Víkurfréttir - 18.12.1986, Page 6
JÓLABLAÐ
VÍKUR-fréttir
orðvar-----------
„Frá fermingu
níræðs“
Það getur verið þarfleg
og skemmtileg tilbreyting
að bregða sér í spilavist
með sér eldri borgurum á
fimmtudagskvöldum öðru
hvoru. Þessir öldruðu eru
allt frá fermingu til
niræðs. Spilamennskan
virðist vera nánast auka-
atriði hjá mörgum. Aðal-
atriðið er að sýna sig og
sjá aðra, sem rauna er full-
gild ástæða til að mæta á
staðinn. Umræður yfir
spilunum eru fjörugar og
snúast um allt milli him-
ins og jarðar, frá barna-
barnabörnunum upp í
heilsurækt og mataræði.
Þó hér sé samhentur hóp-
ur, sem þekkst hefur ára-
tugum saman, er alltaf
einn og einn sem sker sig
úr, sem betur fer.
Þetta fimmtudagskvöld
vakti einna mesta athygli
maður um 75 ára gamall,
snaggaralegur og þráð-
beinn í baki. Hann var ný-
kominn í hóp hinna öldr-
uðu og hafði enn rangt við í
spilunum. Hann kvaðst
hafa unnið fulla vinnu
þangað til fyrir 5 mánuðum,
að hann fékk einhver ónot
fyrir hjartað og varð að
hætta störfum þess vegna.
Einhverra hluta vegna
fannst honum, að hann
ætti ekki heima innan um
þessi gamalmenni, eins og
hann orðaði það. Gerði
þetta fyrir konuna sína,
sem er 7 árum yngri, hafði
meira að segja ekki sleppt
úr einni samkomu síðan
hann byrjaði á þessu. Nú
var hann ákveðinn í að
kaupa trillu í vor og róa á
handfæri í sumar. Með
ógurlegri hægri handar
sveiflu tók hann síðasta
slaginn í grandslemmu.
Meðan beðið var eftir að
spilið kláraðist á hinum
borðunum, lýsti hann því
yfir að það ætti ekki við sig
að vera í föndri, dansi og
bingóspilamennsku um
hábjartan daginn, þegar
aðrir væru að vinna. Mót-
spilari hans, talsvert yngri
kona, sussaði nú á hann og
sagði honum móðurlega
að æsa sig ekki svona.
Hann þyldi ekki alla þessa
karlrembu eins vel og
áður. Stóð hann þá upp og
færði sig að næsta borði.
Þar byrjaði hann strax að
kvarta yfir því að taiað
væri við sig núorðið eins og
hann væri smákrakki, eða í
3. persónu.
Seinna um kvöldið sagði
konan hans að hann léti
alltaf svona, en þetta væri í
fyrsta skipti á ævinni, sem
hann tæki þátt í einhverju
félagsstarfi, og venjulega
ætti hann frumkvæðið á að
fara eitthvað núorðið.
Kannski má hann ekkert
vera að því að róa á trill-
unni í vor fyrir spila-
mennsku.
Það var enginn asi á
spilafélögunum í leikslok.
Fólkið ræddi í rólegheitum
um væntanlegt jólahald,
til
eða 50-60-70 ára jóla-
minningar, sem greinilega
eru skýrustu æskuminn-
ingar flestra. Sá sem hlust-
ar, skynjar fljótt í þessum
félagsskap, að Ieikföng og
glysvarningur er ekki ofar-
lega á jólaóskalistanum,
heldur eftirvænting eftir
umhyggju og hlýju vina og
ættingja sem helst láta
hana aðeins í ljós einu sinni
á ári - á jólunum. Trúlega
gæti langömmu og langafa
þótt meira til um innilega
væntumþykju, auðsýnda
öðru hvoru með litlum
kossi á kinnina og hlýlegu
faðmlagi, heldur en öll önn-
ur auðæfi heimsins.
Hverju sem ár
og ókunnir dagar
að mér víkja,
er ekkert betra
en eiga vini
sem aldrei svíkja.
D. Sl.
ORÐVAR
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum viðskiplin á árinu.
Daihatsu- og Honda-
umboðið við
Reykjanesbraut
Gleðileg jól
Farsœlt komandi ár
Þökkum samstarfið á árinu.
Lögfræðiskrifstofa
Inga H. Sigurðssonar
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum viðskiplin á árinu.
Hár-Inn,
Hólmgarði 2
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu.
Hárgreiðslustofan,
Suðurgötu 33
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu.
Klippótek,
Hafnargötu 23
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum viðskiplin á árinu.
Húsgagnaverslunin
Útskálar hf.
Allt í jólamatinn frá SPARKAUP
09
N" ^y\ 0950
6W
Úrvals NAUTAKJÖT
ÚR KJÖTBORÐINU:
Mikið úrval af fersku kjöti
og réttum tilbúnum
í pottinn eða á pönnuna.
H*Ni
r/£>
03
'’<»Sðð°s
KONFEKT í úrvali E ins og venjulega - allt
á hagstæðu verði. jólaölið með 10% afslætti.
Velkomin í SPARKAUP - alltaf í leiðinni