Morgunblaðið - 27.11.2015, Side 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2015
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Ríkisstjórn Rússlands er að undir-
búa umfangsmiklar refsiaðgerðir
gegn Tyrklandi vegna árásar tyrk-
neskrar herflugvélar sem skaut nið-
ur rússneska herþotu við landamæri
Tyrklands og Sýrlands á þriðjudag-
inn var.
Dmítrí Medvedev, forsætisráð-
herra Rússlands, skýrði frá þessu í
gær og sagði að stjórn sín hefði feng-
ið fyrirmæli um að leggja fram til-
lögur um aðgerðir til að svara árás-
inni. Meðal annars væri ráðgert að
stöðva sameiginleg fjárfestingar-
verkefni ríkjanna, draga úr innflutn-
ingi frá Tyrklandi, hækka tolla á
tyrkneskan varning og takmarka
eða banna ferðir Rússa til landsins.
Slíkt bann yrði mikið áfall fyrir
ferðaþjónustuna í Tyrklandi því að
nær 4,5 milljónir Rússa ferðuðust til
landsins í fyrra.
Alexej Úljúkajev, efnahagsráð-
herra Rússlands, útilokaði ekki að
refsiaðgerðirnar næðu til tveggja
helstu fjárfestingarverkefna ríkj-
anna – áforma um að leggja gas-
leiðslu milli landanna og reisa fyrsta
kjarnorkuver Tyrklands.
Rússar eru önnur helsta við-
skiptaþjóð Tyrkja og um 20% af inn-
fluttu grænmeti í Rússlandi koma
frá Tyrklandi. Rússnesk yfirvöld
byrjuðu í gær að takmarka innflutn-
ing á tyrkneskum matvælum og báru
því við að um 15% þeirra fullnægðu
ekki reglum um matvælaöryggi.
Engin afsökunarbeiðni
Pútín sagði í gær að rússnesk
stjórnvöld hefðu ekki fengið neina
„skýra afsökunarbeiðni“ frá ráða-
mönnum í Tyrklandi vegna árásar-
innar. Tyrkir hefðu ekki heldur boð-
ið skaðabætur eða lofað að „refsa
glæpamönnunum“ sem bæru ábyrgð
á árásinni.
Recep Tayyip Erdogan, forseti
Tyrklands, svaraði í viðtali við CNN-
sjónvarpið að Tyrkir þyrftu ekki að
biðja Rússa afsökunar. „Mennirnir
sem þurfa að biðjast afsökunar eru
þeir sem rufu lofthelgi okkar,“ sagði
Erdogan. Rússar neita því að rúss-
neska þotan hafi farið inn í lofthelgi
Tyrklands áður en hún var skotin
niður.
Undirbúa refsiað-
gerðir gegn Tyrkjum
Rússar svara árásinni á rússnesku þotuna með aðgerðum
sem gætu haft alvarlegar afleiðingar fyrir efnahag Tyrklands
„Kaupum ekki olíu af IS“
» Forseti Tyrklands segir að
ekkert sé hæft í þeirri ásökun
rússneskra stjórnvalda að
Tyrkir hafi keypt olíu af Ríki ísl-
ams (IS), samtökum íslamista
í Sýrlandi og Írak.
» „Þeir sem halda því fram
að við kaupum olíu af Daesh
[Ríki íslams] þurfa að sanna
það. Ef ekki eru þeir rógberar,“
sagði Recep Tayyip Erdogan.
Auðkýfingurinn Donald Trump hef-
ur verið harðlega gagnrýndur fyrir
að hæðast að fötluðum blaðamanni
sem starfar fyrir bandaríska dag-
blaðið New York Times.
Trump, sem sækist eftir því að
verða kjörinn forsetaefni repúblik-
ana á næsta ári, hermdi eftir blaða-
manninum Serge Kovaleski og var
með óviðeigandi látbragð á fjölda-
fundi í Suður-Karólínu í fyrradag, að
því er fram kemur á vef breska ríkis-
útvarpsins. Forsvarsmenn New
York Times segja að hegðun
Trumps hafi verið svívirðileg.
Trump hefur notað grein, sem
Kovaleski skrifaði árið 2001, til að
rökstyðja umdeildar fullyrðingar um
að mörg þúsund múslímar í New
Jersey hafi fagnað árásum hryðju-
verkamanna á Bandaríkin 11. sept-
ember 2001. Trump sagði á fund-
inum að Kovaleski væri ágætur
blaðamaður en myndi ekki eftir að
hafa haldið þessu fram. „Aumingja
náunginn, þið verðið að sjá hann,“
bætti Trump við. Síðan fór hann að
veifa höndunum undarlega og var
augljóslega að herma eftir blaða-
manninum. Kovaleski er með vöðva-
og taugasjúkdóm, sem hefur áhrif á
hreyfingar hans, einkum þegar hann
hreyfir hægri höndina. „Uuu, ég
man ekki hvað ég sagði. Uuu ég man
ekki. Hann segir bara: „Ég man
ekkert. Kannski sagði ég þetta“,“
sagði Trump á meðan hann sveiflaði
höndunum.
Trump hæddist að
fötluðum blaðamanni
AFP
Á atkvæðaveiðum Donald Trump á
kosningafundi í Ohio-ríki.
Að minnsta kosti 200.000 manns sóttu fyrstu útimessu
Frans páfa í Afríku í gær, en hún var haldin við Naí-
róbí-háskóla í höfuðborg Kenía. Á meðal viðstaddra
voru 9.000 prestar og 60 biskupar og kardinálar. Þús-
undir manna biðu í röðum við háskólann nóttina fyrir
messuna þrátt fyrir hellidembu. Þetta er fyrsta Afríku-
ferð Frans páfa sem heimsækir einnig Úganda og Mið-
Afríkulýðveldið áður en hann snýr aftur í Páfagarð.
AFP
Fyrsta útimessa Frans páfa í Afríku
Minnst 200.000 manns söfnuðust saman í Naíróbí til að hlýða á páfa
VINNINGASKRÁ
30. útdráttur 26. nóvember 2015
207 10266 20705 29039 37930 51072 61685 70593
213 10357 20720 29264 37931 51161 62169 70801
367 11031 20776 29332 39197 51586 62729 71655
975 11080 20885 29561 39232 52850 63449 71900
1161 11230 21801 29656 39292 53414 63559 71910
1258 11297 22664 29835 40463 53545 64041 72327
1390 11881 22765 30223 41330 53570 64181 72640
1929 12005 23178 31152 41479 53611 64381 72653
2019 12544 23378 31210 42471 54514 64605 72691
2158 12668 23454 32042 43134 54617 64959 73011
2188 12676 23456 32047 43147 54821 65102 73231
2532 12841 23567 32144 43486 54910 65114 73299
2956 13882 23597 32282 43642 54934 65265 73334
3114 13968 23599 32667 43700 55021 65381 73390
3800 14264 23641 32747 43897 55329 65397 73646
4062 15818 23810 32912 44154 55660 65398 74211
4316 15993 23883 32915 44464 55947 65694 74298
4320 16421 25843 33074 44652 56082 65929 74789
4456 16430 25852 33098 45507 56461 66425 75002
6053 16745 26408 33108 45870 56740 66512 75612
6568 16779 26540 33490 45991 56826 66769 76022
6742 17312 26678 33931 46134 57347 67017 76782
6972 17476 26732 34269 46418 57651 67132 76993
7032 18184 26797 34786 46593 58458 67793 77082
7328 18230 26837 34965 47181 58673 68119 77123
7527 18681 26905 35783 47594 58715 68428 77327
7571 18841 27712 35818 47618 58721 68533 77761
7715 18868 27797 35964 47742 58764 68738 78016
7798 18948 27902 36392 47946 59534 68788 78570
8242 19096 28104 36670 47993 59585 68840 78584
8264 19335 28259 36703 48036 59802 69292 79301
8308 19686 28285 36791 48355 59829 69918
8347 19908 28484 36822 48488 60068 70022
8890 19927 28670 36953 49013 60083 70026
9406 19993 28679 37196 49043 60093 70109
9839 20429 28711 37462 49716 60646 70310
10047 20613 28924 37563 50934 61258 70452
738 8778 19898 33485 43131 52802 62344 71396
978 8799 19938 34847 44005 53206 64406 71798
4313 10320 19978 35580 44552 53329 64497 72896
4772 11709 20896 35650 44815 55032 64825 73453
5201 12411 23308 36027 45444 55214 64952 77497
5294 12842 23860 36472 46187 55574 65541 78020
5856 13292 24056 36936 46736 56302 65592 78740
6521 16102 25466 37284 47148 56597 65623 79437
6720 17453 26048 37371 47270 56615 66875 79725
7382 17715 26432 37924 47782 57796 67883
7784 17749 30650 38017 48086 57978 68710
7907 18163 31458 40409 49343 58431 68986
8436 18660 33304 41397 50594 61271 69898
Næsti útdráttur fer fram 3. desember 2015
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
35018 38853 66658 79255
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
141 14132 27307 39856 53589 63911
210 17078 34335 40119 55480 65858
645 20863 35978 40244 56655 67102
678 23650 39289 40971 59653 79329
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
2 9 3 9
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/