Víkurfréttir - 18.12.1986, Side 18
JÓLABLAÐ
VÍKUR-fréttir
Traffic
Mikið úrval af herrafatnaði, m.a.
jakkaföt frá kr. 6.500, skyrtur og
bindi í öllum litum. - Einnig
mikið úrval af
herra leðurjökkum.
Traffic
Mikið úrval af dömufatnaði, m.a.
kjólar, pils, blússur,
dömu-jakkaföt frá kr. 6.090.
Einnig mikið úrval af
dömu leðurjökkum.
Traffic
Hafnargötu 32, Keflavík, sími 1235
3§C* ÓDÝRU
% TOSHIBA
örbylgjuofnarnir
'S'&IP&ÍPEILIL
Keflavík - Sími 2300
Við óskum
Suðurnesja-
mönnum
GLEÐILEGRA JÓLA 0G
FARSÆLS KOMANDI ÁRS.
Aldrei er of brýnt fyrir fólki að fara varlega
með flugelda. Hjálpumst að við að láta jól
og áramót verða slysalaus.
„Hvernig stóðu
Suðurnesja-
menn sig í
íþróttum
á árinu?
- Nokkrir þekktir íþróttaáhugamenn svara þessari
spurningu og segja frá því markverðasta að þeirra mati
„Áttum fs-
landsmeistara
í judó"
- segir Eyjólfur Guð-
laugsson I Grindavík
„Þar er fyrst að nefna Is-
landsmeistarann okkar í
judó, Sigurð Hauksson.
Sigurður gerði sér Iítið fyrir
á síðasta Islandsmóti og
lagði judómanninn kunna,
Bjarna Frirðiksson í úrslita-
glímu“, sagði Eyjólfur Guð-
laugsson, varaformaður
körfuknattleiksdeildar
UMFG í Grindavík.
Eyjólfur sagði að mikill
uppgangur væri i körfu-
knattleiksíþróttinni um
þessar mundir. Ráðinn hefði
verið bandarískur þjálfari
og hefði koma hans stór-
aukið áhugann bæði hjá
þeim eldri og yngri. Þá
hefðu þeir endurheimt Guð-
mund Bragason frá Banda-
ríkjunum, þar hefði hann
leikið með liði í Fíladelfíu.
Hann hefði styrkt liðið
mjög og væri nú í landsliðs-
hópnum. Stefnan væri að
komast upp í úrvalsdeild-
ina og væri Grindavíkur-
liðið í toppbaráttunni um
þessar mundir ásamt IR og
Þór.^
„Ahugi á handknattleik
virðist nokkuð bundinn við
stúlkurnar í yngri flokkun-
um og áttum við t.d. Is-
landsmeistara í 4. flokki.
Við erum ekki komnir í
frestu röð í knattspyrnunni
en yngri flokkarnir lofa
góðu og urðu Suðurnesja-
meistarar í mörgum flokk-
um í sumar“. - bb.
„Uppsveifla
í körfu-
boltanum“
- segir Páll Jónsson
„Uppsveiflan í körfubolt-
anum er það sem gleður mig
einna mest og kemur þessi
ágæti árangur í kjölfar nýja
íþróttahússins okkar“ sagði
Páll Jónsson sparisjóðs-
stjóri. Páll sagði að hann
hefði orðið vonsvikinn með
árangur knattspyrnumanna
sem væri sú íþrótt sem hvað
mest höfðaði til sín. En sér
litist vel á framtíðina hjá
knattspyrnumönnum okk-
ar, nú væri búið að ráða nýj-
an þjálfara og sér virtust
kringumstæður gefa tilefni
til bjartsýni.
b b
„íslands-
mótið
í golfi"
- segir Sigurður
Steindórsson
„íslandsmótið í golfi er
fram fór í Leirunni í sumar
stendur mér efst í huga af
minnisstæðum atburðum af
vettvangi íþróttanna á því
ári sem nú er senn að
kveðja“, sagði Sigurður
Steindórsson skrifstofu-
maður. Sigurður hefur átt
mikinn þátt í uppbyggingu
íþróttalífs á Suðurnesjum og
var í mörg ár mikill íþrótta-
frömuður.
Sigurður sagði að fram-
kvæmd mótsins hefði verið
glæsileg og til mikillar fyrir-
myndar fyrir Suðurnesja-
menn. Kylfmgar okkar
hefðu lika staðið sig með
miklum ágætum á mótinu,
við hefðum átt tvo efstu
menn basði í 2. og 3. flokki.
Af keppendum hefði Högni
Gunnlaugsson komið sér
mest á óvart. Hann hefði nú
mætt til keppni eftir nokk-
urra ára hvíld, en gert sér lít-
ið fyrir og orðið efstur í sín-
um flokki.
b b