Víkurfréttir - 18.12.1986, Page 16
JÓLABLAÐ
VIKUR-fréttir
Stapafell hf.:
„Jólasalan
byrjaði fyrr
en áður“
- segir Hákon Kristinsson, sem stækk-
að hefur verslunina um tæpan helming
Stærsta vöruhúsið á Suður-
nesjum, sem hefur á boðstól-
um eingöngu aðra vöru en
matvöru og fatnað, er án efa
Stapafell hf. í Keflavík. í síð-
asta mánuði var þessi verslun
stækkuð nánast um helming,
og af því tilefni tókum við tali
eiganda verslunarinnar, Há-
kon Kristinsson.
Fyrst gefum við honum
orðið varðandi stækkun þessa:
„Húsnæði það sem við
vorum í varorðiðalltoflítiðog
því sérstaklega erfitt fyrir
starfsfólkið og óviðunandi
fyrir viðskiptavinina. Þess
vegna kom upp þessi hug-
mynd að stækka, og keypti ég
lóðina hér við hliðina, nr. 27a
við Hafnargötu. Þar hófum
við framkvæmdir í nóvember-
mánuði í fyrra og nú um
miðjan nóvember sl. tókum
við húsið í notkun, fyrstu
hæðina og kjallara. Er
húsnæðið 370-380 fermetrar
og stækkunin því um 90%
miðað við fyrra húsnæði.
Sú starfsemi sem við flutt-
um yfir í nýja húsnæðið eru
raftækin, hljómtækin og leik-
föngin. Með því að opna á
milli húsanna gátum við
komið á betri hagræðingu að
Hafnargötu 29 og ástandið þar
orðið viðunandi, þó enn sé
mikið eftir að gera þar.
Stendur til að taka eldra hús-
næðið í gegn, mála það, skipta
um gólfefni og innréttingarað
einhverjum hluta, ásamt því
Úr raftækjadeild. F.v.: Hákon Kristinsson, Óskar Jóhannsson og Magnús Jónsson.
sem við breytum deildarskipu-
lagningunni, s.s. ljósatækja-
deildinni.
I nýja hlutann fengum við
innréttingar frá Svíþjóð og eru
þær fyrstu sinnar tegundar frá
þessu fyrirtæki hér á landi, en
síðan hafa margir pantað þær.
Innréttingar þessar gefa mjög
mikla möguleika.
Við vonumst til að þessi
breyting verði fyrirtækinu til
góðs og stefnum að því, eins og
við höfum alltaf gert, að veita
trausta þjónustu á réttu verði.
Jafnframt eigum við von á að
þurfa að fjölga starfsfólki, og
er það af hinu góða“.
En, Hákon, hvernig leggst
jólasalan í þig?
„Hún leggst mjög vel í mig,
því hún hófst miklu fyrr í ár en
undanfarin ár, eða um 20. nóv-
ember, en hófst t.d. í fyrra ekki
fyrr en 13. desember. Þá er hún
meiri nú en áður, t.d. varð
salan í nóvember nú 50% meiri
en á sama tíma í fyrra. Er þetta
góð þróun, því það hefur verið
algjört víti fyrir okkur kaup-
menn, hvað salan hefur byrjað
seint undanfarin ár. Höfum
við þurft að liggja með lager
upp á 45-50 milljónir frá því í
september, sem hafa þurft að
greiðast á eins og hálfs mánað-
ar víxlum, sem hafa því fallið í
gjalddaga áður en jólasalan
hófst. Þá hefur salan nú aukist
mikið með kreditkortum, sem
kemur að hluta til í stað af-
borgunarviðskiptanna", sagði
Hákon Kristinsson kaupmað-
ur, að lokum. - epj.
Könnun gerð 12. des. 1986.
VERÐCÆStA
Könnun þessi var gerö af Verkalýös- og sjómannalélagi Keflavikur og ná-
grennis, Verkakvennaféiagi Keflavfkurog Njarövikur, Verslunarmanna-
félagl Suöurnesja og lönsvelnafélagl Suöurnesja.
Vörutegundir =orláksbúð 3arði Kaupfélagiö Sandgeroi Kaupfelagið Vogum
lCokteil ávextir (gold reef) 822gr 124.00 122.50 111.20
Aldin j arÖarberj agrautur 950gr 88.00 87.00 85.70
Kartöflumús Kokka 115gr 54.60 53.80 54.00
Þorskalýsi 220gr 84.00 .83.30 84.00
Orvals þykkvahmj arkartöflur 2kg 87.00 76.00 87.00
Hrökkbrauö Sesam 200gr 62.00 61.50 62.00
Royal karamellubúöingur 90 gr 28.00 28.50 28.10
Coke 1 1^2 lítri 92.00 90.00 85.00
Appelsín 1 1/2 lítri 92.00 90.00 85.00
Diletto kaffi 250gr 104.00 100.65 99.00
'Soda stream llítri.(Coke) 156.00 146.50 154.00
Johnson's baby s jampó 125ml 80.50 80.00 79.00
Brillo stálull 5+1 67.50 66.80 X
Johnson's Klar bón 500ml 204.00 222.50 214.80
Hársnyrtist. Edelon KlÍDDÓtek Rakara -og hársn. Harðar Rakarast. Raenars
Herraklipping 450.00 540.00 450-500 450.00
Dömuklipping 500.00 540.00 •500.00 X
Bamaklipping 380.00 410.00 að 10 ám 200-350 380.00
10-12 ára 350-400 X
Permanett (grunnverö, þ.e. án klippingar (stutt) 1300.00 (stutt) 1200.00 (stutt) 1050.00 X
og bíasturs) (sítt) 1590.00 (sitt) 1400.00 (sítt) 1300.00 X
Þær Margrét Einarsdóttir og Elinborg Benediktsdóttir sjá um leik-
fangadeildina.
í gjafavöru- og Ijósatækjadeild. F.v.: Guðrún Hákonardóttir, Haf-
dís Jóhannsdóttir, Erna Þórðardóttir og Valgerður Þorsteinsdóttir.