Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.11.2015, Page 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.11.2015, Page 21
þýska hrundi af því að Sovétríkin gátu ekki meir og hrundu og allt hrundi þetta vegna þess að almið- stýrt efnahagskerfi gengur ekki til lengdar.“ Merkel er ekki neyðarbrauð Þýskaland nútímans er forysturíki í Evrópu, segir Svavar, og það öfl- ugasta í ESB. Þegar á reyni sé Þýskaland alltaf í eldlínunni og nú taki Þjóðverjar á málum flótta- manna af myndarskap. „Flóttamannastraumurinn nú er aðeins byrjunin. Við munum taka við æ fleira fólki á næstu áratug- um. Þegar Angela Merkel kom til áhrifa og varð leiðtogi CDU þótti ýmsum það vera neyðarbrauð. En annað hefur komið í ljós. Eftir langan tíma í kanslaraembætti skoraði hún yfir 70% í skoðana- könnunum um síðustu áramót. Núna er hún komin niður í 50% en enginn kemst nálægt henni. Svo sterk er hún og hefur afsann- að dómsdagsspár. Það er ekki annað hægt en að dást að henni.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Dómkirkjan í Berlín stendur á bökkum árinnar Spree sem fljóta- bátur með farþega siglir um. Til vinstri er prússneska konungshöllin sem er verið að endurbyggja. Berlínarbörn á gangi. Stundum er sagt að þjóðfélagsástandi verði kannski best lýst með svip barnanna og hvernig að þeim er búið. Hér virðist allt í þessu fína. 29.11. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21 „Sagan, menningin og þau hugmyndafræðilegu átök sem hafa átt sér þar stað er það sem mest heillar mig við sögu Berlínar,“ segir Svavar Gestsson. „Við vinstrimenn getum lært margt af Þýskalandi, meðal annars það að klofningur verkalýðsflokkanna var ein ástæðan til þess að Hitler komst til valda. Stærsta ástæðan voru þó Versala- samningarnir og ábyrgðar- grein þeirra.“ Svavar Gestsson á langan og litríkan feril að baki. Fyrr á árum var hann rit- stjóri Þjóðviljans, en síðan lengi alþingismaður og ráð- herra og síðast sendiherra Íslendinga í Kanada, Svíþjóð og Kaupmannahöfn. Hann segir að ef út í það sé far- ið sé inntak þessara starfa ekki svo ólíkt. „Ég lenti í því fyrir til- viljun að fara þessa ferð til Staðreyndir og umhverfi HEFUR VERIÐ FARARSTJÓRI ALLA ÆVI Berlínar; krakkarnir mínir fóru með mig og með mér til Berlínar síðastliðið vor og borgin er mér hugstæð. Vinur minn, Skarphéðinn Berg Steinarsson, sem var þá forstjóri Úrvals-Útsýnar, bað mig svo að taka eina ferð. Ég gerði þetta eig- inlega fyrir hann,“ segir Svavar og heldur áfram: Safna liði um málstað „Jú, stjórnmálamaður er far- arstjóri á sinn hátt og það er sendiherra líka. Alltaf að safna liði um málstað hreyf- ingar eða þjóðar og að vekja athygli á staðreyndum og umhverfi. Ég hef svo verið fararstjóri í eiginlegri merkingu þess orðs í hjá- verkum alla ævi,“ segir Svav- ar, sem hefur á síðustu ár- um farið með útlendinga um Ísland og á Íslendingaslóðir í Vesturheimi og stefnir þang- að aftur næsta vor. Berlínarmúrinn, jártjaldið sjálft, er vinsæll viðkomu- staður. Nýlegar glæsibygg- ingar eru í nágrenni hans. Umferðarmiðstöðin BSÍ • 101 Reykjavík • 580 5400 • main@re.is • www.flugrutan.is • www.re.is BSÍ - Umferðarmiðstöðin Reykjavík Keflavíkurflugvöllur Kauptu miða núna á www.flugrutan.is *Miðast við að keyptur sé miði fram og til baka frá BSÍ eða Keflavíkurflugvelli á 4.000 kr. 2.000 kr.* FYRIR AÐEINS Alltaf laus sæti Alltaf ferðir Hagkvæmur kostur Frí þráðlaus internet- tenging í öllum bílum Ferðatími u.þ.b. 45 mínútur Umhverfisvænt VIÐ SKUTLUM ÞÉR! Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar komur & brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.