Víkurfréttir - 18.12.1986, Blaðsíða 23
VIKUR-fréttir
JÓLABLAÐ
Fiktað við
Fiktarana
Hljómsveitin Fikt í viðtali við Smástund
I Kcflavík er starfandi hljómsveit sem ber hið skemmtilega nafn
FIKT. Blaðamaður hafði lengi fiktað við það að taka viðtal við
Fiktarana, og núna fyrir stuttu skellti hann sér í þá og tók þá tali. Er
blaðamaður kom á staðinn voru þeir að fíkta við gítaræfíngar.
Hér fáið þið að sjá árangurinn af viðtalinu:
Eruð þið ekki í jólaskapi?
„Við erum alltaf í jólaskapi,
er það ekki strákar?“
Hvað hefur hljómsveitin
spilað lengi saman?
„Hljómsveitin FIKT hefur
spilað saman í 4-5 mánuði.
Hún var stofnuð upp úr hljóm-
sveitinni „UNDIR ÁHRIF-
UM“, en við erum alltaf að
skipta um söngvara, þeir eru
alltaf að koma og fara“
Hvar komið þið aðallega
fram?
„Við höfum komið tvisvar
fram á vegum skólans. Við
ætlum að reyna að komast á
jólahátíðina í Stapa“.
En, strákar, hvaðan eruð
þið, ekki eruð þið allir úr Kefla-
vík?
„Við erum allir gallharðir
Keflvíkingar og erum stoltir af
því“.
Stundið þið nám í tónmenn-
un í skólanum?
„Við erum allir að læra tón-
mennt, nema söngvararnir,
þeir eru svo góðir“.
Nú á hljómsveitin ekki iang-
an feril að baki, en þið eigið
samt eitt lag á hljómplötu,
hvaða lag er það og á hvaða
plötu er lagið?
„Lagið heitir „KOMIÐ í
STUÐIГ og er á hljómplöt-
unni SKÝJABORGIR sem
gefin var út núna í haust“.
Hvernig er það, strákar, sló
lagið ekki í gegn um leið og það
kom út á plötu?
„Ja ... náði það ekki 6. sæti.
Fiktararnir miklu í Upptökuheimili Geimsteins.
. . það náði 7. sæti á vinsælda-
lista Holtaskóla núna í vetur“.
En vitiði til þess að lagið hafi
verið spilað í útvarpið?
„ . . . Nei . . . “
Hver samdi lagið vinsæla af
pltunni?
„Það voru þeir Bergur,
Björn og Júlli“.
Nú hafa flestar „skólahljóm-
sveitir“ sér einhverjar fyrir-
myndir, er málum þannig hátt-
að hjá ykkur?
„Fyrirmyndir? Ætli það séu
ekki U2 og bíddu . . A-HA og
gamlar rokkhljómsveitir“.
Hvaða æfingaaðstöðu hafíð
þið, strákar?
„Við höfum aðstöðu hérna í
Upptökuheimili Geimsteins".
Ætlið þið að halda áfram í
hljómsveitarbransanum þegar
þið verðið „stórir“?
„Að sjálfsögðu, Raggi ætlar
að gerast 12” sérfræðingur".
Nafn hljómsveitarinnar,
hvers vegna Fikt?
„Það datt út úr Birni, fyrr-
verandi trommuleikara hljóm-
sveitarinnar".
Nú hefur hljómsveitin líka
gengið undir því nafni, eða fólk
allavega haldið, að hún héti AS,
hvers vegna?
„Það er vegna þess að tveir
strákar héðan úr Keflavík
vildu fá að syngja á diskóteki
og þeir hétu Albert og Silli,
þess vegna kom nafnið AS til
sögunnar, við vorum bara
undirleikarar á þessum tón-
leikum“.
Eitthvað að lokum?
„Já, við viljum að bærinn
komi upp palli hér í Keflavík
til þess að hljómsveitir geti
komið fram og spilað. Ef að-
staðan væri fyrir hendi, þá
myndu örugglega fleiri hljóm-
sveitir spretta upp hérna í
Keflavík og fara að Fikta við
það að spila".
Gleðileg jól.
HBB.
Jólagjöfina færðu í
LOFTVOG
Sígild herragjöf
Kertastjakar og vasar
IRISH COFFEE LAMPAR
- glös og rör -mikið úrval
Vísdóms-uglan
jóla- eða stúdentsgjöf
OSTABAKKAR og SKÁLAR
- margar gerðir
Handunnarenskar
brúður, framleiddar af
Julian Froggett
^ísjbií&cj jóí
ocj j-ax±æll ízonaAi á%.
ópökdu m (JióiAijatin.