Víkurfréttir - 13.12.1984, Side 5
VÍKUR-fréttir
JÓLABLAÐ
„Hér eru fallegustu
fjörur á landinu“
- segir Ásta Pálsdóttir, myndlistarmaður
Fyrir rúmu ári síöan kom ég i heimsókn til vinafólks
og tók þá eftir þvi að einn vegginn prýddi vatnslita-
mynd, sem ég hafði ekki séó fyrr. ,,Hvar fenguð þið
þetta?" spurði ég af eðlislægri forvitni. ,,Finnst þér
hún ekki fín? Hún er eftir Ástu Páls“, var svarað.
Vissulega þótti mér myndin fin og þessi heimsókn
rifjaðist upp fyrir mér þegar ég hafði komið mér fyrir i
þægilegum stól i vinnustofu Ástu, nú fyrir skömmu i
erindum Vikur-frétta. Ég spurði fyrst, hvenær hún
hefði fyrst farið að fást við myndlist:
,,Mig minnir að það hafi
verið 1968. Þá fór ég á nám-
skeið til Þorsteins Eggerts-
sonar. Hann var góður leið-
beinandi, a.m.k. fyrir byrj-
anda. Síðan hef ég verið að
mála meira og minna. Og
síðastliðin þrjú ár hefur
þetta verið atvinna mín".
Fórstu í frekara nám?
,,Þegar Baðstofan var
stofnuð fór ég þangað og
þar voru ýmsir góðir kenn-
arar. Það er óhætt að segja
að Eiríkur Smith sé aðal
myndlistarkennari minn.
Hann hefur verið svo lengi
með þessa kennslu hjá Bað-
stofunni og það eru aðeins
2 ár síðan ég hætti þar. Auk
þessa fór ég á námskeið í
módelteikningu í Handíða-
og myndlistarskólann og
svo fór ég til Einars Hákon-
arsonar áannaðnámskeið".
Þannig aö Baðstofan á
stóran þátt i þessu hjá þér
eins og svo mörgum öör-
um?
,,Já, það er óhætt að
segja það. Erlingur Jóns-
son vann þarna mikið braut-
ryðjandastarf og hélt þessu
alveg uppi um skeið. Síðan
fer hann og þá minnkarum-
fangið. Erlingur bað mig að
taka við þessu og ég var í
forsvari fyrir Baðstofuna í 9
ár".
Nú notar þú einvöröungu
vatnsliti. Hvers vegna?
,,Mér finnst efnið henta
mér betur heldur en t.d.
olían. Ég hef meiri tilfinn-
ingu fyrir þvi. Ef rétt er með
vatnsliti farið, þá eiga þeir
að vera gagnsæir og ef vel
tekst til verða myndirnar af-
skaplega tærar. En þetta er
afar erfitt efni því maður
tekur vatnslitinn ekki aftur
þegar hann er kominn á
blaðið. Það er ekki hægt að
mála yfir. Fyrir nokkrum ár-
um síðan sá maður ekkert
annað en olíumyndir, en
núna er miklu meira um
vatnsliti".
Áttu þér uppáhalds-
myndlistarmann?
,,Ég held mikið upp á
Andrew Wyeth, amerískan
málara. Ég held ég megi
segja að ég sé undir áhrif-
um frá honum. Svo er ég
einnig mjög hrifin af Þor-
björgu Höskuldsdóttur mál-
ara. Það er óhætt að kalla
mig realista eða raunsæis-
mann í listum".
Hvert sækir þú mynd-
efnið?
„Mér fellur best að mála
mótív af Suðurnesjum.
Hér eru fallegustu fjörur á
íslandi, það finnst mörgum
skaginn Ijótur, en ég er ekki
sammála. Hér er víða fal-
legt. Vissulega er hér sums
staðar eyðilegt að sjá, en
auðnin er oft heillandi,
sandur og auðn. Ég hef
ferðast talsvert og leitað
fyrirmynda og ég varð alveg
heilluð af Hornströndum,
Aðalvík, þar sem allt er í
eyði, húsin tóm og yfirgefin
en samt hvert með sina sál.
Það er kannski engin til-
viljun hvað ég mála oft
gömul hús eða eyðibýli.
Það er eitthvað heillandi við
slíka staði og einnig virðast
vatnslitir taka vel við svo-
leiðis. Náttúrulífsstemn-
ingar eins og þú hefur séð
eru mjög áberandi hjá mér.
Ég hef lítið fengist við
mannamyndir, nema ef til
vill í tengslum við einhverja
slíka stemningu".
Hvernig vinnur
myndum þínum?
,,Ég vinn ekki á staðnum.
Einfaldlega vegna þess að
veðráttan gefur ekki tilefni
til þess. Ég rissa stundum
upp skissur og nota síðan
,Ég var aiveg heilluð af Hornströndum"
Ijósmynd eða eitthvað sem
mér dettur í hug að hafa
með".
Kemur fólk og pantar
myndir?
„Það er nú dálitið erfitt
við það að eiga. Oft er þetta
átthagaást. Fólkið vill fá
mynd að heiman upp á
vegg, en því miðureru þetta
iðulega ekki góðar fyrir-
myndir og því ekki hægt aö
verða við svona ósk. En
maður skilur fólkið vel".
Hvernig er meö sýningar,
er eitthvað slíkt i deiglunni?
„Ég tók þátt í sýningum
Baðstofunnar þar til fyrir
tveimur árum síðan. En
fyrsta sýningin var haldin í
tilefni af 25 ára afmæli
Keflavíkurbæjar. Það var
samsýning málara af Suð-
urnesjum, sem haldin var
Fjölbrautaskólanum. Síð-
an var samsýning í Noregi,
einnig Suðurnesjamálarar.
Svo hélt ég einkasýningu á
æskustöðvunum, Sauðár-
króki, 1982. Það var fyrsta
einkasýningin og sú eina
hingað til. Ég stefni að því
að halda aðra einkasýningu
í Keflavík næsta vor. En
maður veit aldrei hvernig
málin þróast".
Hefur þér gengiö vel aö
lifa af þessu?
,,Það hefur gengið
vonum framar. Ég hef haft
myndir til sölu hjá Birni
Samúelssyni í Innrömmun
Suðurnesja, og það hefur
gengið vel. Björn er afskap-
lega indæll maður og hann
hefur verið mér mjög innan
handar í þessu öllu. Þettaer
mitt starf, en það er ekki
hægt að ganga að þessu
eins og hverju öðru færi-
bandi. Það líður oft langur
tími án þess að ég komi
nálægt pensli, en svo vinn
ég í skorpum og þá verður
allt annað að sitja á hakan-
um. Oft hefur tíminn fráára-
mótum og fram á vor nýst
mér vel. Sumrin hafa ekki
verið eins notadrjúg, a.m.k.
ekki síðan ég fór að stunda
golfið. Það er mér mikils
virði aðgeta unniðað hugð-
arefnum mínum", sagði
Ásta Pálsdóttir að lokum.
ehe.
Jil Sander - Jil Sander
Inga Kjartansdóttir snyrtifræð-
ingur, kynnir hinar frábæru
JIL SANDER - vörur
laugardag frá kl. 14-18.
Gjörið svo vel aö líta inn.
Snyrtistofan ANNETTA
Vikurbæjarhúsinu - Simi 3311