Víkurfréttir - 13.12.1984, Síða 38
JÓLABLAÐ
VÍKUR-fréttir
það að svo lengi sem útsjór
er annars fær bátum, getur
hann alltaf komist út úr
Sandgerðishöfn. Ennfrem-
ur er eins og menn vita gert
ráð fyrir að byrjað verði í
næsta mánuði á hinum
breiða vegi frá Sandgerði
og alla leið fram á Stafnes-
vita, svo hægt sé að flytja
bátinn meðfram ströndinni
eftir þörfum hindrunarlaust
í vagninum, síðar ætti þessi
vegur aö komast alla leið
fram á Reykjanes og jafn-
vel til Grindavikur með tím-
anum.
Þessi bátur er meistara-
verk, það þarf langan tíma
til þess að læra að þekkja
innréttingu hans alla, það
þarf líka mikla æfingu til að
læra til fulls að nota bátinn í
vondu veðri. Englendingar
hafa notað róðrarbáta til
björgunar í yfir hundrað ár
og bjargað þúsundum
mannslífa, þeir hafa allan
þennan langa tíma verið að
endurbæta þá og þessi bát-
ur þarna er árangur af starfi
þeirra. Lengra hafa þeirenn
ekki kornist.
Fullkomnari róðrarbát til
björgunar en þennan hafa
þeir ekki enn getað búið til,
enda er ekki að furða þótt
langan tíma þurfi til þess að
finna upp smíði og innrétt-
ingu á bát eins og þessum.
Báturinn er svo vandaður
að smíði, efni og öllum frá-
gangi, að lengra verðurakki
komist. Hann tæmir sig
samstundis þótt hann fylli,
hann réttir sig undir eins
þótt honum hvolfi. Hann
týnir ekki úrsér neinu af far-
viðnum, ekki svo mikið sem
einum tolla eðaeinni ár þótt
honum hvolfi og ef rétt er
með allt farið og öll hand-
tök rétt, þá á enginn af
áhöfn bátsins að losna við
hann þótt honum hvolfi.
Þetta er meistaralegur út-
búnaður.
Það hefði verið gaman að
hafa svona bát við hendina
Utvegsbanki
íslands
Keflavík
sendir uiðskiptouinum sínum
á Suðurnesjum
bestu óskir um gleðileg jól,
gott og farscelt komandi ár,
með þökkfgrir uiðskiptin á árinu.
Verslunarbanki
íslands hf.
Útibú - Keflavík
óskar uiðskiptauinum sínum og
öðrum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
og farsœls komandi árs,
og þakkar uiðskiptin á rinu
sem er að líða.
suðurá Stafnesi þegar Jóns
Forseta-slysið varð þar, þvi
mennirnir sem voru þar við
og horfðu upp á það sorg-
lega slys, fullyrða að á
svona bát hefði mátt takast
að bjarga öllum mönnun-
um. Þvílíkur þjóðargróði
hefði það ekki verið að
bjarga þarna 15 mannslíf-
um á besta skeiði í saman-
burði við að missa þá alla.
Ræða Þorsteins er tals-
vert lengri. Að lokum segir
hann:
Allt þetta afhendist hér
með jaessu byggðarlagi,
Sandgerði, til varðveislu,
viðhalds og notkunar í þarf-
ir alþjóðar. Þeir sem taka
við stöðinni eru umboðs-
maður Slysavarnafélagsins
í Sandgerði, Björn Hall-
grímsson, og formaður
Sigurvonar, Eiríkur Jóns-
son oddviti.
Að lokinni ræðu Þor-
steins hélt hátíðin áfram eft-
ir boðaðri dagskrá. Strax var
hafist handa um að ráða
skipshöfn á Þorstein og var
æft af miklu kappi og fóru
fram 5 æfingar til áramóta.
Skipshöfn Þorsteins var
þannig skipuð 1929-1930:
Formaður Sveinbjörn Ein-
arsson, varaform. Guð-
mann Grímsson Sandvik.
Hásetar: Guðjón Eyleifs-
son Stafnesi, Gunnlaugur
Einarsson Hólkoti, Arn-
laugur Einarsson sst.,
Ragnar Björnsson Sand-
gerði, Eyjólfur Þorgilsson
Þórshamri, Sigurður Guð-
mundsson Norðurkoti, Ein-
ar Gestsson Laufási, Stein-
grímur Jónsson Tjörn, Árni
Þórðarson Lindarbæ,
Magnús Magnússon Veg-
húsum, Sigurþór Ólafsson
Stighúsum, Gisli Guð-
mundsson Norðurkoti,
Óskar Júlíusson Bursthús-
um, Jón Jóhannsson Hjarð-
arholti, Sigurbjörn Metúsa-
lemsson Stafnesi, Magnús
Sigurðsson Geirlandi, Páll
Pálsson Hólshúsi, Arn-
oddur Einarsson Hólkoti,
Guðmundur Jóhannsson
Fagurhlíð, Sveinn Guð-
mundsson Sæbóli, Magnús
Einarsson Hólkoti, Þor-
steinn Jóhannsson Fagur-
hlíð, Herbert Ólafsson
Klöpp, Guðlaugur Egilsson
Baldurshaga, Ármann Guð-
jónsson Endagerði, Björn
Eggertsson Stöðulkoti, Sig-
urður Sigurðsson Háholti
og Stefán Jóhannsson
Kirkjubóli, alls 29 menn.
Um þetta leyti er lagður
vegur að Stafnesi fyrir frum-
kvæði Slysavarnafélagsins,
sem leggur peninga í vega-
gerðina árið 1930, krónur
15.765,48, sem er um fjórði
partur af tekjum félagsins
það ár. Árið 1931 kr. 5.000
og 1932 kr. 2.500. Árið 1930
eru eignir SVFÍ í Sandgerði
þessar:
Björgunarbáturinn Þorsteinn .... kr. 12.452,02
Bátaskýlið m/vélum og áhöldum . kr. 13.580,31
Fluglínutæki með björgunarstól .. kr. 880,10
Tvö sett flotföt ................ kr. 576,24
Ýmis áhöld samkvæmt lista ....... kr. 900,15
Samtals kr. 28.390,82
Á Stafnesi hafði verið komið upp fluglínustöö og var
verðmæti henna kr. 2.881,20. Alls eru eignir Slysavarnafé-
lagsins 1930 kr. 62.842,11, þar af í Miðneshreppi 26.772,07,
eða rúm 42%. Fyrsti rekstrarreikningur björgunarsveitar-
innar í Sandgerði er frá árinu 1930 og er þannig:
1. Kostnaður við æfingar ....... kr. 1.031,50
2. Sjóvátr. af björgunarbátnum .. kr. 112,50
3. Brunatr. björgunarstöðvarinnar kr. 312,00
4. Slysatrygging skipshafnar .... kr. 338,81
Samtals kr. 1.689,81
Björgunarsveitin Skyggnir
fær slöngubát
Björgunarsveitin Skyggn-
ir í Vogum hefur nýlegatek-
ið í notkun slöngubát sem
sveitin hefur keypt. Kaup-
verð bátsins er kr. 114.000.
Meðfylgjandi mynd var
tekin þegar björgunarsveit-
armenn voru að koma úr
reynslusiglingu á bátnum.
eg-