Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.12.2015, Blaðsíða 33
Nasl
200 g möndlur með
hýði
1 eggjahvíta
3 msk Sukrin gold
1 tsk kanill
1⁄4 tsk salt
Blandið öllu saman, setjið á
bökunarpappír og plötu,
dreifið vel úr. Bakið við
120°C í ca. klst. Gott að
hræra öðru hvoru í þeim.
6.12. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Heiðrún Haraldsdóttir, Ragnheiður
Jónsdóttir, Ebba Guðný Guðmundsdóttir,
Sólveig Ágústsdóttir, Katrín María
Guðmundsdóttir og Anney Bærings-
dóttir hittast alltaf mánaðarlega.
250 g mascarpone, 1 askja
1 dl sýrður rjómi
50 g pálmasykur
1 stk vanillustöng
250 ml rjómi
Léttþeytið rjómann.
Setjið ostinn, sýrða rjómann,
sykurinn og innan úr vanillunni í
matvinnsluvél. Blandið saman þar
til allir kekkir eru farnir. Tekur ca.
½ mín. Blandið saman við rjómann.
Notið sleikju.
BERJASÓSA
200 g bláber (mega vera frosin)
1 msk pálmasykur
2 tsk chia-fræ
Setjið berin og pálmasykurinn í
pott. Sjóðið saman við vægan hita
í fimm mínútur. Hrærið í og
stappið með sleif. Bætið
chia-fræjum saman við í lokin.
Látið kólna. Raðið saman
annaðhvort í litlar desertskálar
eða stóra fallega glerskál. Setjið
berjasósuna neðst, þá kemur
mascarpone-kremið, ofan á fersk
niðurskorin ber, aftur
mascarponekremið og ferskir
ávextir á toppinn.
Fersk ber með berjasósu og
mascarpone-ostakremi
1 bolli lífrænt kakósmjör
1 bolli lífrænt kakóduft
½ bolli lífrænt hunang
BLANDA 1
2 tsk. raw lakkrísduft frá Johan Bulow
1 tsk. lakkríssalt
½ dl möndlur
BLANDA 2
1 tsk. vanilluduft
Bræðið kakósmjör yfir vatnsbaði (passa að vatn
komi ekki í það), tekur nokkrar mínútur. Hrærið
saman við kakódufti og hunangi. Skiptið þessu til
helminga og setjið báðar blöndurnar saman við.
Setjið í form sem er klætt með bökunarpappír, hell-
ið möndlum yfir súkkulaðið með lakkrísnum. Sett í
kæli í allavega 2 klst. Brjótið niður og geymið í lok-
uðu íláti í ísskáp. Gott að hafa í kæli yfir nótt. Upp-
skriftir fengnar af síðunni komduadborda.com.
Súkkulaði