Morgunblaðið - 27.11.2015, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2015
Jean-Claude Juncker, forsetiframkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins, viðurkennir að
Schengen-samstarfið sé í miklum
vanda og sé í raun óvirkt um þessar
mundir.
Hann kýs að orðaþað svo að
Schengen sé „að
hluta í dauðadái,“
sem er ekki mjög
traustvekjandi fyrir
þá sem þurfa að
treysta á Schengen-
samstarfið, svo sem
Íslendinga.
En þó að Schengen sé í dauðadáiog geri ekki það sem það á að
gera, sem er ekki síst að gæta að ytri
landamærum svæðisins, má Juncker
ekki heyra á það minnst að hætta
formlega þessari starfsemi sem
þegar hefur lagst af.
Nei, þess í stað heldur hann þvífram að Schengen sé slíkur
grundvöllur evrunnar og Evrópu-
sambandsins að allt sé til vinnandi
að berja höfðinu áfram við steininn
og neita að taka aftur upp landa-
mæraeftirlit á milli Schengen-
ríkjanna.
En þetta kemur ekkert á óvart.Juncker trúir á Evrópusam-
bandið, evruna og stöðugt meiri
samruna ríkja Evrópusambandsins.
Hann er tilbúinn að fórna öllu fyrir
þá trúarsannfæringu sína.
Þetta skýrir hins vegar ekki hversvegna aðrir, sem segjast ekki
hafa tekið sömu trú, halda dauða-
haldi í sjúklinginn í dauðadáinu.
Juncker er tilbúinn að veita afsláttaf örygginu fyrir evruna, en
hvað með hina? Hvers vegna vilja
þeir gefa afslátt?
Jean-Claude
Juncker
Halda dauðahaldi
í dauðadáið
STAKSTEINAR
Ljósin á Hamborgarjólatrénu
verða tendruð kl. 17.00 á morgun,
laugardaginn 28. nóvember, á Mið-
bakka Reykjavíkurhafnar. Þetta er
í 51. skiptið sem góðir vinir frá
Hamborg senda jólatré til Reykja-
víkur, en fyrsta tréð kom árið 1965.
segir í frétt frá Faxaflóahöfnum.
Að þessu sinni mun dr. Sverrir
Schopka afhenda tréð en hann er
fulltrúi tveggja Íslandsvinafélaga í
Þýzkalandi koma nú í fyrsta sinn
að afhendingu jólatrésins sem
stuðningsaðilar. Félagið Buss Port
í Hamborg er einnig stuðningsaðili
nú eins og svo oft áður.
Diane Rohrig, fulltrúi sendi-
herra Þýskalands á Íslandi, mun
ávarpa gesti og svo mun einnig
gera Kristín Soffia Jónsdóttir,
stjórnarformaður Faxaflóahafna
sf. Loks verður gestum boðið í
heitt súkkulaði og bakkelsi í Hafn-
arhúsinu.
Þessi siður, að senda jólatré til
Reykjavíkurhafar, er tileinkaður
íslenskum togarsjómönnum sem
sigldu á Hamborg með fisk strax
eftir seinni heimsstyrjöldina.
Ljósin á Ham-
borgartrénu
tendruð á morgun
Ljósmynd/Emil Þór Sigurðsson
Jólatréð lýsir
upp hafnarsvæðið
Veður víða um heim 26.11., kl. 18.00
Reykjavík 0 skýjað
Bolungarvík -1 alskýjað
Akureyri 2 skýjað
Nuuk -7 skýjað
Þórshöfn 8 alskýjað
Ósló -1 skýjað
Kaupmannahöfn 3 léttskýjað
Stokkhólmur 3 skýjað
Helsinki 2 skúrir
Lúxemborg 3 léttskýjað
Brussel 7 léttskýjað
Dublin 12 súld
Glasgow 11 skúrir
London 11 skýjað
París 7 léttskýjað
Amsterdam 5 heiðskírt
Hamborg 5 heiðskírt
Berlín 3 skýjað
Vín 3 skýjað
Moskva -5 þoka
Algarve 18 heiðskírt
Madríd 15 heiðskírt
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 15 skýjað
Róm 7 skýjað
Aþena 17 léttskýjað
Winnipeg -12 snjókoma
Montreal 7 alskýjað
New York 12 léttskýjað
Chicago 13 alskýjað
Orlando 23 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:34 15:58
ÍSAFJÖRÐUR 11:06 15:36
SIGLUFJÖRÐUR 10:50 15:17
DJÚPIVOGUR 10:10 15:21
Hæstiréttur sýknaði í gær Íbúða-
lánasjóð af kröfum tveggja lántak-
enda hjá sjóðnum sem fóru fram á
viðurkenningar á því fyrir dómi að
sjóðnum hefði verið óheimilt að
innheimta verðbætur af láninu.
Það þýddi að mati lántakendanna
að umframgreiðslur vegna verðbóta
á afborganir og vexti ættu að
reiknast strax við greiðslu hvers
gjalddaga til frádráttar höfuðstól
lánsins. Lánið ætti fyrir vikið að
lækka sem því næmi.
Hæstiréttur komst að þeirri
niðurstöðu að tilhögun verðtrygg-
ingarinnar sem samið hefði verið
um við útgáfu skuldabréfsins hefði
verið lögmæt í ljósi ákvæða laga
um vexti og verðtryggingu. Hér-
aðsdómur Reykjavíkur hafði áður
einnig sýknað Íbúðalánsjóð af kröf-
unni.
Íbúðalánasjóði ekki skylt að
leggja fram greiðsluáætlun
Dómurinn taldi Íbúðalánasjóði
hafa borið að veita lántakendum
upplýsingar um fjögur atriði við
lántökuna með tilliti til laga og
dómafordæma. Fyrir það fyrsta
höfuðstól lánsins, það er fjárhæð
þess án nokkurs kostnaðar, í annan
stað heildarlántökukostnað, í þriðja
lagi um árlega hlutfallstölu kostn-
aðar sem skyldi lýst sem árlegri
prósentu heildarlántökukostnaðar-
ins af höfuðstól skuldarinnar og í
fjórða lagi um heildarupphæð sem
greiða ætti og væri samtala höf-
uðstóls, vaxta og lántökukostnaðar.
Þá var með hliðsjón af fyrri dómi
Hæstaréttar ekki talið að Íbúða-
lánasjóði hefði verið skylt sam-
kvæmt lögum að láta lántakend-
unum í té við lánveitinguna
sérstaka greiðsluáætlun sem gerði
ráð fyrir tiltekinni hækkun vísitölu
neysluverðs og að við gerð láns-
samningsins hefði verið þörf á að
gera ráð fyrir að verðbætur teldust
til heildarlántökukostnaðar.
Við úrlausn málsins leit Hæsti-
réttur meðal annars til þess að til-
skipun 87/102/EBE, sem lántak-
endurnir byggðu mál sitt meðal
annars á, hefði ekki haft lagagildi
hér á landi og fyrir vikið væri ekki
hægt að nota hana sem lögskýringu
vegna íslenskra laga. Héraðsdómur
taldi hins vegar óhjákvæmilegt að
líta til tilskipunarinnar við túlkun
þeirra laga sem ættu uppruna sinn
í henni. Eftir sem áður komust
bæði dómstigin að sömu niðurstöðu
í málinu. Vilhjálmur Bjarnason,
formaður Hagsmunasamtaka heim-
ilanna, sem stóðu að málaferlunum,
segir niðurstöðuna mikil vonbrigði
og að farið verði með málið fyrir
erlendan dómstól, annaðhvort
Mannréttindadómstól Evrópu eða
EFTA-dómstólinn, en það verði
meðal annars skoðað í því ljósi hvor
leiðin sé fljótlegri. „Við bjuggumst
við að kerfið myndi verja sig áfram
fyrir þeim mistökum sem það hefur
gert undanfarna áratugi,“ segir Vil-
hjálmur.
Morgunblaðið/Kristinn
Hæstiréttur Niðurstaða héraðsdóms um verðtrygginguna var staðfest í
Hæstarétti í gær. Verðtryggin verður því áfram.
Verðtryggingin
áfram óröskuð
Hæstiréttur staðfesti dóm úr héraði
holar@holabok.is — www.holabok.is
Útgáfuteiti vegna bókarinnar
um Hrekkjalómafélagið verður
haldið í dag klukkan 16-18
í Eymundsson, Austurstræti.
Ásmundur Friðriksson segir þar
bráðsmellnar sögur af hrekkjum
og óvæntum afleiðingum þeirra
og áritar bók sína.
Allir sem vilja eiga skemmilegt
föstudagssíðdegi mæta auðvitað.
Kaffi og kleinur í boði.
HREKKJALÓMAFÉLAGIÐ
ÚTGÁFUTEITI