Víkurfréttir - 18.12.1986, Qupperneq 25
VÍKUR-fréttir
JÓLABLAÐ
klára næsta vor.“
-Hvað svo?
„Það er nú enn óráðið. Ég
hef hug á að fara í háskóla í
Kanada, nokkurs konar
akademíu. Konan mín er
kanadísk og þar sem ég
hafði hug á námi erlendis
var kjörið að reyna við Kan-
ada í þeim efnum. Ég er bú-
inn að sækja um landvistar-
leyfi og ef ég fæ það kemst ég
inn í skóla eins og innfædd-
ur því konan mín er kana-
dískur ríkisborgari. Það
munar miklu í skólagjöld-
um ef það tekst og því allt í
lagi að kanna málið.“
Sorglegar myndir
á fyrstu einka-
sýningunni
-Hvernig hefur gengið að
vinna að listinni með nám-
inu?,
„Ég var farinn að gera
myndir löngu áður en ég fór
í MHÍ og hélt mína fyrstu
sýningu í nóv. 1984, sam-
sýningu með Magga Páls.
Við skelltum okkur í þetta í
miðju verkfalli opinberra
starfsmanna. Héldum sýn-
inguna í Grágás, nefndum
hana „Svart-hvítur vetur“
og gekk bara vel. Það komu
yfir 100 manns. Við sýndum
einungis svart-hvítar mynd-
ir og það var svolítið þungt
yfir henni ef svo má segja.“
-Er það þinn stíll?
„Að vissu leyti, já. Ég hef
verið svolítið gefinn fyrir
þungan stíl, grófa hluti.“
„Þetta voru daprar
myndir, sorglegar. Sumir
gestanna fóru hér um bil að
gráta“ skaut Böddi inn í
samtal okkar. En Þorri hélt
áfram: „Ég hef nú létt á mér
í seinni tíð^ sérstaklega í
grafíkinni. Ég nýt þess að
hvíla mig frá grófleikanum
og gera léttar myndir, enda
virðast þær höfða vel til
fólks í dag.“
-Þú hélst svo þína fyrstu
einkasýningu í haust?
„Já, ég hélt sýningu hér í
Innrömmun Suðumesja 20-
21. sept. Uppistaðan af þeim
myndum voru myndir sem
ég gerði í sumar, málverk og
teikningar. Ég hef ekki get-
að málað mikið með skólan-
um en í sumar tók ég mig til
og málaði í fyrsta skipti að
einhverju ráði í olíu.“
-Var einhver ein „lína“
ráðandi á sýningunni, eitt-
hvað sem þú tókst sérstak-
lega fyrir?
„Nei, þetta var ekki heil-
steypt sýning þannig lagað.
Ég kom víða við, ég er ekki
ennþá búinn að mynda mér
einhvern ákveðinn stíl, er að
garfa í hinu og þessu. Það er
alltaf viss hætta á stöðnun ef
maður hættir að leita.“
-Hvernig gekk svo sýn-
ingin?
„Hún gekk mjög vel. Það
komu um 130 gestir þessa
tvo daga og ég seldi 20
myndir.“
Dellukarl
Þó Þorri sé nú gefinn
myndlistinni af lífi og sál þá
er hann dellukarl og gerir
ýmislegt fleira. „Ég les mik-
ið, fer í bíó og leikhús, er
mikill sportari í mér og hef
gaman að íþróttum. Svo
glápi ég mikið á sjónvarp og
finnst líka gott að fara út að
borða og drekka rauðvín."
-Það virðist fylgja lista-
mönnum að vera öðruvísi en
aðrir, hreinlega skrítnir að
manni finnst. Ert þú skrít-
inn Þorri?
„Það getur verið misjafn
skilningur í orðinu skrítinn.
Ef þú ert að meina að ég sé
einn af þeim sem ganga með
kringlótt gleraugu, hár nið-
ur á herðar og klæða sig
skringilega, þá_ er ég ekki
einn af þeim. Ég hef engan
áhuga á að vera eins og
Hittumst hress
á nýja árínu,
VÍKUR-fréttir
gangandi jólatré. Það er
ekki það sem skiptir máli
heldur hvað maður gerir.“
-Ætlarðu þér stóra hluti í
framtíðinni?
„Ég vil nú ekki spenna
bogann of hátt. Það er ekki
gott að segja hvað framtíðin
ber í skauti sér, og kannski
sem betur fer. Þó ég fari út
hef ég mikinn áhuga á að
rækta hið norræna í mér, liti
og birtu sem við erum vön
hér á Islandi. Ég er þó viss
um eitt; ég á örugglega mín
bestu verk eftir ógerð. - pket.
Máele heimilistæki
Philips - Hoover
Mrhit=t=t=iFi
SKfk
borvélar og verkfæri
Ljósakrossar ó leiði og
f jólaljósum. - Ljós inni <
HEIMSÞEKKT GÆÐAMERKI
Einstaklega vinsæl friðar- og jólaljós
- fóst aðeins hjó okkur.
Sjón er sögu ríkari.
Gefið góðar gjafir.
Næg bílastæði.
VERSLIÐ VIÐ FAGMANNINN
- ÞAR ER ÞJÓNUSTAN -
R.Ó. RAFBÚÐ
Hafnargötu 44 - Keflavík - Sími 3337