Víkurfréttir - 18.12.1986, Qupperneq 60
JÓLABLAÐ
VÍKUR-fréttir
ATHUGASEMD
- frá bæjarráði Njarðvíkur
Njarðvík, 13/12 1986
VÍKURFRÉTTIR
b.t. hr. ritstjóra
Emils P. Jónssonar
Hr. ritstjóri.
í tilefni af forsíðufrétt í
blaði yðar hinn 11. desem-
ber sl., óskar bæjarráð
Njarðvíkur eftir að þér birt-
ið á áberandi stað í næsta
tölublaði VÍKURFRÉTTA
eftirfarandi athugasemd:
í tilefni af frétt á forsíðu
síðasta tölublaðs VÍKUR-
FRÉTTA sér bæjarráð
Njarðvíkur sig knúið til að
víta harðlega þann frétta-
flutning sem þar birtist.
Ekki einasta er fyrirsögn
fréttarinnar stórlega vill-
andi og í engu samræmi við
innihaldið, heldur er fréttin
í heild sinni ýmist út í hött,
óskiljanleg á stundum og
byggð á fölskum forsend-
um. Þeirri endurskoðun
sem vísað er í sem heimild,
er ekki lokið þegar fréttin er
skrifuð og niðurstöður
hennar ekki ljósar. Grund-
völlur fréttarinnar er því
ekki endurskoðun á reikn-
ingum Njarðvíkurbæjar.
Virðingarfyllst,
f.h. bæjarráðs Njarðvíkur.
Oddur Einarsson,
bæjarstjóri
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía - Hafnrgötu 84 - Keflavík
Aðfangadagur jóla. Aftansöngur kl. 18.
Jóladagun Guðsþjónusta kl. 14.
Sunnudagur 28. des.: Jólahátíð sunnudagaskólans
kl. 14.
Nýársdagun Guðsþjónusta kl. 14.
Alllr velkomnir
Til bæjarrððs Njarðvíkur
Vegna furðuskrifa ykkar
vil ég benda ykkur á eftir-
farandi staðreyndir:
1. Hver er munurinn átugi
milljóna fráviki og að
tugi milljóna vanti í
kassann? I úttekt á fjár-
hagsstöðu bæjarsjóðs
Njarðvíkur, sem Endur-
skoðunarskrifstofa Sig-
urðar Stefánssonar hef-
ur gert, stendur á fylgi-
skjali nr. 4, að neikvæð-
urjöfnuður 15. júní 1986
sé upp á tæpar 23 millj.
króna.
2. Varðandi þær fullyrð-
ingar ykkar að fréttin sé
,,út í hött“, „óskiljan-
leg“ og „byggð á fölsk-
um forsendum“, vísá ég
í eftirfarandi tilvitnanir
úr greinargerð endur-
skoðanda á úttekt á fjár-
hagsstöðu bæjarsjóðs
Njarðvíkur árin 1982-
1986:
„Ekki er fullt samræmi
í framsetningu fjárhags-
áætlana og reiknings-
skila“. „Önnur frávik
eru varðandi gatna-
gerð“. „Nauðsynlegt er
að taka upp samsvar-
andi framsetningu fjár-
hagsáætlunar og árs-
reikninga í samræmi við
góða reikningsvenju".
„Fjárhagur bæjarsjóðs
hefur verið sveiflukennd-
ur“. „Ljóst er að á mestu
framkvæmdaárum þessa
tímabils hafa þær verið
framkvæmdar með
skammtímalánum, en
ekki lánum til lengri
tíma. Slík skammtíma-
fjármögnun leiðir yfir-
leitt til hærri fjármagns-
kostnaðar en langtíma-
lán bera“. „Nákvæmni
hefur ekki gætt við gerð
fjárhagsáætlunar, sem
sést ef rekstrarniður-
staða ársins á undan og
áætlunar árs eru borin
saman við áætlun“. Til-
vitnunum lýkur úr
greinargerð endurskoð-
enda.
Strákar, það er oft betra
að hugsa áður en hent er,
því hefðuð þið átt að lesa
niðurstöður reikninganna
áður en þið samþykktuð
vítur á mig. Þið tókuð hvort
tveggja fyrir á sama bæjar-
ráðsfundinum. Þá hefði
einnig komið í ljós að það
skiptir engu máli hvenær
fréttin var skrifuð, niður-
stöðurnar staðfesta hvert
atriði sem þar kom fram.
Emil Páll Jónsson
ÞAKKARÁVARP
Innilegt þakklæti til allra þeirra fjölmörgu
sem glöddu mig með heimsóknum, skeyt-
um, blómum og gjöfum á 70 ára afmæli
minu, 7. desember sl.
Guð blessi ykkur öll.
KARL SIGTRYGGSSON
Til sölu
eldhúsborð og 4 stólar, sem
nýtt. Stálfótur á hjólum undir
sjónvarp. Selst mjög ódýrt.
Uppl. í síma 3116 að
Mávabraut 2.
Oskum Suðurnesja-
mönnum gleðilegra jóla
og farsœls nýs árs.
Þökkum viðskiptin á
liðnu ári.
Veghús - Skiltagerð
Sérleyfisbifreiðir
Strætisvagnaferðir
um Keflavík
Keflavíkur
gfl j Áætlun yfir
\v hátíðisdagana:
Dagana 18., 19., 20., 22., 23. og
24. desember veður bæjar-
búum boðið upp á
strætisvagnaferðir
um bæinn.
Akstursleið verður
sem hér segir:
Frá S.B.K.:
Vesturgata - Heiðarbraut
Norðurvellir - Freyjuvellír
Eyjabyggð - Aðalgata
Túngata - Tjarnargata
Faxabraut - Hafnargata
að Samkaupum - Hringbraut
Tjamargata - að S.B.K.
Akstur hefst kl. 10 á
morgnana og verður ekið
á 45 mín. fresti frá SBK meðan
verslanir eru opnar.
Akstursgjald verður kr. 20 fyrir fullorðna
og kr. 10 fyrir böm 15 ára og yngri.
TÍMAÁÆTLUN FYRIR SBK
kl. 10.00 kl. 13.00 kl. 20.00
kl. 10.45 kl. 13.45 kl. 20.45
kl. 11.30 kl. 14.30 kl. 21.30
kl. 15.15 kl. 22.15
kl. 16.00 kl. 23.00
kl.
kl.
kl.
16.45
17.30
18.15
Aöfangadagur jóla:
Síðasta ferð frá Keflavík kl. 15.30
Síðasta ferð frá Reykjavík kl. 15.30
Jóladagur:
Engar feröir.
Annar I jólum
Fyrsta ferð frá Keflavík kl. 9.00
Fyrsta ferð frá Reykjavík kl. 11.30
Gamlársdagur:
Síðasta ferð frá Keflavík kl. 15.30
Síðasta ferð frá Reykjavík kl. 15.30
Nýársdagur:
Fyrsta ferð frá Keflavík kl. 12.00
Fyrsta ferð frá Reykjavík kl. 13.30
Að öðru leyti ekið samkvæmt áætlun.
Gleðileg jól, farsælt nýtt ár, þökkum viðskiptin.