Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.11.2015, Side 29
15.11. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
M
argir kannast við þau
hjón, Sigga og Berg-
lindi, en þau hafa gef-
ið út bækurnar
Heilsuréttir fjölskyldunnar og
Nýir heilsuréttir fjölskyldunnar
sem slegið hafa í gegn. Þau reka
veitingastaðinn Gott í Vest-
mannaeyjum en þar er lögð
áhersla á hollan mat. Þau eru ný-
komin heim úr ferð til Ítalíu þar
sem þau lentu í mörgum mat-
arævintýrum.
Sannleikurinn um ólífuolíu
„Við erum mjög mikið matarfólk
og að fara til Ítalíu hefur alltaf
verið draumurinn okkar og svo er
gott að fá innblástur fyrir okkar
matargerð, fyrir GOTT,“ segir
Siggi. Ferðin hófst í Toscana-
héraði þar sem þau fóru á ólíf-
ubúgarð sem er einn sinnar teg-
undar í heiminum. Þar eru rækt-
aðar ólífur og olífuolía unnin á
þann máta þar sem gæði olíunnar
fá að halda sér, ólífurnar eru
pressaðar frekar snemma sem
gerir gæðin meiri en það verður
til minna magn.
„Eigandinn og dóttir hans tóku
okkur í einkafræðslu og smökkun
sem var hreint út sagt mögnuð.
Ég fékk gæsahúð við smökk-
unina. Einhverjum gæti fundist
það einkennilegt en fyrir mat-
reiðslumann eins og mig er þetta
bara svo geggjað. Ólífuolía er svo
ekki það sama og ólífuolía,“ segir
Siggi. „Maður lærði auðvitað
rosalega margt á þessu og það er
bara eins og með svo margt að
það er ekki að marka allt sem
maður heyrir varðandi mat-
vælaiðnaðinn. Liturinn á olíunni
t.d. segir ekki endilega til um
hversu fersk hún er, sumir halda
að græn olía sé ferskari en gul
en það er ekki rétt. Kaldpressuð
olía er nánast ekki til í dag en
við höfum mikið heyrt af því að
kaldpressuð olía sé það eina
rétta. Maður þarf að fara á þessa
alvöru staði til þess að komast að
sannleikanum,“ segir Berglind.
Þjálfaðir hundar
finna trufflur
Eftir að hjónin höfðu verið leidd í
allan sannleikann um ólífuolíu lá
leiðin á truffluslóðir. Trufflur eru
með dýrustu hráefnum heims.
Þau heimsóttu mann að nafni
Marco sem er með fyrirtæki sem
vinnur ýmsar vörur úr hágæða
trufflum.
„Við fórum með honum ásamt
„truffle hunter“ eða leitarmanni
sem er með sérþjálfaðan hund
með sér til að leita að trufflum.
Þar lærðum við að það er goð-
sögn að bara svín séu notuð í
þessa leit. Það var gert fyrir tug-
um ára en í dag er aðeins notast
við sérstaka hunda sem eru þjálf-
aðir í þessa leit. Þessir hundar
eru þjálfaðir frá því þeir eru
hvolpar, þeim eru gefnir litlir
trufflubitar til þess að þjálfa þá
frá því þeir eru mjög litlir. Þeir
þefa trufflusveppina uppi og
grafa þá upp og þá tekur veiði-
maðurinn við þeim. Trufflurnar
geta verið litlar en eru afar verð-
mætar svo það þarf að passa vel
upp á það sem finnst,“ útskýra
hjónin. Þau voru svo heppin að
finna nokkrar litlar hvítar trufflur
en oft finnur fólk ekkert þrátt
fyrir að leita í heilan dag. „Við
fengum þær með okkur upp á
hótel þar sem við fengum yf-
irkokkinn til að búa til tagliatelle-
pasta með trufflunum yfir. Það
var ógleymanleg máltíð,“ segja
þau.
Benda blindandi
á matseðilinn
Þau enduðu ferðina í Flórens þar
sem þau nutu þess að ganga á
milli veitingastaða og lítilla búða
með allskonar matarkræsingum.
„Þarna eru gamlir veitinga-
staðir sem hafa verið reknir af
sömu fjölskyldu í áratugi. Þarna
snýst þetta um upplifun, fara t.d.
á veitingastað þar sem er bara
töluð ítalska og benda blindandi á
seðilinn og vona það besta. Fá
ravíóli gert á staðnum, tiramisu
eins og þú hefur aldrei smakkað
það áður og aðra klassíska rétti
sem eru einfaldir í eðli sínu og
gerðir úr frábæru hráefni,“ segja
þau alsæl.
Siggi og Berglind með truffluleitarmanni og truffluhundi. Þau fundu nokkrar hvítar trufflur sem borðaðar voru um
kvöldið. „Það var ógleymanleg máltíð,“ segja þau.
„Fékk gæsahúð við smökkunina“
HJÓNIN Í GOTT Í VESTMANNAEYJUM, ÞAU SIGURÐUR
GÍSLASON OG BERGLIND SIGMARSDÓTTIR, SKELLTU SÉR Í
DRAUMAFERÐINA TIL TOSCANA Á ÍTALÍU. ÞAR VAR FARIÐ
Á ÓLÍFUOLÍUSLÓÐIR OG LEITAÐ AÐ TRUFFLUM. EINNIG
ÞRÆDDU ÞAU VEITINGASTAÐI OG SMÖKKUÐU ÍTALSKAN
MAT EINS OG HANN GERIST BESTUR.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Í Flórens voru sælkerabúðir á hverju götuhorni. Hjónin skelltu sér í ólífuolíusmökkun og urðu margs vísari.
Ólífuolíubúgarðurinn var í fallegu umhverfi.
Tagliatelle með hvítu trufflunum sem þau tíndu.
* Það er goðsögnað bara svínséu notuð í þessa
leit. Í dag er aðeins
notast við sérstaka
hunda.