Víkurfréttir - 18.12.1986, Blaðsíða 50
JÓLABLAÐ
VÍKUR-fréttir
„Mikill þrældömur
á upphafsárum
togaraútgerðar“
Hjörtur Þorkelsson, rúmlega níræður vistmaður á Garð-
vangi, rifjar upp fyrir Víkur-fréttir sögur frá upphafsárum
togaraútgerðar hár á landi, Blöndahls-slagnum og leiðsögn
með björgunarmenn í gegnum skerjagarð á Mýrum
Þeir eru ekki margir í dag sem muna hvert ár lífs síns, og enn færri sem
komnir eru jafnvel á tíunda áratuginn. Einn þessara manna sem man alla sína
bernsku er HJÖRTUR ÞORKELSSON, netagerðarmeistari, síðast til heim-
ilis að Heiðarvegi 6 í Keflavík, en nú vistmaður á Garðvangi í Garði.
Þegar rætt er við Hjört um atburði á fyrsta og öðrum áratug þessarar
aldar, man hann þá næstum eins vel og þeir hefðu gerst í gær. Þessi aldna
kempa sem við rekjum úr garnirnar í þessu blaði, hefur frá mörgu að segja,
enda komið víða við og hlotið viðurkenningar, s.s. æðstu orðu Frakklands og
heiðurspening Sjómannadagsins í Keflavík.
Hjörtur er fæddur 1896 að Ölversstöðum í Borgarfirði. Hann fór sína
fyrstu sjóferð er hann flutti til Akraness um aldamótin. Síðan átti sjómanns-
starfið eftir að vera hans helsta lífsviðurværi um ævina eða þjónustustörf við
útgerðarmenn.
I upphafi viðtalsins rekur Hjörtur uppvaxtarár sín og við gefum honum því
orðið:
Blöndha
AlÞ##unokkutiwu
RJUtJiri: Stefán PétumOB,
atí»t}órn og aígreiðsla 1 Al-
þýfJuhöstnu vlö Hverfiegðtu.
Simar rítatjdmar: 4901 oc
ASI0ASTUÐNUM VBTRI
birtist i 2. tolyblaði
(,VÍ«nunnar^' trá&ögn af Blön-
dalsslagnum 1923. Grein þeaai,
sem er hín nujrkilugastu, er
sjáaalega skrifuð af einhverj-
ura þeirra manna, scm framar-
lega hafa staðið í átökunum og
undirbáningmim undir slagínn.
Grcinin iyslr aðdragandanum
og atburðunum írá sjóniirsvíðí
þeirra, sem forustuna höfðu.
Undirritaður var einn af
þerm, sem vtiru mcð ♦ ílagnum,
og þar sem slagurinn var eldl-
vígsia hans í verkalýðsbarátt-
unn'u hefur hann bu^safi oftar
um þennan atburð úr tífi sínu
heldlur en flesta aðra, og alið
um iangan tima þá hugmynd í
brjóstl að iýs«í á opútberum
vettvangi áiökunura oíoa
„Sjö ára gamall fór ég
fyrst í sveit, þá að Hóli í
Norðurárdal. Sumarið eftir
var ég að Kópareykjum í
Reykholtsdal og næsta ár
að Búrfelli í Hálsasveit.
Fékk ég alls staðar það
hlutverk að passa krakka.
Tíu ára gamall fékk ég svo
að sitja um fé að Hraunási
og árið eftir í Hvítársíðu.
Tólfta árið mitt, það
sama og kóngurinn kom
(1907) þorði ég ekki að fara
í sveitina, því mér var sagt
að þar væri svo mikill
skógur að ég myndi tapa
rollunum. En 1910 fór ég á
skútu, Grétu gömlu, og var
á henni um vorið og fram á
haust að úthaldinu lauk.
Næstu tvö ár á eftir var égá
skútunni Keflavík. 1914fór
ég síðan til Sandgerðis til
Einars gamla útvegsmanns
þar, en skipstjóri var þá
Arsæll Þorsteinsson. Þá um
sumarið fór ég austur á
Norðfjörð, en einmitt það
sumar hófst fyrri heims-
styrjöldin.
Þetta ár komu til lands-
ins þrír togarar, þeir Rán,
Víðir og Ymir. Réðist ég ári
síðar á Rán og var á honum
í þrjú ár. Síðan tvö ár á
Snorra Sturlusyni og næstu
átta árin á Geir. A þessum
árum átti ég víða heima, m.a.
í Reykjavík, en eftir vistina
á Geir fluttum við upp á
Akranes á ný og þar keypti
ég mér trillu sem ég reri á
meira og minna öll sumrin
fram til ársins 1947, að ég
flutti til Keflavíkur. Að vísu
stundaði ég síldveiðar á
þessum tíma í sex sumur,
þrjú þeirra á Olafi Bjarna-
syni og önnur þrjú á
Eldborginni. Bæði þessi
skip voru aflahæst þau
sumur sem ég var þar um
borð. Milli þess sem ég var
til sjós vann ég við netabæt-
ingar og fékk að lokum
meistarabréf í iðninni.
Eftir að ég kom til Kefla-
víkur starfaði ég fyrst þar
sem nú er Litla milljón, við
frystihúsastörf. Síðan hitti
Ragnar Guðleifsson mig og
þar sem hann vissi að ég var
netamaður, bauð hann mér
að sjá um veiðarfæri togar-
ans Keflvíkings, í landi.
Var ég við það starf þar til
togarinn var seldur burtu.
Að því loknu fór ég í fisk-
vinnu hjá mönnum eins og
Lofti Loftssyni og Mar-
geiri Jónssyni, og hellti mér
svo alfarið í netavinnu,
snurvoðabætingar, neta-
fellingar og fleira“.
Árásin á Ránina
- Hefur þú aldrei komist í
hann krappan á þessum
árum?
„Nei. Þó réðust Þjóðverj-
ar í stríðinu á Ránina er hún
var á leið í söluferð til Eng-
lands. Eg var ekki um borð
í þeirri ferð. Skutu þeir á
skipið, þó ekki alvarlega,
og tóku það, en slepptu
aftur með því skilyrði að
skipið fiskaði ekki aftur
fyrir Englendinga. Var
ástæðan sú að skipið var
þýskættað og því var Rán-
inni sleppt. Var staðið við
þetta allt fyrra stríðið. Urðu
þeir að yfirgefa skipið um
tíma, flýttu sér svo mikið í
burtu á léttbátnum að tveir
skipshundar urðu eftir um
borð í togaranum. Vældu
þeir svo mikið, að skip-
verjar sneru bátnum við og
tóku þá um borð.
Þá gerðist það einu sinni á
sama skipi að maður sem
var á vakt í brúnni á Rán-
inni, er við vorum í aðgerð,
sofnaði, og hefðum við trú-
lega siglt upp í Látrabjrgið
og strandað þar, ef meistar-
inn hefði ekki komið upp í
brúna í tæka tíð. En þetta
var nú á þeim tíma þegar
engin vökulög voru í gildi.
Einnig gerðist það einu sinni
að ég ætlaði að skipta um
skipsrúm og var kominn
með fötin mín um borð, að
ég hætti við og sótti fötin
aftur í togarann. Hann
fórst síðan í þessari veiði-
ferð“.
Mikill þrældómur
- Var ekki mikill þræl-
dómur á þessum upphafs-
árum togaraútgerðar hér á
landi?
„Jú, það var það náttúr-
lega. Karlarnir voru látnir
halda áfram þangað til þeir
gátu ekki meir. Voru jafn-
vel orðnir svo slæmir að
þeir hentu fiskinum út fyrir
eða fram í kassa í stað þess
að láta hann í vöskunar-
portið. Einnig voru þeir
vegna þreytu farnir að
skera hingað og þangað í
fiskinn. Þegar svo var
komið fengum við að vera
niðri í 5 tíma, þ.e. af því fór
tími í að sofna svona þreytt-
ir, og vakna aftur. Einu
sinni vöktum við í þrjá
sólarhringa í miklum afla á
Ráninni fyrir vestan, og
fylltum síðan skipið eftir
tvo sólarhringa í viðbót
(í sama skptið og þeir voru
nærri búnir að sigla upp í
Látrabjargið)“.
Blöndahls-
slagurinn
- Tókstu þátt í verkalýðs-
baráttunni á þessum tíma?
„Já, svolítið“.
- Manstu ekki eftir ein-
hverjum skemmtilegum at-
vikum frá þeim tima?
„Jú, jú, t.d. Blöndahls-
slagnum, sem átti sér stað
1923. Snerist hann um tog-
arana Gulltopp og Glað,
sem báðir áttu aðfara til
Hjörtur viö rattið úr lcttbátnum frá Pourquoi Pas?