Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.11.2015, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.11.2015, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.11. 2015 Fyrirtækið sem annaðist könnun Sun, Survation, for- dæmdi fyrirsögnina. Það sagðist andmæla því eindreg- ið að niðurstöðurnar væru notaðar, eins og sést hefði á samskiptamiðlum, til að ýta undir spennu á sviði trúmála og kynþáttar. En skaut Sun langt fram hjá markinu? Í grein blaðsins er vitnað í Sadiq Khan, múslíma og borgarstjóraefni Verka- mannaflokksins í Lond- on. „Eins og könnun Sun sýnir hafa flestir breskir múslímar rekist á einhvern með róttæk við- horf – og það sama á við um mig.“ Flest fórnarlömb Ríkis íslams,al-Qaeda og annarra slíkrahryðjuverkasamtaka sem kenna sig við íslam, eru múslímar. Meðal þeirra 130 sem dóu í París voru nokkrir múslímar og nokkrir tugir í New York 2001. Fátt bendir til þess vestrænir múslímar styðji almennt hryðjuverk jihadista, frem- ur en annað fólk. Slíkir ein- staklingar eru undantekningar. Kannanir á viðhorfum múslíma í Evrópuríkjum hafa hins vegar árum saman sýnt að skoðanir verulegs hluta (og stundum meirihluta) þeirra á ýmsum málum virðast stangast illilega á við vestræn lýð- ræðisgildi, mannréttindi, jafnrétti kynjanna o.fl. Allur þorri evrópskra er löghlýðið fólk sem reynir eftir bestu getu að lifa samkvæmt geðugustu hlutum kóransins um mildi og frið. Og andúð á ofbeldi. En bent er á að útbreidd þröngsýni, fáfræði og afturhald í fátækustu gettóum múslíma séu jarðvegur fyrir blint ofstæki. Gott dæmi er Molenbeek- hverfið í Brussel, sjálfur borg- arstjóri hverfisins hefur sagt að það sé „uppeldisstöð ofbeldis“, þaðan komu árásarmennirnir í París. Fátækrahverfi hafa oft einkennst af ofbeldi. En þar hafa ekki áður sprottið upp skipulagðir hópar sem hafa fyrir stefnu að fremja fjölda- morð á saklausum borgurum. Áróðurinn, einkum á netinu, hef- ur heillað suma unga múslíma á Vesturlöndum. En þegar beinlínis er spurt segja langflestir að þeir hafi andstyggð á IS og öðrum jihad- istum. Harðlínuklerkar eins og ímaminn í Grimshøj-moskunni í Ár- ósum í Danmörku hafa verið ann- arrar skoðunar. Umskipti urðu þó nýverið þegar hann lýsti því yfir að hann styddi ekki IS, væri nú „hlut- laus“ gagnvart samtökunum. Ein- hverjum létti við það. En hvernig á að mæla stuðning- inn við IS? Breska dagblaðið Sun birti í vikunni forsíðufrétt með fyr- irsögninni „Einn af hverjum fimm breskum múslímum hefur samúð með jihadistum“. Sun er ekki þekkt fyrir varkárni og augljóst er að fregnin var mjög hæpin túlkun á niðurstöðum skoð- anakönnunar sem blaðið hafði látið gera meðal liðlega þúsund múslíma. Þar var spurt hvort viðkomandi hefði „samúð með ungum múslímum sem yfirgefa Bretland til að berjast með vígamönnum í Sýrlandi“. Spurningin var allt of opin, hægt að misskilja hana. Var fólkið kannski að segja að það hefði samúð með þeim sem farið hafa til að berj- ast með Kúrdum gegn IS? Og samúð er teygjanlegt hug- tak, getur þýtt að fólkið skilji aulaháttinn í fáfróðum ung- mennum, strákum og stelpum. En ekki endilega að það hafi samúð með málstað IS. Fóður fyrir ofstæki Blaðið hefur beðist afsökunar á fyr- irsögninni en málið sýnir vel það einstigi sem fjölmiðlar verða að þræða. Málefni múslíma og innflytj- enda eru viðkvæm, ekki síst eftir hryðjuverk síðustu vikna í álfunni. Auðvelt er að gera þau að fóðri fyr- ir ofstækisöfl. Til er fólk sem heimt- ar nú í nafni pólitískrar rétthugs- unar að þagað sé um allt sem finna má að múslímum, neitar að IS teng- ist á nokkurn hátt íslam. Þessi krafa um þöggun er auðvitað ein gerð of- stækis. Ofsatrú sumra kristinna „tengist“ auðvitað kristni, hvort sem okkur líkar betur eða verr, rétt eins og ofsatrú íslamista „tengist“ íslam. Það segir ekki alla söguna um hugarfar múslíma almennt þótt ein- hverjir þeirra segist hafa samúð með vígamönnum, segist jafnvel styðja IS. Og hvað um aðra Breta? „Þar sem vitað er að ávallt er til verulegur minnihluti sem er sam- mála hvaða brjálæðislegu fullyrð- ingu sem sett er fram – Elvis er enn á lífi, geislasverð eru til – hvað ættum við þá að leggja mikið upp úr könnunum sem sagt er að sýni vísi að breskum jihadisma?“ spyr Isabel Hardman í grein í tímaritinu Spectator. Hún segir að sjaldan sé minnst á aðra könnun í mars sl. Þar hafi verið lögð sama spurning og notuð var í könnuninni fyrir Sun, um samúðina, fyrir aðra Breta en múslíma. Einn af hverjum sex hafi svarað játandi, svipað hlutfall og hjá múslímunm. Í vikunni var svo sama spurning lögð fyrir fólk í könnun YouGov í Bretlandi, segir Hardman. 10% sögðust hafa umrædda samúð með þeim sem færu til Sýrlands og hlut- fallið var heil 17% meðal kjósenda Frjálslyndra demókrata. Er hann Elvis kannski enn á lífi? SKOÐANAKANNANIR ERU VARASAMAR AÐ ÞVÍ LEYTI AÐ AUÐVELT GETUR VERIÐ AÐ SPYRJA ÞANNIG AÐ NIÐ- URSTAÐAN HENTI ÞEIM SEM VILL FÁ SÖNNUN FYRIR EIGIN VIÐHORFI. ORÐALAGIÐ GETUR SKIPT ÖLLU MÁLI. MISNOTKUN Víða hafa evrópskir múslímar mótmælt hryðjuverkum. Blóm og kerti við franska sendiráðið í Berlín eftir hryðjuverkin mannskæðu í París. Á blaðinu stendur „Ekki í okkar nafni“, undiritað: múslímar og sýrlenskir flóttamenn í Berlín. AFP *Ofstæki er svo auðvelt. Þú hefur bara skoðun. Ekkimikil þörf á hugsun. Og þegar maður fer nógu langt tilhægri hittir maður fyrir sams konar bjána til vinstri. Clint Eastwood kvikmyndaleikari. Alþjóðamál KRISTJÁN JÓNSSON kjon@mbl.is HEIMURINN yfirstétt Ahmed loftárásir á stöðvar IS í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.