Víkurfréttir - 18.12.1986, Qupperneq 49
VÍKUR-fréttir
JÓLABLAÐ
Frá afhendingu gjafarinnar frá Varnarliðinu í síðustu viku.
Almannavarnaæfingin:
Ekki tekið á alvar-
legustu mistökunum
Laugardaginn 15. nóv-
ember sl. héldu Almanna-
varnir ríkisins fund með
aðilum sem tóku þátt í al-
mannavarnaæfingunni á
Keflavíkurflugvelli í vik-
unni áður. A fundinum var
rætt um ýmis atriði sem
miður fóru í æfingunni.
I framhaldi af því hefur
nú verið gefin út skýrsla um
niðurstöður og kennir þar
margra grasa. Þó vekur það
athygli að mörg þau atriði
sem hvað alvarlegast var
litið á sem mistök, eru
ýmist ekki tekin inn í mynd-
ina eða þá að viðurkennt er
að þau séu enn ágreinings-
atriði, en þurfi að leysa.
Þakkir frá Þroskahjálp á Suðurnesjum
Eftirtaldir aðilar hafa
fært Þroskahjálp á Suður-
nesjum peningagjafir eða
styrkt á annan hátt:
Minningargjöf um Sigurð Sig-
urðsson .......... 35.000
Minningargjöf um Pétur
Lárusson.......... 50.000
Andvirði hlutaveltu hjá
nemendum í 4. og 5. bekk
Myllubakkaskóla ... 72.600
Málning hf. gaf málningu til
málunar innanhúss.
Lítt’inn hjá Ola gaf sælgæti á
jólagleðina hjá Þroskahjálp
11. des. sl.
Varnarliðið gaf leikföng og
föndurvörur.
Stjórn Þroskahjálpar vill
færa velunnurum félagsins
þakkir fyrir veittan stuðn-
ing.
Húðflúrstofan:
„Reglur frá Reykjavík
okkur óviðkomandi”
- segir Magnús Guðjónsson, heilbrigðisfulltrúi, en
Heilbrigðisnefnd Suðurnesja hefur alfarið
hafnað beiðni um starfsleyfi stofunnar
í síðustu tveimur tölu-
blöðum hefur verið um-
ræða um ósk um starfsleyfi
fyrir húðflúrstofu að Hafn-
argötu 20 í Keflavík. Kom
fram í fyrra blaðinu að
landlæknir legðist gegn
slíkri leyfisveitingu vegna
ótta við alnæmissmit. Leið-
rétti Helgi Aðalsteinsson
húðflúrmaður, þetta í
síðasta blaði og benti á að
hann hefði áður fengið leyfi
til að hafa slíka stofu í
Reykjavík, og því gætu yfir-
völd hér ekki stöðvað hann.
Vegna þessa hafði blaðið
samband við Magnús
Guðjónsson, heilbrigðis-
fulltrúa hjá Heilbrigðiseft-
Auglýsingagluggi á húðflúrstofunni að Hafnargötu 20 í Keflavík,
þar sem Helgi Aðalsteinsson auglýsir TATTOO studeó.
Suðurnesja. Hann
þetta um málið að
irliti
hafði
segja:
„Umsókn Helga var
hafnað hér í Heilbrigðis-
nefnd Suðurnesja að
fengnu áliti Landlæknis-
embættisins, sem er æðsta
yfirvald í þessum málum
hérlendis. Varðandi þær
reglur sem Helgi er að tala
um, er rétt að minna á, að
hér er um að ræða túlkun á
reglugerð sem Hollustu-
vernd ríkisins og Heilbrigð-
iseftirlit Reykjavíkursvæð-
isins hafa gefið út, hvort í
sínu lagi. Þessar reglur eru
okkur alveg óviðkomandi,
við höfum okkar og þeir
sínar.
Reglur sem þessar hafa
ekkert lagagildi, þar sem
staðhættir eru mismunandi
milli umdæma. Þar að auki
eru þessar reglur gefnar út
áður en umræðan um al-
næmi verður svona mikil og
nú er. Sjálfsagt hefðum við
ekki getað bannað þetta, ef
sú umræða hefði ekki
komið til“, sagði Magnús
að lokum. - epj.
Að sögn viðmælenda
blaðsins eru mikil von-
brigði hjá aðilum hér syðra
með að ekki skyldi vera
tekið af meiri festu á þeim
málum sem miður fóru. Ótt-
ast menn að framvegis fáist
menn ekki til að taka þátt í
æfingum sem þessum, verði
ekki gert betur. - epj.
Heimsóknartímar
um jól
og áramót
Aðfangadagur ....... kl. 18-21
Jóladagur .......... kl. 14-16
og kl. 18.30-19.30
Gamlársdagur ....... kl. 18-21
Nýársdagur.......... kl. 14-16
og kl. 18.30-19.30
Sjúkrahús
Keflavíkurlæknishéraðs
GRINDAVÍK
Afgreiðslutími
vinnumiðlunar
Skrifstofa vinnumiðlunar- og atvinnu-
leysisskráningar er opin alla virka daga
frá kl. 9-12.
Afgreiðslustaður er á skrifstofu bæjar-
tæknifræðings að Hafnargötu 7.
Bæjarstjóri
Sendum viðskiptavinum
okkar og öðrum Suður-
nesjamönnum bestu óskir um
GLEÐILEG JÓL - FARSÆLTNÝTTÁR
með þökk fyrir
viöskiptin.
Hárgreióslustofan
£Uaans
Vatnsnestorgi
Tímapantanirí s.4848