerst. Þú þarft ekki að mæta með góða skapið því það er nóg af því á staðnum. Sunnudagur 4. desember Uppákomur Hvað? Jóladagskrá Árbæjarsafns Hvænær? 13.00 Hvar? Árbæjarsafn, Kistuhyl 4, 110 Reykjavík Dagskráin er á öllu safnsvæðinu og geta ungir sem aldnir rölt á milli húsanna og fylgst með undir- búningi jólanna eins og hann var í gamla daga. Hrekkjóttir jóla- sveinar gægjast á glugga og kíkja í potta. Börn og fullorðnir dansa í kringum jólatréð og syngja vinsæl jólalög. Tónleikar Hvað? Mozart á miðnætti Hvenær? 00.30 Hvar? Langholtskirkja Óperukórinn í Reykjavík, ásamt einsöngvurum og sinfóníu- hljómsveit undir stjórn Garðars Cortes, flytur Requiem Mozarts á dánarstundu tónskáldsins „upp úr miðnætti aðfaranætur 5. des.“ Einsöngvarar eru: Þóra Einars- dóttir sópran, Sigríður Ósk Krist- jánsdóttir mezzó-sópran, Garðar Thór Cortes tenór og Kristinn Sig- mundsson bassi. Hvað? Páll Óskar og Monika – Jólatón- leikar Hvenær? 20.30 Hvar? Háteigskirkja, Háteigsvegi 27-29 Þeir sem hafa farið á tónleika með Palla og Moniku, vita að hlustand- inn kemur út betri maður á eftir. Á efnisskránni eru jólalög sem Palli og Monika hafa spilað mikið undanfarinn áratug, auk þekktustu popplaga Palla í sérstökum útsetn- ingum fyrir hörpu, strengjasveit og kór. Hvað? Ó, sól míns lífs Hvenær? 17.00 Hvar? Hallgrímskirkja Jólatónleikar Mótettukórs Hall- grímskirkju en sá kór hefur um árabil glatt Íslendinga á jólum og skipa jólatónleikar kórsins veg- legan sess í tónleikahaldi Reykja- víkur á aðventunni. Í ár verður norrænn blær á tónleikum kórsins og verða sérstakir heiðursgestir frá Svíþjóð en það eru Mattias Wager, höfuðorganisti við Stórkirkjuna í Stokkhólmi og einn virtasti organisti Svíþjóðar, og sópran- söngkonan Maria Keohane, ein af stjörnum sænska söngheimsins en hún sérhæfir sig í barokk- og þjóð- lagasöng. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Hvað? Söngvar um hljóða vetrarnótt Hvenær? 17.00 Hvar? Harpa Barokkbandið Brák mun halda sína sjöundu tónleika, Söngva um hljóða vetrarnótt. Bandið er skipað hópi ungs fólks sem hefur sérhæft sig að hluta til í upprunaspila- mennsku í námi erlendis og vill nýta þessa þekkingu sína til tón- leikahalds og verkefna á Íslandi. Með upprunaflutningi er átt við það þegar spilað er á hljóðfæri eins og þau voru á endurreisnar- og barokktímanum, t.d. eru strengir barokkfiðlunnar úr görnum en ekki stáli eins og tíðkast nú. Að þessu sinni hefur Brákin fengið til liðs við sig miðalda- og endur- reisnarsöngvarana Mathias Spo- erry og Jóhönnu Halldórsdóttur og verða ensk sönglög frá endur- reisnar og snemmbarokk tímanum í aðalhlutverki. Uppákomur Hvað? Jól í Norræna húsinu Hvenær? 09.00 Hvar? Norræna húsið, Sturlugötu 5 Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjöl- skylduna. Það verða umhverfis- væn jól í Norræna húsinu með námskeiðum og vinnustofum á sunnudögum og þriðjudögum í desember. Þar verður hægt að endurhanna, endurnýta og læra um sjálfbærar lausnir með hjálp þekktra hönnuða og listamanna. Föndursmiðjur verða fyrir börn allan mánuðinn og anddyri húss- ins verður breytt í huggulega jóla- stofu með ekta norrænu hygge. Við sýnum jólamyndir á stórum skjá, skipuleggjum piparkökusýningu og Pollapönk heldur jólaball fyrir alla fjölskylduna. Hægt að fylgjast með dagskránni á Facebook-síðu Norræna hússins. 3 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r60 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð 0 3 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :0 7 F B 1 2 0 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 8 B -5 A 4 C 1 B 8 B -5 9 1 0 1 B 8 B -5 7 D 4 1 B 8 B -5 6 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 2 0 s _ 2 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.