Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.11.2015, Blaðsíða 56
SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 2015
Teiknarinn og rithöfundurinn Birgitta Sif var í vikunni til-
nefnd til Sakura Medal-verðlaunanna í Japan fyrir bók
sína Frances Dean. Þetta kemur fram á Facebook-síðu
hennar þar sem hún skrifar: „Vá! Rosalega ánægð með að
bókin mín Frances Dean hafi verið tilnefnd til Sakura Me-
dal-verðlauna. Hún var tilnefnd af
15.000 nemendum sem ganga í al-
þjóðlega skóla í Japan.“ Það voru
skólabókasafnsfræðingar í alþjóð-
legum skólum í Japan sem stofnuðu
þessi verðlaun. Bókin hefur komið
út á íslensku undir nafninu Freyja
Dís sem vildi BARA dansa og
dansa.
Fyrr í mánuðinum var síðan bók
Aliciu Potter, sem Birgitta Sif
myndskreytti, Miss Hazeltine’s
Home For Shy and Fearful Cats, tilnefnd til „Peters Book
of the Year 2016“. Hún segir að þessi tilnefning sé sérlega
skemmtileg vegna þess að það séu bókasafnsfræðingar
sem tilnefni. Bókin er tilefnd í flokki myndabóka og er
hægt að kjósa Birgittu Sif á netinu. Tilkynnt verður um
vinningshafa við athöfn í Birmingham hinn 11. mars.
Íslendingar ættu að þekkja hana ekki síst fyrir bókina
Ólíver, sem var tilnefnd til barnabókaverðlauna Norð-
urlandaráðs fyrir Íslands hönd fyrir tveimur árum.
„Bókin Ólíver er um strák sem líður svolítið öðruvísi og
bókin er um það að vera öðruvísi í stórum heimi, líða vel
með það og vera kannski svo heppinn að finna einhvern
sem er eins og þú,“ sagði Birgitta Sif í viðtali í Morg-
unblaðinu þegar bókin kom út. Amnesty International í
Bretlandi leggur einmitt nafn sitt sérstaklega við Ólíver
því bókin minnir okkur á við séum öll fædd jöfn og frjáls og
höfum okkar eigin hugsarnir og skoðanir.
Þeir sem vilja fylgjast með Birgittu Sif ættu endilega að
finna hana á Facebook undir Birgitta Sif Illustration.
TEIKNARINN OG RITHÖFUNDURINN BIRGITTA SIF
Tilnefnd til japanskra
verðlauna
Frances Dean heitir á íslensku Freyja Dís.
Birgitta Sif
„Hvaða stúlka mundi ekki taka því með þökkum að fá
að skreppa til New York í viku, búa á nýja fína Hilton-
hótelinu í Rockefeller Center, og hafa fylgdarkonu til
að sýna sér margt markvert í New York og fara með
sig á dýra næturklúbba – og allt að kostnaðarlausu?
Fáar grunar þó að slíkt sé annað en dagdraumar. En
einn góðan veðurdag fyrir rúmri viku varð það að
veruleika fyrir Guðborgu Kristjánsdóttur,“ segir í
Morgunblaðinu 20. nóvember 1963.
Guðborg, sem starfaði hjá Verzlunarbankanum, var
boðið vestur til að taka þátt í sjónvarpsþætti Garry
Moore, sem frægur var fyrir þættina The Garry
Moore Show og I’ve Got a Secret.
Guðborg segir sjálf frá: „Í síðarnefnda þættinum
átti ég að koma fram og þekkja Garry sjálfan og
mesta grínið var að plata mig. Áður en það hófst var
ég lokuð inni í 3 klukkutíma. Þar var hlaðið á mig and-
litsfarða. Upphaflega hafði verið talað um að kaupa á
mig kjól, en þegar til kom leizt þeim betur á vínrauðan
kjól sem ég á sjálf og keyptu við hann skó í sama lit.
Ég var dálítið taugaóstyrk fyrst, því þarna var fullur
áhorfendasalur, og ég vissi að sjónvarpað var gegnum
100 stöðvar, en sem betur fer eru ljósin svo sterk
framan í mann, að maður sér ekkert fram í salinn. Ég
átti að reyna að geta upp á hver Garry Moore væri af
þremur mönnum, þar eð hann átti að syngja bezt og
vera skemmtilegastur, en mér mistókst það, var búin
að benda á báða hina áður en ég vissi hver hann var og
það þótti auðvitað skemmtilegast. Þetta var hálftíma
þáttur og ég var í l5 mínútur með.“
GAMLA FRÉTTIN
Ævintýraferð
til New York
Guðborg fór í
óvænta ævin-
týraferð 1963.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Reggie Watts
tónlistarmaður
Hrafnkell Örn Guðjónsson
tónlistarmaður
Questlove
tónlistarmaður
PANTANIR Í SÍMA: 588 8998
joifel@joifel.is
Tindrandi jól
að hætti Jóa Fel
Frostrós
Sörur og kransakonfekt
Dívur