Morgunblaðið - 27.11.2015, Page 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2015
Arngunnur Ýr Gylfadóttir, Jó-
hanna Bogadóttir og Guðný Magn-
usdóttir ræða í dag kl. 12 við gesti
um sýninguna Kvennatími – Hér og
nú þrjátíu árum síðar sem nú stend-
ur yfir á Kjarvalsstöðum
„Hugmyndin að baki sýningunni
er að kalla aftur saman þær konur
sem sýndu saman undir heitinu Hér
og nú á Kjarvalsstöðum haustið
1985. Konurnar sem valdar voru til
þátttöku árið 1985 voru margar
rétt að hefja ferilinn en aðrar höfðu
verið virkar í sýningarhaldi á liðn-
um áratug. Tilefni nýju sýningar-
innar er 100 ára afmæli kosninga-
réttar kvenna hér á landi. Líkt og á
sýningunni 1985
er lögð áhersla á
að sýna ný verk
og var öllum
konunum í Hér
og nú boðin þátt-
taka en þær eru
allar enn virkar í
listsköpun og
sýningarhaldi,
utan tveggja sem
eru látnar.
Verkin á sýningunni spanna ýms-
ar aðferðir, miðla og hugmyndir,“
segir í tilkynningu. Þar kemur
fram að sýningunni lýkur 29. nóv-
ember nk.
Listamannaspjall á Kvennatíma
Arngunnur Ýr
Gylfadóttir
Í tengslum við yfirlitssýninguna
Ljóðvarp sem nú stendur yfir í
Listasafni Íslands á verkum Nínu
Tryggvadóttur (1913-1968), kemur
í dag út bók með verkunum sem ber
nafn listakonunnar. Merkum ferli
hennar er gerð góð skil, lífi hennar
og list en Nína var meðal frjóustu
og framsæknustu myndlistarmanna
sinnar kynslóðar og einn af braut-
ryðjendum ljóðrænnar abstrakt-
listar. Útgáfu bókarinnar verður
fagnað í safninu í dag klukkan 17.
Þar mun Sveinn Einarsson, fyrr-
verandi þjóðleikhússtjóri, segja frá
Nínu og góðum kynnum þeirra.
Sveinn tók sem ungur maður for-
vitnilegt viðtal við Nínu sem birtist
í bókinni Steinar og sterkir litir –
Svipmyndir 16 myndlistarmanna
árið 1965, og er viðtalið að finna í
heild sinni í nýju bókinni. Auk þess
verður flutt tónlist og boðið upp á
léttar veitingar.
Ný bók um list og líf Nínu Tryggvadóttur
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Listakonan Nína Tryggvadóttir.
Risaeðlustrákinn Arlo heldur í ferðalag vegna væringa og vandræða.
Metacritic 67/100
IMDb 7,7/10
Laugarásbíó 17.00
Sambíóin Álfabakka 15.40, 17.50
Sambíóin Egilshöll 17.40
Sambíóin Kringlunni 17.50, 17.50, 20.00
Sambíóin Akureyri 17.50, 20.00
Sambíóin Keflavík 17.50, 17.50
smárabíó 15.30, 15.30, 17.45
Góða Risaeðlan Steve Jobs Opinská mynd um snillinginn
Steve Jobs, stofnanda Apple
og frumkvöðul stafrænu
byltingarinnar.
Metacritic 82/100
IMDb 7,7/10
Sb. Álfabakka 20.00, 22.40
Solace 16
Hrottaleg morð benda til að
raðmorðingi gangi laus.
IMDb 6,5/10
Sb. Álfabakka 15.40, 17.50,
20.00, 20.00, 22.10, 22.20,
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00, 22.20,
Kringlunni 20.00, 22.20,
Akureyri 20.00, 22.20
The Night Before 12
Ethan, Isaac og Chris hafa
verið vinir frá því þeir voru
litlir. Í áratug hafa þeir hist
árlega á aðfangadagskvöld.
Ólifnaður, svall, gleði og
glaumur hafa einkennt
þessa endurfundi. En nú
þegar drengirnir eru að full-
orðnast virðist hefðin vera
að leggjast af.
Metacritic 57/100
IMDb 7,4/10
Laugarásbíó 20.00
Sambíóin Keflavík 20.00
Smárabíó 17.45, 20.00,
22.20
Háskólabíó 21.00
Bridge of Spies 12
Bandarískur lögfræðingur er
ráðinn af CIA á tímum Kalda
stríðsins til að hjálpa til við að
bjarga flugmanni sem er í
haldi í Sovétríkjunum.
Metacritic 81/100
IMDb 8,0/10
Sambíóin Keflavík 20.00
Smárabíó 19.00, 22.00,
Háskólabíó 18.00, 21.00
Pan
Munaðarleysingi ferðast til
Hvergilands og uppgötvar
örlög sín, að verða hetjan
Pétur Pan.
Bönnuð yngri en 7 ára.
Metacritic 36/100
IMDb 6,0/10
Sambíóin Álfabakka 17.30,
Sambíóin Egilshöll 17.30
Sambíóin Akureyri 17.30
Everest 12
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 66/100
IMDb 7,7/10
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.00, 22.40
The Last Witch
Hunter 12
Vin Diesel fer með hlutverk
Kaulder, aldagamals víga-
manns sem drap norna-
drottninguna á miðöldum.
Metacritic 36/100
IMDB 6,7/10
Sambíóin Álfabakka 22.10
Sambíóin Egilshöll 20.00
Sambíóin Akureyri 20.00
Scouts Guide to the
Zombie Apocalypse 16
IMDb 5,9/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
Sambíóin Egilshöll 23.00
Burnt 12
Kokkurinn Adam Jones er
einn af villingum Parísar-
borgar og skeytir ekki um
neitt nema spennuna við að
skapa nýjar bragðsprengjur.
Metacritic 38/100
IMDb 6,9/10
Háskólabíó 18.00
Sambíóin Álfabakka 22.40
Hanaslagur Tótó er ungur hani á búgarði
sem dreymir um að verða
stór og sterkur bardagahani.
IMDb 6,0/10
Laugarásbíó 16.50
Hotel
Transylvania 2 IMDB 7,7/10
Smárabíó 15.30, 17.45
Þrestir 12
Háskólabíó 17.30
45 Years Hjón sem skipuleggja 45 ára
brúðkaupsafmæli sitt, fá
óvænt sent bréf sem mun
mögulega breyta lífi þeirra
til frambúðar.
Metacritic 92/100
IMDb 7,4/10
Bíó Paradís 18.00, 20.00,
22.00
Veðrabrigði Á Flateyri berjast íbúar fyrir
tilveru sinni og framtíð
þorpsins. Með tilkomu
kvótakerfisins færðust örlög
íbúanna í hendur þeirra sem
réðu kvótanum.
Bíó Paradís 18.00
Stúlkurnar á
Kleppjárnsreykjum
Bíó Paradís 18.00
The Program
Metacritic 61/100
IMDb 6,6/10
Bíó Paradís 18.00
Macbeth
Bíó Paradís 22.15
Dheepan 12
Metacritic 78/100
IMDB 7,1/10
Bíó Paradís 17.45
Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is
Kvikmyndir
bíóhúsanna
Katniss Everdeen er nú orðin leiðtogi
uppreisnarinnar gegn Kapítól, þó að
hún viti enn ekki alveg hverjum á að
treysta fullkomlega.
Metacritic 75/100
IMDB 7,4/10
Laugarásbíó 17.00, 20.00, 22.10
Smárabíó 16.00, 17.00, 20.00, 20.00, 22.50, 22.50
Háskólabíó 18.00, 21.00
Sambíóin Keflavík 22.00
Borgarbíó Akureyri 20.00
The Hunger Games:
Mockingjay 2 12 James Bond, uppgötvar dulkóðuð skilaboð
úr fortíð sinni sem leiða hann á slóð Spectre.
Morgnblaðið bbbbn
Metacritic 63/100
IMDb 7,5/10
Laugarásbíó 18.00, 21.00
Sambíóin Egilshöll 18.00, 20.00, 21.00, 22.10
Sambíóin Kringlunni 17.20, 20.30, 22.10
Sambíóin Keflavík 23.00
Smárabíó 19.00, 22.00
Háskólabíó 21.00
Borgarbíó Akureyri 20.00,
SPECTRE 12
Jólatilboðsverð kr. 159.615,-
Með fylgir Vitamix sleif, drykkjarmál
og svunta
Fullt verð kr. 199.518,-
Vitamix Pro 750 á sér
engann jafningja.
Nýtt útlit og nýir
valmöguleikar.
5 prógrömm og
hraðastillir sjá til þess
að blandan verður
ávallt fullkomin og
fersk!
Galdurinn við
ferskt hráefni
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is