Víkurfréttir - 18.12.1986, Qupperneq 47
VÍKUR-fréttir
JÓLABLAÐ
Opið bréf til hreppsnefndar Gerðahrepps:
GERUM HLODUNA OG FJÚSIÐ
AÐ FÉLAGSMIÐSTÖÐ
Núna er nýtt fjárhagsár
örugglega að fara að hefjast
hjá Gerðahreppi og þess
vegna fannst mér alveg til-
valið að rita þessa grein í
þennan ágæta fjölmiðil.
Þannig er mál með vexti
að ég hef lengi verið með þá
flugu í höfðinu (hún er farin
að suða nokkuð hátt núna)
að gera félagsmiðstöð úr
hlöðunni og fjósinu sem
stendur úti á Garðskaga.
Mörgum kann að finnast
þetta fáránleg hugmynd, en
ég tel hana bráðsnjalla (og í
mörgum öðrum finnst það
líka). - Hvað er til dæmis
verið að gera við hlöðuna
og fjósið núna? - Er ekki
hægt að leggja það undir fé-
lagsmiðstöð heldur en að
láta það grotna niður og
eyðileggjast? Ég hef aldrei
komið inn í þessi húsakynni
en utan frá sýnist mér það
ekki gerast betra en ein-
mitt til að hýsa félagsmið-
stöð.
í hlöðunni og fjósinu er
svo hægt að koma upp að-
stöðu fyrir diskótek og
ýmsa klúbbastarfsemi, eins
og til sæmis ljósmynda-
klúbb, blaðaklúbb, módel-
klúbb, íþróttaklúbb, svo
eitthvað sé nefnt.
Að sjálfösgðu geri ég mér
grein fyrir því að það er
kostnaðarsamt að ætla sér
að gera félagsmiðstöð úr
hlöðu og fjósi, það þarf
heldur ekki að gera þetta í
einum grænum, heldur er
hægt að byrja og vinna svo í
þessu fram á sumar. Lfngl-
ingar geta tekið sig saman
og aflað fjár til að brúa bilið
sem myndaðist í buddunni
hjá hreppnum, en við verð-
um að sjálfsögðu að gera
okkur grein fyrir því að
ekki er hægt að fara út í
svona framkvæmdir án
þess að það kosti peninga.
Þá geta krakkar úr pláss-
inu einnig hjálpað til við að
þrífa, smíða og mála hús-
næðið og að sjálfsögðu í
sjálfboðavinnu. Þannig
fengju unglingarnir að taka
þátt í því að skapa sína
eigin félagsmiðstöð, og að
sjálfsögðu yrði allt unnið í
sjálfboðavinnu, en þó með
aðstoð frá fullorðnum „fag-
mönnum“.
Vegna þess hversu mikil
fjarlægð er í fjósið frá íbúð-
arhúsum, ætti ekki að skap-
ast neinn hávaði sem kvarta
mætti yfir (hefur ekki háv-
aðamengun einmitt staðið í
vegi fyrir því að félagsmið-
stöð hafi verið opnuð inni í
miðju plássinu?).
Að lokum vil ég minnast
á það að til fjáröflunar fyrir
félagsmiðstöina væri hægt
að vera með sælgætissölu
og námskeið í húsinu.
Með fyrirfram þökk fyrir
jákvæða umfjöllun. Félags-
miðstöð í Út-Garðinn!
4116-0675
Þær baula ekki lengur kýrnar í fjósinu á Garðskaga. Nú vill 4116-0675 að fjósið verði gert að fé-
Iagsmiðstöð. Ljósm.: kmár.
*
Sendum Suðurnesjamönnum öllum
bestu óskir um
GLEÐILEG JÓL OGFARSÆLT
^ . KOMANDIÁR
, .• með þökk fyrir viðskiptin
* * á árinu sem er að líða.
UTVEGSBANKI
ÍSLANDS
Hafnargötu 60 - Kcflavík - Sími 1199