Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.11.2015, Page 51
Fyrstu þrjár skáldsögur rússneska rithöfundarins Lev
Tolstoj voru þríleikurinn Bernska, Æska og Mann-
dómsár. Þær hafa komið út á vegum Uglu í þýðingu
Áslaugar Agnarsdóttur, en eru nú gefnar út saman í
einu bindi með ítarlegum inngangi Áslaugar um lífs-
hlaup Tolstojs og verk hans.
Í innganginum kemur fram að fyrsta skáldsaga Tol-
stojs hafi einmitt verið Bernska, sem kom út undir
dulnefni 1852, en síðan fylgdu Æska og Mann-
dómsár. Tolstoj ætlaði sér að hafa bindin fjögur, en
það fjórða kom aldrei út. Seinni bindin tvö eru eins-
konar framhald af Æsku, en bækurnar rekja uppvaxt-
arár Níkolajs Petrovítsj Írtenjev sem er tíu ára þegar
bókaröðin hefst og við það að hefja háskólanám þeg-
ar henni lýkur. Tolstoj samdi dög að fjórðu bókinni
sem hann nýtti síðar í skáldsöguna Kósakkarnir, en
þar er söguhetjan önnur og hún kom út nokkru síðar.
Tolstoj var ekki nema 23 ára gamall þegar Bernska
kom út, en bókin vakti mikla athygli í Rússlandi fyrir
augljósa hæfileika höfundar. Meðal þeirra sem dáðust
að verkinu var Dostojevskí og bækurnar þrjár eru
taldar hafa haft áhrif á Maxím Gorkí sem sjá megi
stað í æviminningaþríleik hans og jafnvel á fyrstu
skáldsögu James Joyce, A Portrait of the Artist as a
Young Man, sem kom út 1919.
Sögurnar eru byggðar að mörgu leyti á atburð-
um í lífi Tolstojs þó þær séu skrifaðar sem skáld-
sögur.
Ýmsar persónur í bókunum eru greinilega
byggðar á fólki sem Tolstoj umgekkst og þekkti,
til að mynda bregður foreldrum hans fyrir í bók-
unum og eins systkinum, en Tolstoj lagði á það
mikla áherslu að verkið væri skáldskapur.
Í inngangi Áslaugar kemur fram að þessar
bækur þrjár hafi um margt lagt grunninn að
þeim rithöfundi sem Tolstoj varð og í þeim sé hann
að fjalla um málefni sem voru honum nærri alla tíð: „Í
sögunni er að finna einlæga samúð Tolstojs með þeim
sem lægra voru settir, hugleiðingar um uppeldi barna,
fjölskyldulíf, trúmál, líf og dauða, gott og illt, eigingini
og sjálfselsku. Allt eru þetta efni sem Tolstoj átti eftir
að fjalla nánar um í seinni bókum.“
BERNSKA, ÆSKA OG MANNDÓMSÁR
Grunnurinn að ævistarfi
Lev Tolstoj var lagður í
þríleiknum um æsku hans.
15.11. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
Kamilla Vindmylla og ungling-
arnir í iðunni heitir fjórða bók-
in í bókaröð Hilmars Arnar
Óskarssonar um Kamillu sem
hefur viðurnefnið Vindmylla og
kölluð Milla Mylla, og vini henn-
ar Jakobi, Kötlu, Anton og Felix.
Í bókinni segir frá því er Kar-
ítas, stóra systir Millu Myllu, fer
að haga sér líkt og hún eigi helst
heima í japanskri hryllingsmynd,
en við sögu koma líka fjögur
hundruð fimmtíu og níu sporð-
drekar, strákur í sæhestanær-
buxum, vitundarvarpa, Lind hinn-
ar sindrandi kyrrðar og
geimflaug.
Erla María Árnadóttir teikn-
aði myndir í bókina. Bókabeitan
gefur út.
Af Kamillu
Vindmyllu
Rökkurhæðir eru úthverfi
borgarinnar Sunnuvíkur og á
Hæðinni standa Rústirnar, yf-
irgefin fjölbýlishúsalengja. Þar
gerist sitthvað dularfullt og
óttalegt eins og rakið hefur
verið í bókaflokknum sem heit-
ir eftir úthverfinu, en nýjasta
bókin í röðinni, Atburðurinn,
kom út í vikunni. Í bókinni, sem
er sjöunda og síðasta bókin um
Rökkurhæðir, segir frá Mar-
gréti sem lendir í Hæðabyggð,
blokkinni sem gengur undir
nafninu Rústirnar, eftir átök við
hættulega veru og smám saman
kemst hún að því hvers vegna
fullorðna fólkið talar alltaf í
hálfum hljóðum um það sem
gerðist í Rústunum.
Höfundar bókarinnar eru
þær Birgitta Elín Hassell og
Marta Hlín Magnadóttir. Útgef-
andi er Bókabeitan.
Sjöunda og síð-
asta bókin um
Rökkurhæðir
Birgitta Elín Hassell og Marta
Hlín Magnadóttir.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Mikið úrval
íslenskra
barnabóka
BÆKUR FYRIR BÖRN
EINS OG SJÁ MÁ Á FRÉTTUNUM HÉR ALLT UM
KRING STREYMA ÍSLENSKAR BARNABÆKUR Á
MARKAÐ SEM ALDREI FYRR; ÞETTA VERÐUR EF-
LAUST MEÐ BESTU BARNABÓKAÁRUM. ÞAÐ MÁ
LÍKA SJÁ Í BÓKATÍÐINDUM, EN ÞAR ER AÐ FINNA
Á SJÖUNDA TUG ÍSLENSKRA BARNABÓKA OG
ERU ÞÝDDAR BÆKUR ÞÁ EKKI TALDAR MEÐ.
Randalín og Mundi og afturgöng-
urnar heitir barnabók eftir Þórdísi
Gísladóttur sem segir frá ævintýrum
Randalínar og Munda, en í bókinni búa
þau sig undir jólin, grafast fyrir um það
hvort veitingahús í Reykjavík sé að selja
kattakjöt, komast á snoðir um dul-
arfulla veru sem læðist úti að næturlagi
og leika í uppvakningakvikmynd. Þór-
arinn M. Baldursson myndskreytir bók-
ina.
Randalín og Mundi og
afturgöngurnar
Ævintýragarðurinn heitir
ný barnabók eftir Jónu
Guðbjörgu Torfadóttur. Í
bókinni segir frá stöll-
unum Sollu og Dóru sem
ákveða að fara einar í
skólann sinn fyrsta skóla-
dag. Þær rata þó ekki í
skólann þegar á reyndir
og villast í sannkallaðan
ævintýragarð þar sem
finna má furðuverur –
eða hvað?
Myndskreytingar í bók-
inni eru eftir Bjarna Þór
Bjarnason. Sæmundur
gefur út.
Solla og Dóra í Ævintýragarðinum
BÓKSALA 04.-10.NÓV.
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Þýska húsiðArnaldur Indriðason
2 EndurkomanÓlafur Jóhann Ólafsson
3 Þín eigin goðsagaÆvar Þór Benediktsson
4 Víga-Anders og vinir hansJonas Jonasson
5 Vín-Umhverfis jörðina á 110 flöskumSteingrímur Sigurgeirsson
6 Vikkala SólKristín Margrét Kristmannsdóttir
7 Litlar byltingarKristín Helga Gunnarsdóttir
8 MunaðarleysinginnSigmundur Ernir Rúnarsson
9 HundadagarEinar Már Guðmundsson
10 Matreiðslubókin mín og MikkaWalt Disney
Barnabækur
1 Þín eigin goðsagaÆvar Þór Benediktsson
2 Vikkala SólKristín Margrét Kristmannsdóttir
3 Ég elska mávaÞorgrímur Þráinsson
4 Mamma klikk!Gunnar Helgason
5 HótelráðgátanMartin Widmark
6 Grimmi tannlæknirinnDavidWalliams
7 Stelpur-10 skref að sterkari sjálfsmyndKristínTómasdóttir
8 Stúfur og snjókarlinnBrian Pilkington
9 Randalín, Mundi og afturgöngurnarÞórdís Gísladóttir
10 Rökkurhæðir 7: AtburðurinnBirgitta Elín Hassel/ Marta Hlín
Magnadóttir