Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.11.2015, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.11. 2015
Fyrirtækið sem annaðist
könnun Sun, Survation, for-
dæmdi fyrirsögnina. Það
sagðist andmæla því eindreg-
ið að niðurstöðurnar væru
notaðar, eins og sést hefði á
samskiptamiðlum, til að ýta
undir spennu á sviði trúmála
og kynþáttar.
En skaut Sun langt fram hjá
markinu? Í grein blaðsins er
vitnað í Sadiq Khan, múslíma
og borgarstjóraefni Verka-
mannaflokksins í Lond-
on. „Eins og könnun
Sun sýnir hafa flestir
breskir múslímar
rekist á einhvern
með róttæk við-
horf – og það sama
á við um
mig.“
Flest fórnarlömb Ríkis íslams,al-Qaeda og annarra slíkrahryðjuverkasamtaka sem
kenna sig við íslam, eru múslímar.
Meðal þeirra 130 sem dóu í París
voru nokkrir múslímar og nokkrir
tugir í New York 2001. Fátt bendir
til þess vestrænir múslímar styðji
almennt hryðjuverk jihadista, frem-
ur en annað fólk. Slíkir ein-
staklingar eru undantekningar.
Kannanir á viðhorfum múslíma í
Evrópuríkjum hafa hins vegar árum
saman sýnt að skoðanir verulegs
hluta (og stundum meirihluta)
þeirra á ýmsum málum virðast
stangast illilega á við vestræn lýð-
ræðisgildi, mannréttindi, jafnrétti
kynjanna o.fl.
Allur þorri evrópskra er löghlýðið
fólk sem reynir eftir bestu getu að
lifa samkvæmt geðugustu hlutum
kóransins um mildi og frið. Og
andúð á ofbeldi. En bent er á að
útbreidd þröngsýni, fáfræði og
afturhald í fátækustu gettóum
múslíma séu jarðvegur fyrir blint
ofstæki. Gott dæmi er Molenbeek-
hverfið í Brussel, sjálfur borg-
arstjóri hverfisins hefur sagt að það
sé „uppeldisstöð ofbeldis“, þaðan
komu árásarmennirnir í París.
Fátækrahverfi hafa oft einkennst af
ofbeldi. En þar hafa ekki áður
sprottið upp skipulagðir hópar sem
hafa fyrir stefnu að fremja fjölda-
morð á saklausum borgurum.
Áróðurinn, einkum á netinu, hef-
ur heillað suma unga múslíma á
Vesturlöndum. En þegar beinlínis
er spurt segja langflestir að þeir
hafi andstyggð á IS og öðrum jihad-
istum. Harðlínuklerkar eins og
ímaminn í Grimshøj-moskunni í Ár-
ósum í Danmörku hafa verið ann-
arrar skoðunar. Umskipti urðu þó
nýverið þegar hann lýsti því yfir að
hann styddi ekki IS, væri nú „hlut-
laus“ gagnvart samtökunum. Ein-
hverjum létti við það.
En hvernig á að mæla stuðning-
inn við IS? Breska dagblaðið Sun
birti í vikunni forsíðufrétt með fyr-
irsögninni „Einn af hverjum fimm
breskum múslímum hefur samúð
með jihadistum“.
Sun er ekki þekkt fyrir varkárni
og augljóst er að fregnin var mjög
hæpin túlkun á niðurstöðum skoð-
anakönnunar sem blaðið hafði látið
gera meðal liðlega þúsund múslíma.
Þar var spurt hvort viðkomandi
hefði „samúð með ungum múslímum
sem yfirgefa Bretland til að berjast
með vígamönnum í Sýrlandi“.
Spurningin var allt of opin, hægt
að misskilja hana. Var fólkið
kannski að segja að það hefði samúð
með þeim sem farið hafa til að berj-
ast með Kúrdum gegn IS? Og
samúð er teygjanlegt hug-
tak, getur þýtt að fólkið
skilji aulaháttinn í fáfróðum ung-
mennum, strákum og stelpum. En
ekki endilega að það hafi samúð
með málstað IS.
Fóður fyrir ofstæki
Blaðið hefur beðist afsökunar á fyr-
irsögninni en málið sýnir vel það
einstigi sem fjölmiðlar verða að
þræða. Málefni múslíma og innflytj-
enda eru viðkvæm, ekki síst eftir
hryðjuverk síðustu vikna í álfunni.
Auðvelt er að gera þau að fóðri fyr-
ir ofstækisöfl. Til er fólk sem heimt-
ar nú í nafni pólitískrar rétthugs-
unar að þagað sé um allt sem finna
má að múslímum, neitar að IS teng-
ist á nokkurn hátt íslam. Þessi krafa
um þöggun er auðvitað ein gerð of-
stækis. Ofsatrú sumra kristinna
„tengist“ auðvitað kristni, hvort sem
okkur líkar betur eða verr, rétt eins
og ofsatrú íslamista „tengist“ íslam.
Það segir ekki alla söguna um
hugarfar múslíma almennt þótt ein-
hverjir þeirra segist hafa samúð
með vígamönnum, segist jafnvel
styðja IS. Og hvað um aðra Breta?
„Þar sem vitað er að ávallt er til
verulegur minnihluti sem er sam-
mála hvaða brjálæðislegu fullyrð-
ingu sem sett er fram – Elvis er
enn á lífi, geislasverð eru til – hvað
ættum við þá að leggja mikið upp
úr könnunum sem sagt er að sýni
vísi að breskum jihadisma?“ spyr
Isabel Hardman í grein í tímaritinu
Spectator. Hún segir að sjaldan sé
minnst á aðra könnun í mars sl. Þar
hafi verið lögð sama spurning og
notuð var í könnuninni fyrir Sun,
um samúðina, fyrir aðra Breta en
múslíma. Einn af hverjum sex hafi
svarað játandi, svipað hlutfall og hjá
múslímunm.
Í vikunni var svo sama spurning
lögð fyrir fólk í könnun YouGov í
Bretlandi, segir Hardman. 10%
sögðust hafa umrædda samúð með
þeim sem færu til Sýrlands og hlut-
fallið var heil 17% meðal kjósenda
Frjálslyndra demókrata.
Er hann Elvis
kannski
enn á lífi?
SKOÐANAKANNANIR ERU VARASAMAR AÐ ÞVÍ LEYTI AÐ
AUÐVELT GETUR VERIÐ AÐ SPYRJA ÞANNIG AÐ NIÐ-
URSTAÐAN HENTI ÞEIM SEM VILL FÁ SÖNNUN FYRIR EIGIN
VIÐHORFI. ORÐALAGIÐ GETUR SKIPT ÖLLU MÁLI.
MISNOTKUN
Víða hafa evrópskir múslímar mótmælt hryðjuverkum. Blóm og kerti við franska sendiráðið í Berlín eftir hryðjuverkin
mannskæðu í París. Á blaðinu stendur „Ekki í okkar nafni“, undiritað: múslímar og sýrlenskir flóttamenn í Berlín.
AFP
*Ofstæki er svo auðvelt. Þú hefur bara skoðun. Ekkimikil þörf á hugsun. Og þegar maður fer nógu langt tilhægri hittir maður fyrir sams konar bjána til vinstri.
Clint Eastwood kvikmyndaleikari.
Alþjóðamál
KRISTJÁN JÓNSSON
kjon@mbl.is
HEIMURINN
yfirstétt
Ahmed
loftárásir á stöðvar IS í