Víkurfréttir - 18.12.1986, Qupperneq 56
JÓLABLAÐ
VIKUR-fréttir
Þeir bræður Kristinn (t.v.) og Sveinn Árnasynir, eru báðir vistmenn á Garðvangi.
Garðvangur allur
hjúkrunardeild?
„Deildin fyrir sjúka aldraða
var viðurkennd l.janúarl985
með 20 rúmura. Síðan hefur
það gerst, að þrengsli á öldrunar-
deildum orsökuðu það að
þegar á fyrsta ári vorum við
komnir með átta aðila inn á
öldrunardeildir, sem tvímæla-
laust áttu heima á hjúkrunar-
deildum. Fórum við fram á
aukningu miðað við 1. jan.
1986 um átta rúm, og fengum
hana.
En þróunin er öll í eina átt
og hún er sú, að Garðvangur
verði allur hjúkrunardeild, því
við getum ekki losnað við
nokkurn mann, og þá er ekki
nokkurt vit í öðru, ef orða má
það þannig, því þegar við erum
komin með á öldrunardeildir
fólk sem þarf miklu meiri
umönnun er daggjöld þeirra
deilda gefa til kynna, en að
sækja um þóknun í samræmi
við þá umönnun sem þar er um
að ræða“.
Sjúkir aldraðir
„Við stöndum frammi fyrir
því að sjúkum öldruðum fjölg-
ar gífurlega eins og raun ber
vitni. Erum við því í þeirri að-
stöðu hér á Suðurnesjum, að
við verðum að koma þessu
fólki einhvers staðar fyrir, eða
segja einfaldlega: við getum
ekkert fyrir ykkur gert og þið
verðið áfram heima.
Aðstæður eru aftur á móti
víða þannig, að þetta er ekki
orðin spurning um það, hvað
aðstandendur geta gert. Þá
skortir alla faglega kunnáttu
til að annast þetta fólk og þrátt
fyrir að heimahjúkrun sinni
þessu prýðilega, getur þar
aldrei orðið um sólarhrings-
þjónustu að ræða, eins og
margt af þessu fólki þarf".
Byggingamál
„Mín skoðun er sú, að það
hafi verið rangt að fara ekki út
í kaupin á Víkurbæjarhúsinu í
vetur. Þar hefði verið hægt að
koma 40 manns fyrir. Hægt
var að hafa val um það, hvort
þarna yrði um að ræða sjúka
aldraða, eða hvort þar hefði
verið um að ræða öldrunar-
deild og þá stækka hjúkrunar-
deildina á Garðvangi í staðinn.
Ég held að við fáum aldrei
annað eins fjárhagslegt dæmi
upp í hendurnar eins og okkur
stóð þarna til boða, og ég held
að það hafi verið rangt að
skoða ekki Víkurbæjardæmið
betur.
Það hefur verið rætt um
byggingu í nokkur ár, því
þessum hópi hefur fjölgað á
Suðurnesjum eins og víða
annars staðar. Rætt hefur
verið um byggingu öldrunar-
deilda og hafa ýmsir staðir
verið nefndir í því sambandi.
Þó hafa flestar þær umræður
byggst á því að næsta bygging
ætti að vera á Keflavíkur/
Njarðvíkursvæðinu. Það hafa
verið nefndir staðir í Keflavík
og Njarðvík, en engin ákvörð-
un hefur verið tekin um þetta
ennþá. Jafnframt hafa verið
uppi umræður um stækkun
Hlévangs.
Sú stækkun er vel fram-
kvæmanleg, þetta er aðeins
spurningin um það, hve stóra
einingu menn eru að tala um.
Lóð Hlévangs hefur auðvitað
takmarkaða stærð, en vel er
framkvæmanlegt að byggja við
Hlévang".
Aðstöðumunur
Hlévangs/ Garðvangs
„I dag er enginn aðstöðu-
munur á þjónustu Garðvangs
og Hlévangs, helsti aðstöðu-
munurinn er, eins og ég gat um
hér að framan, varðandi stiga
hússins. Að öðru leyti er þjón-
ustan sú sama á báðum heim-
ilunum. Hlévangi er sinnt af
lækni heimilisins eins og Garð-
vangi og hjúkrunarfólkið er
reiðubúið að grípa inn í á Hlé-
vangi eins og á Garðvangi,
enda ráðið hjá stofnuninni í
heild“.
Þjónustuhópur
aldraðra
,,I dag er nær fullur
jöfnuður milli sveitarfélaga, en
þau eiga vistpláss í hlutfalli við
eign í heimilunum, öll sveitar-
félögin 6 á Suðurnesjum, nema
Grindavík. Er það þjónustu-
hópur aldraðra sem hefur um-
sögn og umsjón með þessum
málum á svæðinu. Er sá hópur
Úr matsal Garðvangs. - Óskar Böðvarsson (t.v.) og Skúli Oddleifsson.
umsagnar- og tillöguaðili til
dvalarheimilanna um hver
skuli hljóta vistun næst“.
Félagasamtök og
almenningur
„Félagasamtök, hópar og
einstaklingar hafa mörg hver
staðið mjög vel að baki dval-
arheimilanna og þeim ein-
staklingum sem þar eru. Af
fjöldamörgum samtökum á
svæðinu hefur stofnuninni
verið sýnd mikil ræktarsemi
með framlagi til afþreyingar
og skemmtunar fyrir vist-
menn.
Hygg ég að í sambandi við
svona starfsemi sé ekki á neinn
hallað þó ég geti sérstaklega
Lionsklúbbs Njarðvíkur, sem
öll þessi ár hefur reglulega
komið og haldið uppi spila-
kvöldum hjá stofnuninni.
Fleiri aðila mætti tína til.
Kvenfélagið Gefn í Garði
hefur verið með regluleg
skemmtikvöld á dvalarheim-
ilunum.
Þá má nefna að 15 félaga-
samtök hér á Suðurnesjum
komu sér saman um að gefa 15
sjúkrarúm, sem var stór gjöf til
hjúkrunardeildarinnar, Lions-
klúbbar og Kiwanisklúbbar
hafa geftð tæki, gjafir og pen-
inga.
Þá vil ég síðast en ekki síst
alls ekki gleyma þeim einstakl-
ingum sem lagt hafa alveg ein-
staka rækt við heimsóknir
bæði til sinna nánustu og oft á
tíðum miðlað mikilli ánægju til
þeirra sem kannski ekki hafa
átt jafn auðvelt með að fá
heimsóknir. Er mikil ástæða til
að þakka þessum aðilum sér-
staklega fyrir hvernig þeir hafa
staðið að þessu“.
Gott starfsfólk
„Að lokum vil ég bæta því
við, að það hefur verið happ
dvalarheimilanna, og undan-
skil eðlilega sjálfan mig, að það
hefur haft alveg gífurlega
sterkan og góðan kjarna starfs-
fólks. Eru ótrúlega lítil manna-
skipti hjá stofnunni og held ég
að í þessi störf veljist ekki
nema fólk sem hefur það sem
þarf að hafa í svona þjónustu-
þætti, hitt hættir mjög fljótt",
sagði Finnbogi Björnsson að
lokum. - epj.
Séra Þorvaldur Karl Helgason ásamt dóttur sinni á tali við Rann-
veigu Magnúsdóttur og Gunnar Jónsson.
Finnbogi Björnsson ásamt hluta starfsfólks Hlévangs. F.v.: Auður
Guðmundsdóttir, Anna Frímannsdóttir og Hólmfríður Björnsdóttir.
íbúð óskast
Félagsmálastofnun Keflavíkurbæjar óskar
eftir 2ja-3ja herb. íbúð til leigu frá áramót-
um.
Upplýsingar í síma 1555.