Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.11.2015, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.11. 2015
Heilsa og hreyfing
10 VAFASÖM HEILSUJÓLARÁÐ
Jól án sam-
viskubits
Getty Images/Fuse
JÓLAHÁTÍÐINNI FYLGIR GJARNAN MIKIÐ ÁT
OG SAMSVARANDI TAKMÖRKUÐ HREYF-
ING. TIL AÐ SPORNA VIÐ ÞESSU ERU HÉR
BIRT NOKKUR RÁÐ SEM MIÐA AÐ ÞVÍ
AÐ AUKA BRENNSLU Í AÐDRAGANDA
JÓLANNA OG MINNKA KANNSKI ÖGN
LÍKURNAR Á AÐ VIÐ BELGJUM OKKUR
ÚT. ÞÓ ER ÁGÆTT AÐ HAFA Í HUGA
AÐ ÞESSI RÁÐ ERU FREKAR SETT
FRAM Í GRÍNI EN ALVÖRU.
sunnudagur@mbl.is
Gleymdu öllum
„góðum“ jólaráðum
Jólin koma bara einu sinni á ári.
Besta ráðið er að slaka á, vera þakk-
lát fyrir það sem við eigum og njóta
stundanna með okkar nánustu...og
leyfa sætindunum að fljóta með án
samviskubits. Það er hægt að hreyfa
sig og borða hollt í janúar.
Vatn er líkamanum nauðsynlegt. Í öllu amstrinu sem fylgt getur jólunum er auðvelt að gleyma
því að drekka nóg vatn. Í desember er jafnvel enn nauðsynlegra en aðra mánuði að ganga um
með vatnsflösku og vökva sig reglulega til að stuðla að betri meltingu og fá að auki nægan raka
fyrir húðina í kuldanum.
Nóg vatn í desember
Skreytingar
Skreyttu heimilið fáránlega mikið í ár og helst upp um alla
glugga og hurðir svo þú þurfir að klifra og lyfta höndum
hátt yfir höfuðið – lúmskar leikfimiæfingar í þessu.
Jólaboð
Sendu gestina
heim með afgang-
ana í tupperware-
boxum. Þá borðar
þú þá ekki sjálf(ur).
Jólahlaðborð
Fáðu þér lítið í einu á diskinn og
farðu eins margar ferðir og þú get-
ur án þess að það verði vandræða-
legt. Með þessu móti færðu meiri
hreyfingu út úr átveislunni.
Þrifin
Taktu jólaþrifin extra metnaðarfullum tökum. Þrífðu
loftin og veggina og gluggana að innan og utan. Þetta
er brennsla á við eróbik.
Kokteilboð
Ef þú ert í stand-
andi boði þar sem
boðið er upp á
pinnamat...ekki
henda tannstöngl-
unum! Settu þá í
vasann og teldu þá
jafnóðum. Ef þú ert
komin(n) í tveggja
stafa tölu ættirðu
að hætta átinu og
fá þér vatngslas.
Jólaböll
Farðu á öll jólaböll
sem bjóðast með
börnunum; í skólan-
um, vinnustað og frí-
stundastarfi. Nú skal
segja, nú skal segja og
Gekk ég yfir sjó og
land tekurðu með ýkt-
um hreyfingum
Eitthvað annað
Notaðu hugmyndaflugið og finndu þér eitthvað
annað að gera en að raða í þig konfekti og kökum.
Gönguferð eða geymslutiltekt geta fengið mann til
að gleyma öllum sætindum, allavega um stund.
Verslunarmiðstöðvar
Taktu stigann í Kringlunni og Smáralind en
slepptu rúllustiganum. Eða gakktu móti umferð í
rúllustiga. Hvort tveggja styrkir lærin.
Smákökugerð
Hafðu gulrætur við hendina
og alltaf þegar þú ætlar að
freistast til að stinga upp í
þig dísætu deiginu, raðaðu
þá í þig gulrótum í staðinn.
Það sökkar reyndar, en þér
líður kannski betur á eftir.