Víkurfréttir - 15.12.1983, Side 54
JÓLABLAÐ
VÍKUR-fréttir
annar. Alls konar kvillar.
sem ég gekk meö, eru
horfnir. Ég hefi ekki heim-
sótt lækni í jafnlangan tíma,
var þó tiður gestur þar áöur.
En þaö er rétt aö taka þaö
fram, aö auðvitað á ég mína
,,gráu" daga, rétt eins og
hver annar. Þaö þarf ekkert
alkóhólvandamál til þess.
Við erum bara einstakling-
ar öll saman og dagar okk-
ar eru misjafnir. En þaðertil
leiö að mínu mati: að reyna
að gera sér grein fyrir af
hverju maður er ,,grár" og
þá að reyna að finna lausn á
vandanum."
Getur þú sagt mér hver
viðbrögö mannsins þins
voru, þegar þú tjáðir hon-
um að þú værir gengin i
Al-Anon?
„Þegar ég leitaði eftir
hjálp gerði ég það með
leynd. Á þessum tíma var ég
líka orðin útsmogin í smá-
lygum og þar að auki var ég
lika hrædd. Maður var allt-
af hræddur við að segja það
sem maður vildi eða lang-
aði til að segja. Mér tókst
með góðra manna hjálp að
fá barnapiu og sagðist vera
að skreppa til vinkonu
minnar. Þetta eru mjög al-
geng viðbrögð hjá aðstand-
endum alkóhólista. Mér
tókst að Ijúga mig út úr
þessu i nokkurn tíma, en
málið fór að taka á sig aðra
mynd, þegar ég ákvað að
sækja fjölskyldunámskeið-
ið. Þá þýddi ekkert að Ijúga
lengur, enda hafði ég loks-
ins fengið kjark til þess að
segja sannleikann. Nám-
skeiðið stendur yfir í 4 vik-
ur eins og ég hef áður sagt,
þrjá daga í viku. Trúlega var
þessi ákvörðun min, þ.e. að
geta sagt rétt til, sú stærsta
sem ég hafði tekið í mörg ár.
Ég vissi, að eitthvað mundi
ske, en gat það orðið nokk-
uð verra en allt það sem
áður haföi dunið yfir? Þessa
setningu mættu margir
hugleiða. Maðurinn minn
vissi sitthvað um AA-sam-
tökin, enda hafði ég árum
saman látið dynja á honum,
að þangað ætti hann að
leita.
Ég skýrði út fyrir honum
eins rólega og ég gat, hvað
ég ætlaði að gera, og enn-
fremur að ég hefði þá þegar
leitað á náðir Al-Anon sam-
takanna. Viðbrögð hans
voru ákaflega skiljanleg,
eða það finnst mér í dag.
Hann sagði setningu, sem
mér er ákaflega minnis-
stæð, enda kom í Ijós að
flestir þeir sem á námskeið-
unum voru með mér, höfðu
fengið svipað svar, og það
var þetta: „Á nú að fara að
auglýsa mig sem einhvern
alkóhólista?"
Að mínu mati felst gífur-
leg vörn í þessari setningu,
þar sem alkóhólistinn er
sjálfur besta auglýsingin.
Dæmið er einfalt, allir eða
flestir vita að hann drekkur,
hegðunareinkenni draga
alla athyglina að honum og
ennþá heldur hann að allt
sé í lagi, að enginn sjái neitt
eða viti, hann telur sig vera
eins og allir hinir. Ég verð
að játa það, að fram á síð-
ustu stundu vissi ég ekki
hvort ég mundi hafa kjarktil
að standa við ákvörðun
mína. Maðurinn minn drakk
nú af enn meiri ákafa, það
var varla dagur þurr. Skapið
versnaði og svívirðingarnar
dundu yfir. En ég hélt mínu
striki. Er frá leið og hann sá
allt í einu að nú var ég i
fyrsta skipti á ævinni búin
að taka sjálfstæða ákvörð-
un. Næstu viðbrögð manns-
ins míns voru Jangt, þurrt
tímabil". Trúlega átti nú að
sanna fyrir mér að hann ætti
ekki við neitt vandamál að
stríða.
Mér skilst að þetta séu
mjög eðlileg viðbrögð hjá
alkóhólistanum. Eitthvaðer
að bresta og hann ætlar nú
að sanna, að hann sé ekki
alkóhólisti. Hann ætlar að
vera edrú nokkurn tima og
geta sýnt mér og sjálfum
sér, að það sé ég sem er vit-
laus, hann ætlar að láta mig
biða ósigur.
Ég lauk mínu námskeiði.
Ég styrktist með hverjum
deginum og nú gat ég loks-
ins skilið, að það varég sem
stjórnaði mínu lifi og hann
sínu. Stórl sannleikurlnn er
e.t.v. þessi, hvernig i ósköp-
unum ættum viðaö verafær
um að stjórna lifi annarra,
þegar við getum ekki stjórn-
að eigin lífi?"
Telur þú, að fordómar
gagnvart áfengisneyslu hafi
eitthvað breyst á undan-
förnum árum?
,,Já, alveg tvímælalaust,
en alls engan veginn nóg.
Fjölskylda mín, foreldrarog
systkini voru t.d. mjög fljót
að skipta um skoðun. Þau
höfðu alla tíð varað mig við
ofdrykkju mannsins míns,
reyndu með öllum brögð-
um að koma mér út úr þessu
„hræðilega" hjónabandi,
að þeirra mati. Þó líkaði
þeim mjög vel við manninn
minn, og þó að mér tækist
að leyna þau árum saman,
hve ástandið var slæmt,
vissu þau alltaf betur, hvað
væri mérfyrir bestu. (dag er
þeim fullkomlega Ijóst, að
þettaersjúkdómurog þaðá
bak við alkóhólistann,
manninn minn, eryndisleg-
ur maður, góður drengur.
Þeim er líka Ijóst, að enginn
vill vera svona, eða dettur
nokkrum manni i hug, að
maður vilji vera svona?
Hver vill ekki vera heilbrigð-
ur og lifa góðu lifi? Hver vill
ekki vera í sátt við sig og
sina? Ætli það hvarfli að
nokkrum manni eða konu,
að biðja um þennan sjúk-
dóm? Mér dettur stundum í
hug manneskja, sem er
búin að berjast við að losna
við 10-30 kíló. Hún vill losna
við þessa þyngd, hún er
þung á sér, klæðist illa, lok-
arsig inni, vill ekki hittafólk.
Hún á sér eina ósk - að
missa öll þessi kiló. Hvað
gerir hún? Hún borðar sæt-
ar kökur, drekkur gos-
drykki, borðar feitan mat. Á
sama tíma er henni full-
kunnugt um að á meðan
hún gerir þetta léttist hún
ekki. Hún reynir aftur og
aftur, en ekkert gengur, hún
gefst upp og heldur áfram
að vera hundóánægð með
sig. Af hverju gerir hún
þetta? Þarna vantar ekkert
nema hugarfarsbreytingu,
hún er sjúk og þarf áaðstoð
að halda."
Eftir að hafa setið með
þér þessa þrjá daga og
rabbað við þig, tek ég eftir
því að þú virðist ákaflega
yfirveguð og ánægð. Eg
hefi lika séð börnin þin,
sem ennfremur virðast vera
i jafnvægi. Hefur þú eða þið
virkilega fundið innri frið?
Getiö þið lifað í andlegu
jafnvægi við núverandi
ástæður?
Hlær. - „Ég hefi nú
kannski sett upp sparisvip-
inn fyrir þig þessa daga, og
þó. Það er rétt, ég hef
fundið innri frið. En það er
rétt að.undirstrika það, að
til þess að halda sér í jafn-
vægi verður maður stans-
laust að halda sig að lestri
um þessi mál, sækja fundi
reglulega, hugsa og hugsa.
Hvorki námskeiðið néfund-
irnir gera gagn nema maður
minni sig daglega á hinn
ýmsafróðleik, sem þarerað
finna. (dag þori ég að segja
meiningu mina. Ég reyndi
að fara hinn gullna meðal-
veg í pllum eðaflestum mál-
um, hvort sem þau eru lítil
eða stór. Umfram allt reyni
ég að hafa hemil á skapofsa
mínum. Skapofsi gerir ekk-
ert annað en að æsa mann
meira upp, og rugla mann
sjálfan. Börnin min hafa
fylgst með ..prógramminu"
frá því ég byrjaði í Al-Anon.
Þau hafasóttfundi með mér
og tileinkað sér Al-Anon
hugsunina Við ræðum
vandamalin sameiginlega,
þau bera fulla virðingu fyrir
föður sinum í dag. Eðlilega
verðum við stundum þreytt
eða leið, þegar drykkjan
hefur staðið mjög lengi, en
við sættum okkur við
ástandið eins og það er,
annað getum við ekki gert.
Við reynum ekki að
breyta neinu nema okkur
sjálfum. Það segir sig sjálft,
að heimilislífið er ekki alveg
eðlilegt, ef viðtökum mann-
inn minn inn i dæmið. Á því
stigi sem hann er, getur
hann ekki fallið inn í eðlilegt
og heilbrigt líferni, það
segir sig sjálft. Alkóhóiist-
inn fellur fyrr eða síðar í al-
gjöra einangrun. Hann vill
helst aldrei vera þátttakandi
í einu eða neinu, hann á
enga vini nema drykkjufé-
laga, fer ekki á mannamót
nema áfengi sé til staðar.
Þetta skiljum við öll og
látum það á engan hátt
koma í veg fyrir að við njót-
um eölilegra hluta. Við
reynum öll að vera samtaka
um að vera kurteis og alúð-
leg, en standa fast a okkar
málum og skoðunum. Við
reynum umfram allt að fella
ekki dóma."
Að lokum. Hvaða von er
til þess, að maðurinn þinn
sjái að sér og fari i meðferð?
..Þessi spurning er mjög
hættuleg. ( mörg ár bað ég
til Guðs, það var alltaf sama
bænin: „Góöi Guð. láttu
hann hætta að drekka . . . "
Hvernig er hægt að ætlast
til þess af Guði? Guð eða
æðri máttur á aö mínu mati
að vera til stuðnings, en
ekki til að leysa málin ein-
hliða fyrir okkur. Við
verðum að taka þátt i okkar
málum líka, og þá fyrst er
hægt að búast við stuðn-
ingi æðri máttar.
í dag hugsa ég aldrei um
þann möguleika, að hann
eigi eftir að fá hjálp. Ef ég
gerði það yrði ég einatt fyrir
vonbrigðum og missti tök á
lifi mínu aftur. Þess vegna
tel ég svo mikilsvert að lifa
barafyrirdaginn í dag. Dag-
urinn á morgun er ekki
kominn og hver veit, hvað
hann ber í skauti sér?"
Gleðileg jól
Farsœlt komandi ár
Þökkum viðskiplin á árinu.
Bókabúð Keflavíkur
Gleðileg jól
Farsœlí komandi ár
Útvegsmannafélag
Suðurnesja
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu.
Veitingahúsið VITINN
Sandgerði
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum viðskiplin á árinu.
Fiskverkun
Hilmars og Odds
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu.
Vörubílastöð
Kejlavíkur
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu.
SJÓVÁ
umboð, Keflavík
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum samstarfið á árinu.
Verkalýðs- og sjó-
mannafél. Gerðahrepps
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu.
Verslunin
Nonni & Bubbi
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu.
Bifreiðaverkstæðið
Berg hf
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum samstarfið á árinu.
S tarfsmannafélag
K efla víkurbæjar
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu.
Ljósboginn
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu.
HH Pípulagnir sf.
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu.
Aðalstöðin hf
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum viðskiplin á árinu.
TALCO
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu.
Pús tröraverkstæðið
Grófin 7