Morgunblaðið - 27.11.2015, Side 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2015
Sigrún Elsa Smára-dóttir var stödd íBerlín þegar
blaðamaður náði tali af
henni í gær. „Ég er búin
að vera hérna á ráðstefnu
síðan á mánudaginn en
maðurinn minn kom
hingað í dag og við ætlum
að hafa það náðugt hérna
um helgina. Skoða söfn
og borða eitthvað gott.“
Sigrún er fagstjóri við-
skiptaþróunar hjá Matís
og er á ráðstefnunni Glo-
bal Bioeconomy Summit.
„Þar er rætt um lífhag-
kerfismál; þann hluta
hagkerfisins sem byggir
á lífrænum auðlindum.
Litið er til lífhagkerfisins
til að takast á við ýmsar
stórar áskoranir sem
mannkyn stendur frammi
fyrir; bæta fæðuöryggi
fyrir fjölgandi jarðarbúa,
loftslagsbreytingar, skipta frá hagkerfi sem byggir á jarðefnaeldsneyti
yfir í hagkerfi sem byggir á endurnýjanlegum auðlindum, styrkja
dreifðar byggðir, fjölga störfum og auka verðmætasköpun.“
Á ráðstefnunni eru 900 manns hvaðanæva úr heiminum „Hér fær
maður breiða yfirsýn yfir hvaða áskoranir menn eru að glíma við í ólík-
um heimshlutum og hvaða leiðir eru til að bæta stöðuna. Fyrir Ísland
felast veruleg tækifæri til aukinnar verðmætasköpunar í eflingu lífhag-
kerfisins, m.a. með beitingu líftækni til framleiðslu á verðmætum
vörum úr hliðarafurðum, bættum vinnsluferlum, nýtingu vannýttra
hráefna o.s.frv. En þetta er einmitt kjarninn í rannsókna- og nýsköp-
unarstarfi okkar hjá Matís.“
Eiginmaður Sigrúnar er Vilhjálmur Goði Friðriksson, framkvæmda-
stjóri ferðaskrifstofunnar Iceland Exclusive Travels. „Það má segja að
það sé helsta áhugamál mitt að sinna því fyrirtæki í frítíma, en ég sé um
Excel-hluta þess og það er mjög spennandi að fylgjast með ferðaþjón-
ustunni og hvernig hún er að þróast. Við leggjum mesta áherslu á
hvataferðir sem erlend fyrirtæki eru með fyrir starfsmenn sína og
viðskiptavini.“
Dóttir Sigrúnar og Vilhjálms Goða er Guðrún Gígja, 11 ára, og börn
Sigrúnar af fyrra hjónabandi eru Ragnheiður Anna og Smári Rúnar
Róbertsbörn.
Fagstjórinn Sigrún Elsa Smáradóttir.
Í afmælis- og ráð-
stefnuferð í Berlín
Sigrún Elsa Smáradóttir er 43 ára í dag
J
óhann fæddist á Þórshöfn
27.11. 1955 og ólst þar
upp. Hann var auk þess í
sveit á sumrin á Syðra-
Álandi: „Hjá okkur strák-
unum snerist allt um báta, sjó-
mennsku, veiðar og aflabrögð. Mað-
ur var ekki hár í loftinu þegar maður
fór að fara fram á til að fylgjast með
bátunum koma að landi, hlera afla-
fréttir frá körlunum og renna færi á
bryggjunni. Þetta var á síðustu síld-
arárunum og í útvarpinu glumdu
aflafréttir í öllum fréttatímum. Það
var samt aldrei mikil síldarstöltun á
Þórhöfn. Aðeins rétt í lokin. En afla-
brögðin voru fréttaefni eins og enski
boltinn í dag.“
Jóhann gekk í Grunnskóla Þórs-
hafnar, Héraðsskólana í Lundi í Öx-
arfirði og á Laugum í Reykjadal og
var í Samvinnuskólanum á Bifröst
frá 1973 og lauk þaðan samvinnu-
skólaprófum 1975.
Jóhann starfaði við vegagerð og
sjómennsku á námsárunum. Hann
var skrifstofustjóri hjá Hraðfrysti-
stöð Þórshafnar hf. frá 1976, var
framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðv-
ar Þórshafnar hf. 1978-2001, var
framkvæmdastjóri fyrir SIF Kan-
ada í Nova Scotia 2002-2009, en kom
þá aftur heim til Íslands og hefur
verið skipstjóri á eigin báti, Garðari
ÞH 122, er sjálfstæður atvinnurek-
andi, hluthafi í Veritas Capital og
situr í stjórn Distica.
Jóhann sat í hreppsnefnd Þórs-
hafnarhrepps 1982-98, sat í hafnar-
nefnd Þórshafnar um langt árabil og
ýmsum fleiri nefndum á vegum
bæjarfélagsins og sat á Alþingi fyrir
Jóhann Arngrímur Jónsson framkvæmdastjóri – 60 ára
Fjölskyldan Jóhann og Rósa með börnum sínum, tengdabörnum og barnabörnunum Arngrími Agli og Öglu Maríu.
Einn af frumkvöðlum
veiðanna í Smugunni
Skagaströnd
Victoria Mist
Ernstdóttir
fæddist 27. nóv-
ember 2014 kl.
11.01. Hún vó
3.690 g og var 51
cm löng. For-
eldrar hennar
eru Guðrún Olga
Haraldsdóttir og
Ernst Guðni
Hólmgeirsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Victorinox hnífar verð frá 2.125,-
Muela dálkar verð frá 3.590,-
Mikið úrval af Victorinox vasahnífum
og spænskum veiðihnífum frá
Muela til jólagjafa
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is
Opið virka daga
frá 9-18
lau frá 10-16