Víkurfréttir - 15.12.1983, Blaðsíða 38
JÓLABLAÐ
VÍKUR-fréttir
Hér freistar Jóhannes Jóhannesson gæfunnar . . .
---—« ^
Garðbúar
Suðurnesjamenn
Flugeldasala Kiwanisklúbbsins HOFS er í
barnaskólanum í Garöi alla daga milli jóla
og nýárs frá kl. 13-22, nema gamlársdag frá
kl. 10-16.
Öllum ágóöa er variötil kaupa ásjúkrarúm-
um á langlegudeild Garövangs, Garöi.
Kiwanisklúbburinn HOF
Vel
heppnuð
tombóla
í Myllu-
bakkaskóla
Laugardaginn 12. nóvem-
ber sl. var haldin tombóla i
Barnaskólanum i Keflavík
(nú Myllubakkaskóla) til
styrktar Þroskahjálp á Suð-
urnesjum.
Nemendur 5. bekkjar sáu
um allan undirbúning og
vinnu í sambandi við tom-
bóluna, sem tókst í alla
staði mjög vel. Söfnuðust
um 2400 hlutir (vinningar),
auk peningagjafa. Heildar-
ágóðinn varð 33.650 kr.
Þegar hann var afhentur,
var Ellert Eiriksson, for-
maður Þroskahjálpar, boð-
aður á diskótek niður í
Myllubakkaskóla. Við af-
hendinguna sagði hann svo
krökkunum frá starfsemi
Þroskahjálpar, m.a. í hvað
peningarnir yrðu notaðir.
Nemendur 5. bekkjar
Myllubakkaskóla vilja svo
aö lokum þakka öllum þeim
er veittu liö þessu stóra en
ánægjulega verkefni.
pket./gj.
Ellert þakkaði höfðinglega gjöf til Þroskahjálpar og skýrði
frá starfsemi fólagsins.
Og hér er allur hópurinn saman kominn að lokum, eftir
árangursrika tombólu.
*****
Brynjólfur hf.
óskar starfsfólki sínu og sjó-
mönnuni ú uiðskiptabótum
GLEDILBGRA JÓLA
og þukkur þeim uel unnin störf
ú liðnu úri.
Eldur í
Þórkötlu II.
Um hádegisbilið sl. laug-
ardag var slökkvilið Bruna-
varna Suðurnesja kvatt út
vegna elds í m.b. Þórkötlu
li. GK, þar sem hún var við
bryggju í Njarðvík. Var
eldur í einangrun í millivegg
og gekk greiðlega að
slökkva hann, en mikill
reykur hafði myndast.
Voru eldsupptök vegna
rafsuðu, en báturinn ereins
og kunnugt er í yfirbygg-
ingu o.fl. - epj.
Sendum öllum íbuum
Vatnsleysustrandar-
hrepps,
suo og öðrum
Suðurnesjamönnum
bestu jóls- og ngársóskir
Sueitarstjórn
Vatnsleysustrandarhrepps
Sólbaðsstofan SÓLIN
Nú er sól í Keflavík. Það
má taka undir þessi orð, því
fyrir skömmu opnaði ein
sólbaðsstofan enn í Kefla-
vík, Sólbaðsstofan SÓLIN,
að Tjarnargötu 41 (niðri).
Eigendur eru þær Sigrún
Helgadóttir og Anna María
Eyjólfsdóttir.
Á sólbaðsstofunni eru 2
lampar af Ma International
gerð og vöðvaþjálfunar-
tækið Slendertone. Baðað-
staða er mjög góð og eínnig
sérstök snyrtiaðstaða. Síð-
ast en ekki síst er vel útbúið
barnaherbergi og þar geta
börnin leikið sér á meðan
mamma eða pabbi eru að
sóla sig. - pket.
Sórstök snyrtiaðstaða er m.a. á boðstólum.
Gleðileg jól, farsælt komandi ár
Þökkum samstarfið á árinu sem er að liða.
VÍKUR-fréttir