Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.11.2015, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.11.2015, Blaðsíða 35
15.11. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35 S máhesturinn á í mikilli innri baráttu þessa dagana. Hann veltir því fyrir sér hvort það sé bæði hægt að vera að tryll- ast yfir pallíettum (sem hann verður að eignast) og á sama tíma velta fyrir sér hvernig hann geti verið örlítið míni- malískari í öllum glundroð- anum. Pallíettur og kampavín passa nefnilega ekki inn í 4.000 króna regluna sem smá- hesturinn reynir að lifa eftir. Mögulega er þessi innri barátta bara mannleg en hún getur valdið togstreitu og þegar togstreitan kemur þarf að skoða hana ofan í kjöl- inn. Rýna hana til gagns… eða eitthvað. Í síðustu viku var smáhesturinn mjög upptekinn af því að vera nægjusamur og var meira að segja byrjaður að pakka inn jólagjöfum sem hann keypti í sumar. Hann eldaði mat úr afgöngum og fór eins lítið út í búð og hann gat. Hann var bara alsæll í núinu og hlustaði á rás 1. Svo kom helgi. Þá þurfti hann nauðsynlega að fara í sænska móðurskipið IKEA að kaupa blöndunartæki og bað- vask og um leið og hann steig fæti inn í verslunina yfirtók jólavíman hans innra sjálf. Hann varð stjórn- laus og áður en hann vissi af var hann farinn að gúffa í sig smákökum eins og enginn væri morgundagurinn. Allar pælingar um mínimalískan lífsstíl fuku út í veður og vind og hann steingleymdi því líka alveg að hann væri nú eiginlega í sykurbindindi. Þegar hann kom að kassanum var hann ekki bara með baðvask og blöndunartæki heldur nýjar glærar krúsir (fyrir möndlur og hampfræ og CHIA-FRÆ) og rauð kerti. Það er náttúrlega ekki hægt að taka á móti desember nema tendra smá jólaljós á heimilinu – kommon. Það að heimsækja móðurskipið, sem smáhesturinn elskar, gerði það að verkum að hann þurfti aðeins að kíkja meira í búðir – FATABÚÐIR. Áður en hann vissi af var hann kominn í pallíettutopp sem hann hrein- lega varð að eignast og svo þurfti hann líka að eignast eitthvað fleira sem ekki verður talið upp hér. Vondu fréttirnar eru að þetta er alls ekki að gerast í fyrsta skipti. Á þessum árstíma missir smáhesturinn alltaf stjórnina og langar í pallí- ettur. Í raun þyrfti að binda hann kirfilega niður á þessum árstíma ef vel ætti að vera. Þetta hefur nefnilega gerst á hverju einasta ári síðasta áratuginn eða svo. Þess vegna á hann eitt og annað í fataskápnum sem einungis er notað í skammdeginu. Stundum þurfa fötin bara að búa yfir þeim eiginleikum að geta keyrt upp stemninguna. Hinar vondu fréttirnar eru að hann er nú ekki sá eini sem fékk þessa pallíettuhugmynd. Ættmóðir Kardashian- og Jenner-klansins hélt upp á 60 ára afmælið sitt á svipuðum tíma og smáhesturinn var í IKEA. Og þar var sko ekki verið að spara peninga og pallíettur heldur var allt klanið klætt í stíl. Great Gatsby-þema var í afmælinu og var afmælis- barnið sjálft í hvítum síðkjól með perlufestar og loðskinn en dæturnar tóku kampavínspallíetturnar alla leið. Það fylgdi reyndar ekki sögunni hvort það hafi verið gaman í þessu 260 milljóna teiti en við gefum okkur það. Hver er óhamingjusamur í pallíettum? martamaria@mbl.is Kris Jenner fagnaði því innilega að ná þeim áfanga að verða sextug. Kris Jenner og afkvæmi hennar. Hver er óham- ingjusamur í pallíettum? Þessi kjóll er frá Moschino. ...með nútíma svalalokunum og sólstofum Skútuvogur 10b, 104 Reykjavík, sími 517 1417, glerogbrautir.is Opið alla virka daga frá 9-17 og á föstudögum frá 9-16 • Svalalokanir • Glerveggir • Gler • Felliveggir • Garðskálar • Handrið Við færumþér logn & blíðu Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is SKVASS Frábær íþrótt fyrir alla Hringdu og bókaðu tíma 577 5555 Fjölbreytt hreyfing,mikil brennsla Persónuleg þjónusta – vinalegt umhverfi Nánar á veggsport.is Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.