Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.11.2015, Qupperneq 43
Rannsóknarsetur verslunarinnar
hefur síðustu árin valið jólagjafir árs-
ins og hafa þær verið alla vega. Í ár
er til dæmis búið að velja þráð-
lausa hátalara eða heyrnartól
sem gjöf ársins. Í fyrra var það
nytjalist sem var valin, árið þar á
undan lífsstílsbók, 2010 var það
lopapeysa og strax eftir hrun, árið
2009, var það einfaldlega „jákvæð
upplifun“. Rannsóknarsetrið hefur
staðið fyrir þessu vali með sérstakri
dómnefnd frá árinu 2006 en þess
má geta að árin 2007 var gjöfin
GSM-staðsetningartæki og
2006 ávaxta- og grænmeti-
spressa. Áhrifa mínímalíska lífsstíls-
ins virðast vera farið að gæta og má
víða heyra á það minnst að fólk ætli
að gefa gjöf ársins 2009; upplifun.
Síðustu árin
Frá grænmetispressu
til heyrnartóla
Gjafakort eru með algengari jóla-
gjöfum dagsins í dag en það er þó
ekki ýkja langt síðan þau þóttu
fremur furðulegar jólagjafir. Á 10.
áratugnum fór fólk í auknum mæli
að leysa jólagjafavandræðin með
gjafakortum en í byrjun voru þau
einna helst inneign í einhvers kon-
ar snyrtimeðferð eða nudd en
stundum var eitthvað frumlegra
gefið. Á 10. áratugnum var ómæld
virðing borin fyrir fyrirbærinu
„fyrirsæta“ enda komust þær þá
jafnvel fram fyrir raðirnar á
skemmtistöðum. Fyrirsætu-
námskeið hjá fyrirsætuskrif-
stofum á borð við Eskimo Models
og módelskóla John Casablancas
voru mjög vinsæl á þessum tíma
þar sem pósur og tískusýninga-
göngur voru kenndar. Jólagjöf árs-
ins 1995 var einmitt sniðin fyrir
framtíðarvonarstjörnur í karlkyns-
fyrirsætuheiminum.
Útlitstengdur varningur tók
ákveðnum stakkaskiptum á þess-
um árum og meðal nýjunga voru
undrabrjóstahaldarar sem
þrýstu brjóstunum upp að höku
og slógu í gegn.
Í takt við tímann náði Verð-
bréfaspilið vinsældum í upphafi
áratugarins og eins og oft áður
varð talandi leikfang vinsælt en eft-
irspurnin eftir loðdýrinu Furby
var slík að búast mátti við handa-
lögmálum í búðum fyrir jólin. Tæk-
jaglaðir máttu eiga von á að fá eitt
stykki „Gufugæja“ í pakkann sem
var einfaldlega ferðagufustraujárn.
Þá urðu svokallaðar gjafakörfur
feikivinsælar, annaðhvort fullar af
tei, kaffi og sælkeravörum eða
snyrtivörum úr Body Shop.
10. áratugurinn
Undrahaldarar, gjafabréf og Gufugæinn
29.11. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43
Með vinsælli jólagjöfum fyrr og síð-
ar eru sloppar og það breyttist
ekkert þótt útvíðar buxur og hip-
paskart færi að sjást undir jóla-
trénu. Á 8. áratugnum var meira að
segja sérstök verslun, Sloppabúðin
við Laugaveg, með nær aðeins
sloppa á boðstólum; velúrsloppa,
frottesloppa, vattsloppa, sjón-
varpssloppa, ballsloppa, helgar-
sloppa, barnasloppa, herrasloppa
og ótal fleiri tegundir.
8. áratugurinn er líka mikil bylt-
ingum í barnajólagjöfum en þá fara
fyrstu leikjatölvurnar að sjást sem
þá kölluðust sjónvarpsleiktæki;
enda tengd við sjónvörpin. Í þess-
um tölvum mátti með tveimur fjar-
stýringum leika fjórar íþróttagrein-
ar, meðal annars knattspyrnu og
tennis.
Þá varð útvarpsvekjaraklukka
kölluð „meistarastykki“ jólagjaf-
anna á þessum árum; eitt tæki sem
sameinaði klukku, útvarp og jafnvel
kassettutæki. Eða eins og sagði í
auglýsingu frá Karnabæ: „Rekkju-
nauturinn frá SHARP er útvarps-
klukka, sem svæfir þig á kvöldin
með ómum góðrar tónlistar. Þegar
þú ert kominn í draumalandið þá
slekkur rekkjunauturinn á útvarp-
inu án þess þó, að sofna sjálfur, því
hann vekur þig aftur að morgni,
hvort sem þú vilt með útvarpinu,
suði eða hvoru tveggja.“
8. áratugurinn
Sloppar fyrir öll tilefni og
sjónvarpsleiktæki með íþróttagreinum
Segja má að bylting hafi orðið í ým-
iss konar tækjum til vellíðunar og
nudds á 9. áratugnum þegar ýmis
konar líkamsnuddtæki urðu vin-
sæl, og þá ekki síst til jólagjafa.
Voru þar vinsæl tæki frá merkj-
um eins og Clairol og Bolero. Sum-
um tækjunum mátti halda á og sitja
við sjónvarpið og færa yfir
svæði alls líkamans en önn-
ur, svo sem Bolero, átti að
tengja við blöndunartækin
í sturtunni.
Þá urðu segultöflin að
skáktölvum og vogir
urðu tölvuvogir, pol-
aroid-myndavélarnar
viku fyrir vídeó-
upptöku-
vélum. Og
gleymum
ekki geisla-
spilurunum
– jólagjöf ársins ár
eftir ár. Gleymum ekki „Litla
ljósálfinum“, lítill lampi til að festa
við bækur og lesa uppi í rúmi án
þess að vekja hina.
Reglulega slá ákveðnar fígúrur í
gegn hjá yngstu kynslóðunum. Um
miðjan 9. áratuginn var það
Bangsi bestaskinn, talandi
og syngjandi á íslensku.
9. áratugurinn var þá
áratugur nýrra borðs-
pila en eftir að Trivial
pursuit kom á jóla-
markaðinn 1985
reyndu ýmsir fyrir sér
í að gefa út spil fyrir
jólin. Pictionary
var æði
ársins
1989 og
spilið
„Undir
sólinni“ það
sama ár.
9. áratugurinn
Ný borðspil og líkamsnudd