Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.1986, Blaðsíða 35

Víkurfréttir - 18.12.1986, Blaðsíða 35
VÍKUR-fréttir JÓLABLAÐ Ég tók þátt í leiknum og fékk þar örlaga- byltu. Fór úr lið um vinstri olnboga. Við kippt- um strax í liðinn en þar sem ég var i ábyrgðar- starfi taldi ég rétt að fara til læknis. Þá vill svo illa til að tveir ungir læknar sem voru starfandi á Akranesi voru farnir í páskafrí. Ég þurfti því að fara til gamla héraðslæknisins, sem var kominn yfir sjötugt, orðinn sjóndapur og farinn að tapa tilfmningu. Hann lítur á olnbogann og segir hann örugglega brotinn. Bindur um handlegg- inn með spelkum og sendir mig svo heim. Gamli maðurinn gerði sér örugglega ekki grein fyrir því að þetta átti hér um bil eftir að ganga frá mér dauðum. Spelkurnar þvinguðu mig og ég bólgnaði allur upp og varð helblár á nær hálf- an skrokkinn. Það var kallað í hann og hann kom margoft en allt kom fyrir ekki. Þetta end- aði með því að ég var sendur með fyrstu ferð á spítala til Reykjavíkur en það var á þriðja í páskum. Spelkurnar voru búnar að særa og stöðva blóðrás til handleggsins. Þær voru svo strax teknar af mér er ég kom suður en senni- lega hafði ég aldrei komist eins nálægt því að komast í aðra veröld" segir Jón og sýnir mér handlegginn á sér. „Læknir sem skoðaði á mér hendina nýlega sagði við mig að þetta hafi verið „tvöfalt slys“ eftir að ég hafði sagt honum alla söguna; í fyrsta lagi að fara úr liði og í öðru lagi að lenda hjá lækni sem vissi ekki hvað gera þurfti.“ Jón verður hljóður aftur í smástund, strýkur hinni hendinni yfir handlegginn eða „garminn" eins og hann kallar’ann núna. Segir svo: „Mér var greinilega ekki ætlað að vera sjó- maður.“ í tvö ár undir læknishendi Næstu tvö árin var Jón í læknismeðferð, ann- an hvern dag. Hann lét þó þetta óhapp ekki aftra sér frá því að ganga á fund Jónasar frá Hriflu sem þá var skólastjóri Samvinnuskól- ans til að sækja um skólavist. Námið tók tvö ár og á sumrin vann Jón hjá ættingja sínum sem átti Hótel Valhöll á Þingvöhum, sem þá var aðal ferðamannastaðurinn á íslandi. Sá þar um skrifstofuhald og var jafnframt stöðvarstjóri Pósts og síma á staðnum. Eftir námið fór Jón til Danmerkur til aðgerðar á hendinni. Höfðu sin- ar þá gengið mikið saman enda hafði Jón verið meira og minna með hendina í fatla í tvö ár. Vildu dönsku læknarnir að Jón fengi gervi- hendi, en það vildi hann ekki og var þá hendin löguð þannig til að hún gat nýst Jóni til að styðja við ýmsa hluti t.d. við skriftir. Fingurnir voru jafnframt hafðir bognir, þannig komu þeir að nokkrum notum. „Ég vildi fyrir alla muni halda garminum“ segir Jón, „og hann er búinn að vera mér betri en enginn.“ Símstöðvarstjóri í Keflavík -Forlögin sáu til þess að þú yrðir ekki sjó- maður. Hvað tók við að þessu loknu? „Eftir þriðja sumarið mitt á Þingvöllum ræðst ég til Óla Gvendar, sem kallaður var, hér í Keflavík. Hann rak þá verslun hérna. Eftir nokkra mánuði fékk ég síðan verslunarstjóra- starf í nýrri matvöruverslun í Reykjavík, sem nefndist Dagsbrún. 1. desember 1940 hófégsíð- an störf sem símstöðvarstjóri í Keflavík. Fyrstu 2 árin í forföllum Sverris Júlíussonar, þáver- andi símstöðvarstjóra, en hann kom ekki aftur þannig að ég hélt starfi áfram. Þetta starf bauðst mér af því að Guðmundur Hlíðdal, Póst- og símamálastjóri, vissi að ég hafði verið stöðvar- stjóri á Þingvöllum, og bauð hann mér því þetta starf." -Þú flytur til Keflavíkur enn á ný. Urðu ekki miklar breytingar í símamálum á þessum árum? „Það urðu miklar breytingar um og eftirstríð og ekki bara í símamálum. Atvinna jókst og fólk hafði meiri peninga á milli handa. Og meí al þess sem það veitti sér var sími. Ég fékk íbúð í pósthúsinu til að byrja með en hún var fljótt tekin í notkun undir starfsemina því umsvifin jukust ört. Þegar ég kom hingað fyrst var eitt skiptiborð fyrir 100 númer en 78 símar í notkun. Allt handsnúið ef svo má segja, engin hringingamótor. En þetta smá þróaðist allt saman. Stærsta vandamálið var þá þetta línu- . spursmál. Allar símalínur voru í loftinu en á ‘ þéssum árum var byrjað að grafa niður strengi. Margir fengu svokallaðan Bretavír til að ná sambandi við Pétur eða Pál. Þetta var vír frá hernum sem lagður var ofanjarðar ef ekki var hægt að hengja hann i staura.“ Sjálfvirk símstöð 1960 -Ef ég spyr þig næst út frá byggðapólitík, hvernig stóðu þessi mál í Keflavík þegar þú tókst við stöðinni? „Þegar ég byrja hér er Keflavíkurstöðin, eins og svo margt hér á Suðurnesjum, vanmetin. Framkvæmdir voru hamlaðar. Þess vegna var Keflavíkurstöðin langt fyrir neðan það að vera meðalstöð. Þó var hún í svokölluðum B-flokki. Og þegar fyrst var farið að ræða um sjálfvirkni í stöðvarnar var Keflavík á áætlun á eftir byggð- arlögum eins og Vestmannaeyjum, Akranesi, ísafirði og fleiri stöðvum. En þróunin og fólks- fjölgun varð meiri hér en á þessum stöðum og þörfin því miklu meiri.“ -Hvernig endaði svo kapphlaupið um sjálf- virknina? „Við unnum sigur ef svo má segja. Stöðin varð sjálfvirk árið 1960, á undan áðurnefndum byggðarlögum. Það tókst en það þurfti harð- fylgni til. Það sem mest skorti auðvitað á þess- um tíma var fjármagn. Þá datt mér í hug að senda símanotendum bréf með spurningu um það hvort þeir væru tilbúnir að leggja fram fé gegn skuldabréfi ef þurfa þætti og skyldi notast til að ýta á þetta mál. Með þessu var hægt að sýna fram á vilja og þarfir fólksins. Þetta gaf góða raun, margir lögðu málinu lið og það varð ofan á að við fengum sjálfvirkni svo fljótt." -Var þetta ekki algjör bylting? „Jú, við vorum fyrsta stöðin sem fékk sjálf- virkt val við Reykjavíkur og Hafnarfjarðarkerf- ið sem var sameiginlegt kerfi. Og þá upplifði ég einn erfiðasta tímann á mínum starfsferli. Það var að tala við fólk sem hafði talað of lengi og fékk því háa símareikninga. Fólk gerði sér ekki grein fyrir því hve sjálfvirka stöðin var fljót að keyra inn kostnað. Það hafði ekki næga sjálf- stjórn í símanotkun og kom því í koll.“ Formaður símamanna í 29 ár 1. janúar 1977 sagði Jón upp starfi sínu hjá Pósti og síma, starfaði þó til 20. apríl 1977 á meðan beðið var eftir nýjum manni í starfið en við því tók Björgvin Lúthersson. Jón hafði því að baki 37 ár sem stöðvarstjóri að tímanum á Þingvöllum meðtöldum. En það er ekki hægt að skilja við starf Jóns hjá símanum án þess að geta 29 ára formennskuferils hjá Félagi símstöðvar- stjóra. Hann þurfti því ekki bara að heyja bar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.