Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.11.2015, Blaðsíða 8
Íslenska hipp-
hopp-senan í i-D
Meðal annars er fjallað um Reykjavíkurdætur í greininni í tímaritinu i-D.
Breska tímaritið i-D, gjarnan kall-
að tísku- og lífsstílsbiblía Breta, tók
saman í gær sjö íslenska hipphopp-
tónlistarmenn og hljómsveitir sem
tímaritið segir að lesendur verði að
kynna sér.
Þetta eru þeir félagar í Úlfi úlfi,
Reykjavíkurdætur, Gísli Pálmi og
Glacier Mafían, Lord Pusswhip,
Emmsjé Gauti, GKR og Sturla Atlas
og 101 Boys. Blaðamaður i-D segist
hafa farið á tónleika með Reykja-
víkurdætrum og hann dáist að
framgöngu þeirra þar sem hörð
ádeila birtist oft í lagatextum
þeirra.
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.11. 2015
Í samfélaginu er nú að myndast stemning fyrirþví að hægt sé að útrýma flestum vandamálummeð verkfræðilegum lausnum. Svokallað höfr-
ungahlaup á vinnumarkaði verði liðin tíð með nýrri
tækni við kjarasamninga þar sem allir fallast á það
á þjóðarsáttarvísu að launahækkanir verði aldrei
meiri en útflutningsgreinar telja sér fært að greiða.
Hlegið er að okkur sem fannst höfrungahlaupið á
liðnu ári hafa verið til góðs, hrist upp í þjóðfélaginu
og lækkað rostann í atvinnurekendum sem aðeins
kunna að hugsa stórt fyrir sjálfa sig.
Og nú eru það ríkisfjármálin. Frumvarp um op-
inber fjármál nýtur mikillar hylli á Alþingi. Það er
klæðskerasaumað af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og
bindur í lög að hið opinbera megi ekki taka lán sem
neinu nemur – helmingi lægra þak en Evrópusam-
bandið negldi inn í Maastricht-skilyrðin – og er þar
með opnuð leiðin fyrir einkafjármagnið, sem býr
við engin slík skuldaþök, að hefja aukna sókn inn í
velferðarþjónustuna.
Samfélagsverkfræðingarnir sem hönnuðu her-
legheitin segja okkur að hér eftir eigi Alþingi að-
eins að sinna stóru línunum, ákveða fjárframlag til
heilla málaflokka en ráðuneytin síðan að útdeila til
stofnana. Allt eigi þetta þó að gerast undir ströngu
eftirliti „Fjármálaráðs“. Það skal skipað þremur
„óvilhöllum“ einstaklingum með þekkingu á rík-
isfjármálum. Og vel að merkja, þeir skulu hafa há-
skólamenntun. Þetta gleymdist í upphaflegum
frumvarpstexta en nú er komin fram breyting-
artillaga þar sem úr þessu er bætt. Að vísu vitum
við ekki hvort sú menntun skuli vera verkfræði,
hagfræði, danska eða siðfræði.
Varla það síðasta. Því þetta frumvarp fjallar ekki
um neitt nema peninga. Það hefur alveg gleymst að
geta þess að Alþingi beri að horfa til annarra laga
en fjárlaga einna. Þess vegna verður engin eftirlits-
nefnd til að passa upp á lagalegan rétt til heilbrigð-
isþjónustu, húsnæðis og svo framvegis. Og það sem
ég sé fyrir mér er að sú umræða sem á hverju ári
hefur orðið um einstakar stofnanir og byggðarlög í
tengslum við fjárlögin, muni hverfa inn í ráðuneytin
og þar með verður klippt á mikilvægan lýðræð-
islegan naflastreng.
Að vísu fjalla nokkrar lagaklásúlur um hvernig
hægt verður að flytja verkefni á milli áður sam-
þykktra liða fjárlaga og hvernig skuli bera sig að í
pappírslegu tilliti í því efni. Það er hins vegar flókið
ferli.
Ekki er að undra að nýja nálgunin við fjár-
lagagerð kalli á hálfan milljarð í aukum útgjöldum í
stefnumörkun, áætlanagerð, stjórnun, eftirliti,
reikningshaldi, skýrslugerð, hagstjórn og eftirliti
með henni, upplýsingakerfi og áætlanakerfi, svo
vitnað sé í aðdáunarfulla álitsgerð fjármálaskrif-
stofu fjármálaráðuneytisins um frumvarpið.
Í umræðu um málið var spurt hvort þetta væri
viðbótarskostnaður. Framsögumaður taldi að hægt
væri að hagræða á móti. Til dæmis mætti fækka
fjármálaskrifstofum ráðuneyta og hafa bara eina:
Fjármálastofnun ríkisins! Kannski mætti finna
henni verustað í pappírspíramídanum sem nú verð-
ur augljóslega til í Stjórnarráði Íslands.
Pólitíkusar og pappírspíramídar
* Það hefur alveg gleymstað geta þess að Alþingiberi að horfa til annarra laga
en fjárlaga einna.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
Rithöfundurinn Andri Snær
Magnason spurði facebookvini
sína í gær: „Dreymdi orð í nótt (í
alvöru): Silfurskeiðarbólga. Kann-
ast hlustendur við
þetta orð?“ Jón
Ólafsson tónlist-
armaður svarar að
bragði: „Í spjalli
mínu við Eivöru
Pálsdóttur á dögunum kom upp
orðið sinaskeiðabólga. Hún hélt ég
hefði sagt svínaskeiðabólga.“ Og
bætir svo við:
„Silfurskeiðabólg-
an er einna mest í
Garðabænum er
mér sagt.“
Í vikunni var það
tilkynnt að rafræn
stjórnsýsla myndi leysa fyrirbærið
skattkort af hólmi um næstkom-
andi áramót. Margir urðu til þess
að fagna þessu, meðal annars ritari
Sjálfstæðisflokksins og laganeminn
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
sem skrifaði á Twitter: „Loksins
kveðjum við skattkortin, áramótin
2015-2016. Tímabært. Löngu
löngu löngu tímabært. Bless
pappírsdraslvesen!“
Og í vikunni var
greint frá því að
Katrín Jakobs-
dóttir væri sú
kona sem oftast er
í viðtölum í frétt-
um RÚV, Stöðvar
2 og Bylgjunnar en þetta var niður-
staða könnunar Creditinfo. Af
þessu tilefni smellti Katrín fréttinni
inn á facebook-
vegg sinn og skrif-
aði: „Hljómar eins
og ég sé afar yfir-
þyrmandi!“
Facebookvinir
hennar tóku lítt
undir það og
Bergþór Pálsson óperusöngvari
skrifaði: „Sumir eru bara vinsælli en
aðrir. Þú ert yfirveguð með báða
fætur á jörðinni, hvellskýr í fram-
setningu og virðist geta allt, hvort
sem fólk er sammála þér eða ekki.
Það er ekki yfirþyrmandi í miklu
magni.“
AF NETINU
Breska vefsíðan City Metric
skrifar í grein sem birtist í
vikunni um borgir sem kalla
megi tónlistarlegar „ofur-
stjörnur“ og hvernig þær
verða það.
Reykjavík er þar nefnd til
sögunnar og Björk þar að
sjálfsögðu sögð þekktasta
vörumerki Íslendinga í tónlist
ásamt Sigur Rós. Smæð sam-
félagsins er sögð í raun hjálpa
til við að gera Reykjavík að
því sem hún er í tónlist og
tónlistarhátíðin Airwaves hafi
gert sitt til að koma Reykja-
vík á kortið sem suðupunkti
tónlistar. Höfuðborgin okkar er suðupunktur tónlistar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reykjavík
ofurstjarna
í tónlist
Vettvangur