Morgunblaðið - 27.11.2015, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2015
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Þetta mun engum árangri skila og
hefur engin áhrif á umferðarþung-
ann, þetta mun bara minnka afköst
Miklubrautar og auka mengun,“ seg-
ir Ólafur Kr.
Guðmundsson,
varaformaður
FÍB og tækni-
stjóri EuroRAP á
Íslandi, en til
stendur að lækka
hámarkshraða á
Miklubraut í
Hlíðunum, frá
Kringlumýrar-
braut að Bú-
staðavegi/
Snorrabraut, úr 60 km/klst. í 50 km/
klst. Tillaga þess efnis var lögð fyrir
umhverfis- og skipulagsráð í vikunni
og var samþykkt að vísa málinu til
meðferðar starfshóps um umferðar-
hraða í Reykjavík vestan Kringlu-
mýrarbrautar.
Með tillögunni fylgir bréf sam-
göngudeildar umhverfis- og skipu-
lagssviðs, undirritað af samgöngu-
stjóra borgarinnar. Þar er lækkun
hámarkshraðans lögð til, með fyrir-
vara um samþykki Lögreglustjórans
á höfuðborgarsvæðinu. Í bréfinu
segir: „Fram hefur komið að umferð-
arafköst götunnar breytast ekki og
umhverfislegur ávinningur er um-
talsverður bæði hvað varðar svif-
ryksmyndun og hávaða.“
Ólafur segir hávaðann eitthvað
geta minnkað en mengunin muni
klárlega aukast. Það sé margsannað
að bílar í dag eyði minnstu í efsta gír
á lágum snúningi, á 70-80 km hraða
hjá flestum tegundum.
Læknar ekki meinið
„Allt þar fyrir ofan og neðan eykur
mengun. Staðreyndin er sú að um-
ferðarhraðinn á þessum kafla er oft-
ast langt fyrir neðan 50 km/klst.
vegna tafa af umferðarljósunum og
mikillar umferðar. Í þau örfáu skipti
sem hægt er að aka á meiri hraða en
50 er umferðin í lagi og engin vanda-
mál. Af hverju þá ekki að leyfa áfram
hámarkshraða upp á 60? Þetta er tvö-
föld gata,“ segir Ólafur og bendir
jafnframt á að lítið sé um slys á þess-
um kafla.
„Þetta mun ekki lækna það sem
menn halda að þeir geti læknað, að
minnka mengun. Í tillögunni er talað
um minni svifryksmengun með
breytingunni. Þetta hefur ekkert að
gera með svifryk, rykið kemur bara
til vegna þess að göturnar eru ekki
þrifnar. Það hefur engin áhrif á svif-
rykið að lækka hraðann niður í 50,“
segir Ólafur. Hann bætir því að í til-
lögunni sé ekki einu orði vikið að auk-
inni mengun af koltvísýringi, CO2. Sá
útblástur muni án nokkurs vafa
aukast með breytingunni.
Ekki borið undir Vegagerðina
Miklabrautin á þessum kafla telst
til þjóðvegar í þéttbýli og er því á um-
ráðasvæði Vegagerðarinnar. Ólafur
segir Reykjavíkurborg ekki hafa vald
til að skipta sér af umferðarhraða
þarna en ekkert hafi verið leitað til
Vegagerðarinnar af þessu tilefni. Það
staðfesti Svanur G. Bjarnason, svæð-
isstjóri suðursvæðis hjá Vegagerð-
inni, í samtali við Morgunblaðið í gær.
Ekki hafi enn verið leitað eftir um-
sögn Vegagerðarinnar eða samráði.
„Það leysast engin vandamál með
þessu, eina lausnin er að setja Mikla-
brautina í stokk. Sú lausn hefur alltaf
legið fyrir og var í skipulagi borgar-
innar til margra ára, þar til núverandi
meirihluti tók það út. Þessi vegarkafli
er sprunginn og verður enn meira
sprunginn með nýjum Landspítala og
byggð í Vatnsmýri,“ segir Ólafur,
sem telur afar brýnt að sveitarfélögin
á höfuðborgarsvæðinu setji upp um-
ferðarmódel. „Aðrar borgir gera
þetta, við stöndum allt í einu frammi
fyrir því að við erum komin með stór-
borg en við kunnum ekki að reka
hana umferðarlega séð.“
Minni afköst og aukin mengun
Borgin hyggst lækka hámarkshraða á Miklubraut í Hlíðunum Varaformaður FÍB segir þetta eng-
an vanda leysa Telur stokk einu lausnina Ekkert hefur verið óskað eftir umsögn Vegagerðarinnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Miklabraut Reykjavíkurborg hefur gert tillögu um lækkun hámarkshraða á Miklubraut, um Hlíðarnar.
Ólafur Kr.
Guðmundsson
Miklabraut um Hlíðar
Grunnkort: ja.is
Sn
or
ra
br
au
t
Kr
in
gl
um
ýr
ar
br
au
t
Hámarkshraði
60 km/klst í dag
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Loftleiðir, dótturfélag Icelandair
Group, hefur að undanförnu sinnt
leiguflugi frá Punta Arenas í Síle til
Union Glacier, sem er norðarlega á
Suðurskautslandinu, fyrir ferða-
skrifstofuna Polar Services. Þarna
á milli er þriggja tíma flug og á
Suðurskautslandinu er lent á ís og
mun þetta vera í fyrsta sinnt sem
slíkt er gert á Boeing 757-þotu.
Stoppað í klukkustund
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem
íslensk flugvél lendir á Suður-
skautslandinu og eru Loftleiðir þar
með í hópi fárra örfárra fyrirtækja
á heimsvísu sem geta státað af við-
skiptum í öllum sjö álfum veraldar-
innar samtímis.
„Aðstæður á fastalandsísnum,
sem er hundruð metra á þykkt, eru
allar hinar bestu. Menn könnuðu
þær í þaula áður en farið var á stað.
Ágúst Håkansson flugstjóri og
fleiri fóru suður eftir og könnuðu
aðstæður og höfðu einnig æft lend-
ingar á þessum stað í flughermi.
Svo hefur þetta reynst lítið mál,
menn segja að brautin sé jafnvel
minna hál en á Keflavíkurflugvelli.
Þarna er stoppað í um klukkustund
og svo flogið til baka,“ segir Er-
lendur Svavarsson, framkvæmda-
stjóri sölu- og markaðssviðs Loft-
leiða, í samtali við Morgunblaðið.
Verkefni Loftleiða eru fyrst og
síðast leiguflug fyrir erlenda aðila
og á hverjum tíma er félagið með 7-
10 vélar í útgerð.
Reynslan spyrst út
„Nú er sumar á Suðurskautsland-
inu og ferðir þangað í fullum gangi.
Í hverri suðurskautsferð eru um 60
farþegar, en við ráðgerðum að í
þessu úthaldi, sem lýkur á næstu
dögum, verði þær alls fimm. Ég
vonast svo til að við verðum aftur
fengin í fleiri pólflug á næsta ári.
Reynsla flug- og tæknimanna okkar
við erfiðar aðstæður spyrst vel út,“
segir Erlendur og bætir við að um-
svifin hjá Loftleiðum séu mikil og
vaxandi. Á þessu hausti hafi félagið
sinnt leiguflugsverkefnum víða,
ekki síst flugi í svonefndum VIP-
heimsferðum.
Ljósmynd/Adventure Network International
Pólflug Loftleiðamenn fara alls fimm ferðir á Suðurskautslandið á Eldborg, sem er ein þotan í útgerð félagsins.
Lent á ís við bestu skilyrði
Frá Síle til suðurskautsins Brautin er betri en Kefla-
víkurflugvöllur Loftleiðir með verkefni í öllum álfum
OPNUNARTÍMI í dag 27. nóvember til klukkan 22.00 | www.betrabak.is
BLACK
FRIDAY
25% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM VÖR
UM*
BARA Í DAG –
OPIÐ TIL KLUK
KAN 22.00
* Gildir ekki ofan á ön
nur tilboð.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingar-
innar, Bjartrar framtíðar, Vinstri
grænna og Pírata hafa lagt fram
bókun í borgarráði um að sumar-
lokanir Laugavegar verði festar í
sessi. „Samkvæmt nýlegri þjón-
ustukönnun Gallup voru 76% borg-
arbúa jákvæðir gagnvart sumar-
götum í miðborginni en aðeins 9%
neikvæðir. Þá voru tæplega 60%
rekstraraðila jákvæðir gagnvart
verkefninu,“ segir í bókuninni.
Sjálfstæðismenn lögðu fram bók-
un um að leitað yrði umsagna hjá
íbúum og öðrum hagsmunaaðilum
áður en ákvörðunin yrði fest í sessi.
Framsóknarflokkur og flugvallar-
vinir leggja áherslu á að jafnvel þótt
lokun göngugötu hafi mælst vel fyrir
sé mikilvægt að gefa því gaum að
meirihluti hafi verið andvígur því að
lengja tímabilið í fimm mánuði í
könnuninni og að leita þurfi samráðs
áður en næstu skref verði stigin.
vidar@mbl.is
Leggja til sumar-
lokanir til frambúðar
Laugavegur verði göngugata
Morgunblaðið/Ómar
Laugavegur Hluta Laugavegar hef-
ur verið lokað að sumri í fimm ár.