Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.11.2015, Blaðsíða 26
Takið pastaafganga og notið í gómsætt salat.
Blandið saman við pestó úr krukku, setjið smá
auka hvítlauk og rífið parmesan yfir. Notið græn-
meti úr ísskápnum að eigin vali, t.d. papriku, tóm-
ata, ruccola en einnig má setja út í parmaskinku
eða annað sniðugt úr ísskápnum. Berið fram með
heitu brauði. Frábært að setja í lokað plastílát og
hafa með sem nesti í vinnuna eða skólann.
↑ Pastasalat
Óskar Finnsson
sýnir listir sínar
í eldhúsinu.
KORTER Í KVÖLDMAT
Guðdóm-
legt pasta í
öll mál
Uppskriftina að
sjávarréttapasta
má finna á mbl.is.
ÓSKAR FINNSSON HELD-
UR ÁFRAM AÐ KENNA ÍS-
LENDINGUM AÐ ELDA
FLJÓTLEGAN OG BRAGÐ-
GÓÐAN KVÖLDMAT OG
EKKI SÍÐUR HVERNIG Á
AÐ NÝTA AFGANGA. Á MBL.IS
ELDAÐI ÓSKAR DÝRINDIS SJÁVARRÉTTAPASTA
MEÐ TÍGRISRÆKJU OG FISKI EN UPPISTAÐAN Í
SÓSUNNI VAR GRÍMS HUMARSÚPA BÆTT MEÐ
HVÍTLAUK, RJÓMA OG CHILLI. ÓSKAR MÆLIR
MEÐ AÐ GERA RÍFLEGA AF PASTA ÞVÍ NÝTA MÁ
ÞAÐ Í AÐRA RÉTTI SEM HÉR ERU SÝNDIR.
Myndir og texti:
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Matur
og drykkir
Morgunblaðið/Ásdís
*Hér gefur Óskari Finnsson uppskrift af veislu-máltíð sem tekur aðeins 10 mínútur að matbúa.Notaðu afgangs pasta eða sjóddu nýtt. Steiktusveppi upp úr smjöri með smá salti og pipar,helltu svo smá rjóma á pönnuna og láttukrauma. Helltu þessu yfir pasta og blandaðu vel.Skvettu teskeið til matskeið af truffluolíu yfir og
þá ertu kominn með veislumat. Berðu fram með
góðu baguette brauði.
Nokkrir dropar af truffluolíu
↓ Ostarjómapasta
Í þessari einföldu uppskrift mælir Óskar með því að nota af-
ganginn af soðnu pasta og búa til ljúffengan rétt sem allir í
fjölskyldunni munu elska. Hitið upp pastaafganga. Takið osta
úr ísskáp eða frysti og bræðið þá í potti í 3 mín. með einum
kjúklingateningi og hálfum dl rjóma. Blandið öllu saman og
berið fram með hvítlauksbrauði eða heitu baguette-brauði.
Skreytið með skornum tómötum og basil. Frábært að setja í
plastílát og hafa með sem nesti í vinnuna.