Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.11.2015, Blaðsíða 32
Græjur og tækni
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.11. 2015
Vefútgáfa breska blaðsins
Independent birti í vikunni út-
tekt á Playstation 4-jólatölvu-
leikjunum í ár og hverjir þykja
þar bestir. Í efstu þremur sæt-
unum eru í réttri röð: Witch-
er 3: Wild Hunt, Bloodborne
og Fifa 16.
Tölvuleikir um jólin
Sýndarveruleikagleraugu frá fyrirtækjum á borð við Oculus,
Valve og Sony hafa vakið töluverða lukku meðal spenntra
notenda. Engu að síður hafa stærstu tölvuleikjaframleið-
endur heims verið seinir að taka við sér og fátt virðist benda
til þess að á leiðinni séu leikir fyrir þessa nýju tækni.
„Það eru enn örðugleikar við þessa tækni og hindranir
sem koma í veg fyrir að við ráðumst í fjárfestingar með
sýndarveruleikatæknina,“ sagði Blake Jorgensen, fjár-
málastjóri Electronic Arts, EA.
„Eins og staðan er í dag er markaðurinn einfaldlega of lít-
ill. EA er ekki að framleiða leiki fyrir Wii lengur af þeirri
ástæðu einni að markaðurinn er of lítill. Þetta snýst allt um
stærð markaðarins.“ Jorgensen tók það þó sérstaklega fram
að EA hefði unnið að þróun hugbúnaðar og lausna með ýms-
um framleiðendum sýndarveruleikatækni en hefði ekki í
hyggju að eyða háum fjárhæðum í tæknina fyrr en mark-
aðurinn væri orðinn töluvert stærri.
„Til lengri tíma tel ég að það verði markaður fyrir tölvu-
leiki byggða á sýndarveruleikatækni. Við erum kannski að
tala um fimm ár eða meira í að það verði að veruleika.“
Auk stærðar markaðarins hefur Jorgensen sagt að
framleiðendur sýndarveruleikabúnaðar þurfi að leysa
ógleðivandann sem fylgir fyrstu gerð sýndarveruleika-
gleraugna.
Markaðurinn er of lítill enn
Sýndarveruleiki gæti boðið upp á spennandi þróun tölvu-
leikja á komandi árum en EA segir markaðinn of lítinn.
COMNAVCRUITCOM
EA FJÁRFESTIR EKKI Í TÖLVULEIKJUM FYRIR SÝNDARVERULEIKA SEM STENDUR
Það er misjafnt hve mikla áherslu fólk leggur alla jafna
á hljóm og hljómburð, sumum finnst hann skipta meg-
inmáli, aðrir meta hagræðið meira en gæðin og eru
glaðir ef hljómur er nógu góður – hann þarf ekki að
vera frábær ef ég get verið með plötusafnið í vasanum
eða streymt hvaða lagi sem er úr tuttugu milljón laga
bunkanum hjá Spotify.
Að því sögðu þá þarf maður ekki að sætta sig við
hvað sem er, ekki að kaupa
heyrnartól úti í sjoppu (nema í
neyð) eða Bluetooth-hátalara
sem felldir eru í kókdós eða
álíka umbúðir. Ég kíkti á tvö
apparöt frá Sony sem eru ekki
ýkja dýr, en ná að sameina
hagræði og hljómgæði.
SRS-X55-hátalarinn er meðal
annars merkilegur fyrir það að
hann styður LDAC-tækni, sem
Sony hefur kynnt og felst í
því að tónlistinni er þjappað á fullkomnari hátt en
tíðkast í Bluetooth-apparötum almennt. Alla
jafna nota menn SBC-þjöppun, sem er staðall í
Bluetooth, en fyrir vikið tapast eitthvað af
hljómgæðum þegar unnið er með hágæðastraum.
Þetta er eðlilega ekki mál þegar uppruninn er
geisladiskur, 44,1 kHz / 16 bita, en þegar
straumurinn er orðinn 96kHz / 24 bita, það sem
yfirleitt er kallað Hi-Res þar sem meiri upplýs-
ingar eru notaðar til að vista tónlistina á stafrænu
sniði, snýr SBC-staðallinn straumnum yfir í 44,1
kHz / 16 bita og gæðin minnka eðlilega við það.
Nú halda einhverjir að þetta geti varla skipt höfuð-
máli í ljósi þess að verið er að streyma músík í tæki
sem er ekki nema 22,1 x 11,8 sentímetrar að stærð og x
5,1 cm að þykkt. Má vera rétt, en þeir sem heyra mun-
inn á þessu tvennu, og það eru ekki allir, sætta sig illa
við að tapa gæðum sem greitt er fyrir.
Hljómur í SRS-X55-hátalaranum er merkilega góður,
stórmerkilega góður reyndar, og setti alla Bluetooth-
hátalara sem ég hafði prófað fram að þessu í mjög dap-
urlegt ljós. Á bak við grillið að framan eru þrír há-
talarar og tveir bassahátalarar að aftan
sem skýrir hljóminn að mestu
leyti, en væntanlega skipt-
ir líka máli hversu
traustbyggður hann er
og þungur, ríflega kíló
að þyngd. Hann nem-
ur sendingu frá allt að
tíu metra fjarlægð, en
það er líka hljóðinntak
og rafhlaðan dugir í
allt að tíu tíma eftir
því hversu hátt er
spilað. Svo er líka
hægt að taka við sím-
tölum í gegnum hátal-
arann og já, hlaða
símann líka, ef vill – á
honum er USB-tengi
fyrir straum út.
Hátalarinn styður
NFC og því ein-
staklega auðvelt að
para hann við síma, ég
lagði símann bara upp að
honum og samþykkti pörun; tók
ekki nema nokkrar sekúndur.
SRS-X55 kostar 24.990 kr. í vefverslun Nýherja (til-
boðsverð).
Hitt Sony-tólið er heyrnartól, MDR-7510 nánar tiltekið,
lokuð heyrnartól og nett, býsna létt og fara einstaklega
vel á höfði – þegar ég hafði sett þau upp dauðlangaði
mig til að henda Shure-hlunkunum mínum með sinni fá-
ránlega þungu gormasnúru.
MDR-7510 er kynnt sem heyrnartól fyrir atvinnumenn
og á netinu má finna vitnisburð ýmissa sem lofsyngja
þau og segjast atvinnumenn. Sem almennur notandi gef
ég þeim fyrstu einkunn fyrir hljóm, hann er tær og
góður, virkaði reyndar eilítið flatur til að byrja með en
eftir því sem ég vandist heyrnartólunum kunni ég betur
að meta þau. Bassinn er einkar náttúrulegur og tær,
heyrist vel í góðri þungarokkkeyrslu, nú eða bassaleðju-
rappi.
MDR-7510-heyrnartólin standast vissulega ekki snúning
spariheyrnartólum, en kosta líka ekki nema brot af því
sem bestu slík tól kosta. Snúran er gormasnúra, um þrír
metrar þegar búið er að teygja úr henni. Eftir að hafa
vanist því að geta skipt um snúrur (eins og á Senn-
heiser og Shure) sakna ég þess að það sé ekki hægt.
Sony MDR-7510 kostar 29.900 kr. í vefverslun Ný-
herja.
HAGRÆÐI OG HLJÓMGÆÐI
VÍST ER GOTT AÐ HAFA FULLT AF MÚSÍK Í
VASANUM, Í BÍLNUM EÐA Í SUMARBÚ-
STAÐNUM, EN OF ALGENGT ER AÐ FÓLK
FÓRNI HLJÓMGÆÐUM FYRIR HAGRÆÐI,
SÆTTI SIG VIÐ DÓSAHLJÓM, SUÐ, BRAK OG
BRESTI TIL ÞESS EINS AÐ GETA HLUSTAÐ Á
FERÐINNI. TIL ERU ÞÓ TÆKI SEM GERA LÍFIÐ
AÐEINS BETRA AÐ ÞESSU LEYTI, HEYRN-
ARTÓL OG FERÐAHÁTALARAR SEM SKILA
SKAMMLAUSUM HLJÓMI
Græjan
ÁRNI
MATTHÍASSON
Sjá útsölustaði Crabtree & Evelyn á www.heggis.is