Víkurfréttir - 18.12.1986, Blaðsíða 57
VÍKUR-fréttir
JÓLABLAÐ
Alfabrenna á
þrettándanum
Hér áður fyrr var það sið-
ur að halda álfabrennu á
þrettándanum. Þá var
gengið fylktu liði frá bæjar-
skrifstofunum, upp Hafn-
argötuna og Skólaveg, inn
á íþróttasvæðið við Hring-
braut. í skrúðgöngu þessa
flykktust ótrúlegustu kvik-
indi, Þar mátti sjá álfa, jóla-
sveina og jafnvel púka. I
forsvari voru álfakóngur
og álfadrottning og fóru
þau gjarnan ríðandi á hest-
urn.
A eftir komu svo kyndil-
berar og á íþróttasvæðinu
var haldin hátíð þar sem
m.a. var mikið sungið og
dansað. Nú er ætlunin að
endurvekja þessa skemmti-
legu venju og halda þrett-
ándann hátíðlegan á
þennan hátt. Farið verður
eins og áður frá bæjarskrif-
stofunum kl. 19.30 og
gengið að íþróttasvæðinu.
Þar munu kórar syngja, fé-
lagar úr Unglingalúðrasveit
Keflavíkur leika, Björgun-
arsveitin Stakkur mun
verða með flugeldasýningu
og margt fleira verður gert
til skemmtunar. Svo er
aldrei að vita nema ýmis
kvikindi láti sjá sig.
Bæjarbúar eru hvattir til
að taka þátt í þessum hátíð-
arhöldum, sem verða eins
og áður segir á þrettándan-
um, þann 6. janúar 1987, og
krakkar mega gjarnan
klæðast furðubúningum að
gömlum sið.
Þeir sem standa að þess-
ari hátíð eru: Karlakór
Keflavíkur, Skátafélagið
Heiðabúar, Keflavíkurbær,
Björgunarsveitin Stakkur,
Tónlistarskólinn í Kefla-
vík og fleiri.
Þvottahús Keflavíkur
óskar viðskiptavinum sinum
gleðilegra jóla og
farsæls komandi árs.
Þökkum viöskiptin á árinu.
Smáauglýsingar
Til sölu
22” Sharp litsjónvarpstæki.
Selst á 20 þús. Uppl. hjá Lítt’-
inn hjá Óla, sími 3634.
Til sölu
Pioneer bílagræjur með
kraftmagnara á góðu verði.
Uppl. í síma 3183.
Til sölu
Sony Beta myndbandstæki 1
árs. Gott ástand, fjarstýring.
Uppl. í síma 91-16894 eftir kl.
17.
Jólatrésskemmtun
Kaupfélags
Suðumesja
verður í Stapa sunnudaginn
28. des. (4. í jólum) kl. 15.
Vorum að fá hinar frægu
vörur frá Karl Lagerfield, París
Fyrir karlmenn:
Rakspíri, sápa,
ilmvatn o.fl.
Fyrir konur:
llmvatn, ilmsápa
og fleira.
Komdu inn og
prófaðu hvernig KL-
ilmurinn á við þína
SNYRTI- Og NUDDSTOF
Hafnargötu 35 - Keflavík - Sími 4108
SJAVMGULLIÐ
V RESTAURANT
27. des,:
Húsið opnar kl. 22.
Eiríkur Hauksson
skemmtir.
Pónik og Elli Grétars
í jólaskapi.
GAMLÁRSKVÖLD
Húsið opnar kl. 00.45. Fögnum nýju ári á nýjum stað. Skálum
í kampavíni til kl. 01.30. Ef þú kemur ekki með hattinn, þá
færðu hatt hjá okkur. - Pónik og Elli Grétars í áramótaskapi
fram undir morgunn. Angraðu ekki nágrannann -skemmtu
þér í Glaumbergi. - Miðaverð 1000. - Aldurstakmark 18 ára.
Forsala aðgöngumiða í Glaumbergi 29. og 30. des. kl. 17-19
og 31. des. kl. 13-15.
SJÁVARGULLIÐ Lokað frá 24. des. til 29. des.
og 31. des. og 1. janúar. - Opið alla aðra daga frá kl.
18.30. - Ferskur matsölustaður sem kemur á óvart.
Eigendur og starfsfólks Glaumbergs og
Sjávargullsins, óska öllum gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs.
3 ÁRA AFMÆLI
ANNANf JÓLUM
Húsið opnar kl. 22. - Boðið upp á afmælis-
drykk til kl. 23. Eiríkur Hauksson skemmtir.
Hljómsveitin Pónik og Elli Grétars í jólaskapi.
í tilefni af 3 ára afmælinu fá öll afmælisbörn
ókeypis aðgang.
19. og 20. des.:
Opið bæði kvöldin
frá kl. 22.
Pónik sér um fjörið.
Eiríkur Hauksson
2. og 3. jan.:
Opið frá kl. 22
bæði kvöldin.
Pónik og Elli Grétars
í fullu fjöri.