Víkurfréttir - 13.12.1984, Síða 22
JÓL.ABLAÐ
VÍKUR-fréttir
Bátarnir eru mjög svipaðir þessum, að öðru leyti en þvi að
þeir eru lengri, þá eru þeir ekki með utanborðsmótora
heldur 165 hestafla diselvélar og auk þess er bátur Grind-
vikinga með stýrishúsi.
sérútfærslu á sínum báti
þannig að hann er með stýr-
ishúsi. Einnig er sá munur,
að á annarri gerðinni er
stýrispúltið staðsett fyrir
aftan vél en fyrir framan á
hinni (Grindavík), en með
húsinu er komið skýli yfir
stjórnandann, en engan
annan af áhöfninni. I þessu
húsi eru einnig öll tæki.
I Grindavíkurbátnum
verður dýptarmælir, radar,
lóran, tvær miðunarstöðvar
og VHS talstöð, auk
sérstaks kallkerfis þ.e. tæki
til að kalla um lengri veg
skilaboð og eins til að nema
hljóð utan af sjó, er hér um
nýtt tæki sem þeir eru að
reyna í fyrsta sinn. Sand-
gerðisbáturinn er frábr-
ugðinn þessu, þannig að
hann er ekki með húsi
heldur aðeins stýrispúlti,
hann er ekki með radar og
ekki þetta nýjakallkerfi, auk
þess sem stýrisútbúnaður-
inn er staðsettur fyrir aftan
vél en fyrir framan hjá
hinum.
Bátur Sandgerðinga og
Garðmanna er byggður í
Danmörku og er áætlað að
hann kosti 1825 þúsund kr.,
en bátur Grindvíkinga er
byggður í Bretlandi og er
áætlað að hann kosti um 2
milljónir króna. Þá verða
vagnar undir báðum bátum
og er áætlað að þeir kosti
um 100 þúsund. Er enn
ófrágengið meö sjósetn-
ingaútbúnað í Grindavik, en
þeirra bátur á að koma í
maí, en í Sandgerði er unnið
að gerð sjósetningabrautar
og á þeim framkvæmdum
að verða lokið um áramótin
en bátur þeirra er væntan-
legur í febrúar n.k.
Að sjálfsögðu þurfa
sveitirnar að afla fjár til
þessara kaupa, og hafa
báðir aðilar hafið sínar
fjáraflanir og eru enn að,
enda er um miklar
upphæðir að ræða fyrir
aðila sem starfa eingöngu
sem sjálfboðaliðar. Grind-
víkingar hófu söfnun s.l. vor
með því að safna fiski þ.e.
einu tonni af hverjum báti
sem landaði í Grindavík,
verkuðu þeir aflann sjálfir í
salt og einnig fór hluti
aflans í frystingu. Þeir
peningar sem þeir fengu
fyrir þetta fóru í þetta
verkefni, er meiningin að
halcia bessu áfram oa er
vonast eftir góðum undir-
tektum í þeim efnum sem
hingað til.
Sandgerðingar og Garð-
menn eru með ýmsar
fjáraflanir í gangi og rennur
ágóði þeirra flestra í þetta
verkefni. Eru Sandgerðing-
ar t.d. með jólamarkað sem
björgunarsveitarkonur
halda. Þá verður flugelda-
sala nú um áramótin.
Garðmenn hafa verið með
bingó og eru nú með jóla-
sælgætissölu. Þá hafa
sveitirnar í Garði og
Sangerði lagt í þetta um 200
þúsund hvor sveit frá eldri
fjáröflunum. Þá leggur
Sandgerðishöfn í þetta 150
þúsund sem er m.a.
tilkomið vegna þess að
sveitin hefur séð um
lóðsbátinn og mun gera
áfram. Þá eru hugmyndir
um að leita til útgerðaraðila
um styrki og hafa undirtekt-
ir verið góðar og eru boðin
fram greiðslukjör á þeim
styrk. Einnig verður leitað
til fleiri aðila s.s. trygginga-
félaga og annarra aðila sem
tengjast þessu máli. Og
jafnvel verður leitað til
annarra fyrirtækja á Suður-
nesjum.
( upphafi þegar sú
hugmynd vaknaði að kaupa
báta þessa stóð til að þeir
yrðu staðgreiddir en síðan
hefur tekist að fá verulega
lækkun á framleiðslukostn-
aði auk þess sem hluti af
verðinu er lánaður til 3ja
ára.
Er vitað til þess að ýmsar
sveitir út um land fylgjast
með málum og hafa sumar
jafnvel þegar pantað slíka
báta. Þ.á.m. er Slysavarna-
félag (slands.en félagið
styrkir sveitirnar hér syðra
einnig í þessum kaupum.
Þar sem hér er á ferðinni
mjög áhugavert verkefni
fyrir alla sæfarendur, taka
aðilar vonandi vel á móti-
félögum sveitanna er þeir
leita á þeirra náðir.
epi.
kW/
Sandgerði, Garður og Grindavík:
Mjög fullkomnir og sér-
byggðir björgunarbátar
Fjáraflanir þegar hafnar
Að ósk Víkur-frétta hitt-
ust í síðustu viku forráða-
menn björgunarsveitanna
þriggja hér á Suðurnesjum
sem pantað hafa sérbyggða
björgunarbátra erlendis frá
og áður hefur verið skýrt
frá. Var blaðamaður við-
staddur fundinn, sem fram
fór í Sandgerði. Eru það
slysavarnadeildirnar Sigur-
von, Sangerði, Ægir, Garði,
og Þorbjörn,Grindavík,sem
að þessum kaupum standa.
Það eru fyrst töldu sveitirn-
ar sem standa saman að
kaupum þessum, en Grind-
víkingar einir að sínum bát.
Kom fram á fundinum að
báðir bátarnir eru 26 fet að
lengd, með hörðum skrokk,
en kringum þá er gúmmí-
slanga sem er 50 cm í þver-
mál til að verja þá skemmd-
um. Svipar bátslagið
nokkuð til þessara venju-
legu Zodiac-gúmmíbáta,
nema hvað þessir eru stærri
og fullkomnari. Er gúmmí-
slangan fest utan á bátinn
sem er úr trefjaplasti. Er
slangan eingöngu ætluð
sem stuðpúöi til að verja þá
skemmdum ef lagst er að
skipi úti á sjó eða öðru, og
til að gera bátinn stöðugri.
í bátunum eru 165 ha.
Volvo Penta dieselvélar og
Volvo dupropp drif. Eru það
drif sem eru ný á markaðn-
um og eiga að skila bátun-
um 30 mílna gangi við
góðar aðstæður. Síðan eru
báöir bátarnir með útbúnað
til að rétta þá við ef þeim
hvolfir. Verða áhafnarmeð-
limir að rétta bátinn við, en
hann gerir það ekki sjálf-
krafa.
En að öðru leyti er bátur
Grindvíkinga frábrugðinn
bát Garðmanna og Sand-
gerðinga, þannig að
bátarnir eru framleiddir
venjulega með stýrisþúlti,
Grindvíkingar hafa fengið
EIGUM EINNIG FYRIRLIGGJANDI
GOODfÝEAR E
ItniutiESTune
og sóluð NORÐDEKK - negld eða ónegld
fólksbíladekk.
Smurstöð og hjólbarðaþjónusta
Björns og Þórðar
Vatnsnesvegi 16 - Keflavik - Sími 2386
JEPPADEKK
DESERT DUELER í 10x15 “ og 12x15 “
og Whitespoke felgur.