Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.1986, Síða 39

Víkurfréttir - 18.12.1986, Síða 39
VÍKUR-fréttir JÓLABLAÐ önnur áhugamál en skák- ina, en sagðist þó gefa sér tíma af og til að fara í leik- hús, á skemmtistaði eða fara í fótbolta með kunn- ingjunum. „Efáranguráað nást, þá þarf maður að liggja yfir þessu og ég nota því mikinn tíma í skák- rannsóknir og skoða það nýjasta sem fram hefur komið í byrjunarfræðun- um. Auk þess er ákaflega mikilvægt að tefla mikið á mótum gegn sterkum skák- mönnu til að fá ákveðna reynslu og þekkingu.“ Það kom fram hjá Björg- vini að skákmönnum gengi stundum illa að tefla gegn ákveðnum skákmönnum, jafnvel þó styrkleiki þeirra væri svipaður og töpuðu oft mörgum skákum gegn sama manni í röð og kost- aði það stundum mikil átök að snúa því dæmi sér í hag. Hann hefði sjálfur til að mynda átt frekar erfitt upp- dráttar gegn Halldóri G. Einarssyni og tapað mörg- um skákum gegn honum áður en blaðinu hefði verið snúið við. Fyrri skákin sem hér fer á eftir er nýjasta viðureign þeirra félaga. Björgvin skýrir skákina: Skákin er frá næstsíðustu umferð á afmælismóti Tafl- félags Kópavogs sem félags Kópavogs sem hald- ið var 22. og 23. nóvember s.l. Skákin var ekki tefld með fullum kappskákar- tíma, heldur var keppnis- tími hvors keppanda um sig einskorðaður við hálftíma á alla skákina. Fyrir þessa viðureign eygðu báðir keppendur möguleika á verðlaunasæti. Teflt var eft- ir svokölluðu Monrad-kerfi þar sem síðustu umferðirn- ar eru mikilvægastar. Fjöldi keppenda var með sömu vinningatölu og við. Báðir þurftu því nauðsyn- lega á vinningi að halda. Taflmennska beggja var því afar villt. Eftir 25 leiki kom þessi staða upp: Hvítt: Björgvin Jónsson. Svart: Halldór G. Ein- arsson. Hvítur hafði nokkrum leikjum áður leikið riddara til d5, sem svartur drap með e6 peði og hvítur til baka með e4 peði. Við þetta opn- aðist e-línan og svartur hef- ur misst hrókunarréttinn. Svartur má hinsvegar engan tíma fá, því hann hótar einfaldlega að létta á stöðunni með 26. ... Hxc3 og skipta síðan einnig upp á biskupum og svo... gxh6 og vera einfaldlega manni yfir þar sem sókn hvíts væri runnin út í sandinn. Önnur hótun svarts er 26. ... gxh6 ásamt Hg6 en þá eru allir menn svarts orðnir vel virkir og kóngur- inn kemst í öruggt skjól á g8- 26. De2! Biskupinn á d4 er frið- helgur vegna mátsins á e7 og hrókurinn á c3 vegna mátsins á e8. Hvítur hótar nú 27.Bxf6 og síðan Hxc8 og því næst máti á e7 - t.d. 26....Hb8, 27.Hb3 - Dc7, 28.Hxb8 - Dxb8, 29.Bxf6 - gxf6, 30.De7 mát. b) 26....Rc5, 27.Hxc5! Gleðileg jól Gott og farsœlt komandi ár. Þökkum uiöskiptin á liðna árinu. Samvinnubankinn og Samvinnutryggingar Keflavík GRÁGÁS HF. og starfsfólk sertdir öllum Suðurnesjamönnum bestu óskir um GLEÐILEG JÓL, GOTT OG FARSÆLT KOMANDI ÁR. Þökkum samskiptin á árinu sem er aö liða. KEFLA VÍKUR VERKTAKAR senda starfsmönnum sínum, viðskiptamönnum og öðrum Suðurnesjamönnum bestu óskir um gleðileg jól, gott og farsælt komandi ár, með þökk fyrir samstarfið á árinu sem er að liða.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.