Morgunblaðið - 27.11.2015, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2015
» Nýlókórinn, einnig nefndur Íslenski hljóðljóð-akórinn, hélt hljóðleika á Kex hosteli í gær-
kvöldi sem báru yfirskriftina Ég sakna ekki fram-
tíðarinnar. Kórinn frumflutti þrjú ný verk eftir
þrjá höfunda: „Fet“ eftir Harald Jónsson myndlist-
armann, „Fjall“ eftir ljóðskáldið Lomma og „Edi-
könd“ eftir Hörð Bragason, tónskáld og einn kór-
stjóra kórsins.
Nýlókórinn frumflutti þrjú verk á hljóðleikum á Kex hosteli í gærkvöldi
Morgunblaðið/Eggert
Hljóðleikar Kórinn á hljóðleikum í gær. Hann sérhæfir sig í flutningi hljóðljóða og gjörninga og sagði í tilkynningu vegna
hljóðleikanna að atriði á þeim gætu valdið viðkvæmu fólki óþægindum. Kannski hefur gjörningurinn haft tilætluð áhrif.
Áhrif Áhorfendur hlýddu á og veittu hinu smæsta athygli.
Saman Áhorfendur og jafnframt þáttakendur voru eflaust hissa.
Steppað Fæturnir fengu að vinna sína vinnu í steppinu.
Í hring Mikil nánd skapaðist í gjörningnum og flytjendur leiddust hönd í hönd og mynduðu hring utan um gestina.
Góða risaeðlan
Teiknimynd frá fyrirtækinu Pixar.
Risaeðluunginn Arlo verður við-
skila við föður sinn og þarf hann
að bjarga sér upp á eigin spýtur í
fyrsta sinn. Hann hittir lítinn strák
sem hjálpar honum og er sá stutti
óhræddur við að sýna tennurnar
og standa á sínu. Leikstjóri er Pet-
er Sohn og leikarar í íslenskri tal-
setningu Grettir Valsson, Aron
Máni Tómasson, Þórhallur Sig-
urðsson, Steinn Ármann Magn-
ússon, Valdimar Flygenring, Egill
Ólafsson, Íris Tanja Flygenring,
Þórdís Björk Þorfinnsdóttir,
Hjálmar Hjálmarsson, Edda Björg
Eyjólfsdóttir o.fl. Leikstjóri tal-
setningar er Björn Ármann Júl-
íusson.
Metacritic: 67/100
Bridge of Spies
Nýjasta kvikmynd leikstjórans Ste-
ven Spielberg með Tom Hanks í
aðalhlutverki. Handritið skrifuðu
Matt Charman og bræðurnir Et-
han og Joel Coen og byggðu á
hinu sk. U-2 atviki árið 1960.
Bandarískur þotuflugmaður í
njósnaleiðangri var handtekinn í
Sovétríkjunum eftir að þotan hans
var skotin niður og var lögfræð-
ingurinn James Donovan fenginn
til að semja um lausn hans. Kalda
stríðið stóð þá sem hæst og lagði
Donovan sig í mikla hættu. Auk
Hanks fara með helstu hlutverk
Alan Alda, Amy Ryan og Mark
Rylance. Metacritic: 81/100
The Night Before
Æskuvinirnir Ethan, Isaac og
Chris hafa haft þann sið að hittast
á aðfangadagskvöldi og sletta úr
klaufunum, allt frá því að for-
eldrar eins þeirra létu lífið. Þetta
hafa þeir gert í 14 ár en eru nú
orðnir fullorðnir menn og ætla að
leggja siðinn af. En áður en af því
verður skal sletta úr klaufunum
sem aldrei fyrr. Leikstjóri er Jo-
nathan Levine og í aðalhlut-
verkum Jillian Bell, Joseph Gord-
on-Levitt, Lizzy Caplan og Seth
Rogen. Metacritic: 57/100
45 years
Breska verðlaunamyndin 45 years
í leikstjórn Andrew Haigh verður
frumsýnd í Bíó Paradís í dag. Hún
fjallar um hjón sem fá óvænt bréf
þegar þau eru að skipuleggja 45
ára brúðkaupsafmæli sitt og inni-
hald þess mun mögulega breyta
lífi þeirra til frambúðar. Myndin
var sýnd í keppnisflokki Berl-
ínarhátíðar 2015 og báðir aðalleik-
arar myndarinnar, Charlotte
Rampling og Tom Courtenay,
hlutu Silfurbjörninn, verðlaun há-
tíðarinnar fyrir besta leik í aðal-
hlutverki. Metacritic: 92/100
Mad Max
Kvikmyndaklúbburinn Svartir
sunnudagar í Bíó Paradís sýnir á
sunnudaginn hina sígildu has-
armynd Mad Max frá árinu 1979
með Mel Gibson í aðalhlutverki.
Leikstjóri myndarinnar er George
Miller. Metacritic: 67/100
Bíófrumsýningar
Kalt stríð Úr kvikmyndinni Bridge of Spies sem Steven Spielberg leikstýrði.
Risaeðlur, svall, deilur og hasar
HUNGER GAMES 4 2D 5,8,10:10
THE NIGHT BEFORE 8,10:45
GÓÐA RISAEÐLAN 2D 5
SPECTRE 6,9
HANASLAGUR 3:50
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 5
TILBOÐ KL 5