Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.12.2015, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.12. 2015
Fréttir af nýafstaðinni loftslagsráðstefnu íParís (já afsakið en ekki hætta að lesa)hófust flestar á frásögn af því að nýjum
samningi um loftslagsmál hefði verið mjög vel
tekið, „hampað“ var orðalagið í einni frétt.
Hún var alveg fölskvalaus gleðin sem frétta-
menn miðluðu af fundinum. Þeir bættu reyndar
um betur því lotning íslensku fréttamannanna
gagnvart ráðstefnunni og afurðum hennar var
þvílík að jaðraði við geðshræringu. Fréttamenn
kepptust við að segja, andstuttir, fréttir af
sjálfum sér í biðröð eftir drögum að nýjum
samningi. Það var spenna í loftinu. Minna fór
fyrir fréttum af umræðum á fundinum eða um
efni samkomulagsins sem náðist. Ekki ein rödd
gagnrýni eða efasemda náði eyrum hlutlausra
fréttamannanna. Markaðsdeild ráðstefnunnar
tókst vel upp. Myndirnar af rúmlega miðaldra
fundargestunum hoppandi, faðmandi hver ann-
an og tárfellandi í gleðivímu voru hins vegar
magnaðar. Er hippakynslóðin virkilega hætt að
fara í almennileg partí?
Árangurinn sem menn fögnuðu svo ákaft var
markmið um að láta lofthjúpinn ekki hitna um
meira en 2 gráður frá því sem var fyrir iðn-
byltingu (eða var það miðað við daginn í dag?),
helst ekki meira en 1,5 gráður. Nú, þegar allir
40 þúsund gestir ráðstefnunnar hafa flogið til
síns heima, er að renna upp fyrir mönnum að
til að ná þessu markmiði þarf allur heimurinn
að hætta að nota jarðefnaeldsneyti strax, alfar-
ið. Olía, kol og gas anna 85% orkunotkunar
mannkyns og það hlutfall hefur lítið breyst
undanfarna áratugi. Auðvitað vona allir að aðr-
ir orkugjafar geti veitt jarðefnaeldsneytinu
harðari keppni en þangað til það gerist er
vandséð að fundahöld um málið vegi þungt.
Það er hins vegar raunhæft fyrir Ísland að
draga verulega úr losun CO2 þar sem 72% af
losuninni stafa frá framræstu landi eins og
kom fram í skriflegu svari umhverfisráðherra
við fyrirspurn minni í haust. Aðeins um 14% af
framræsta landinu eru í rækt svo þarna eru
mikil tækifæri fyrir áhugamenn um minni los-
un gróðurhúsalofttegunda.
Þótt umhverfissinnar vilji ekki missa af al-
þjóðlegum veislum og gera sig gildandi í um-
ræðu um umhverfismál þá eru hvorki Ísland né
Íslendingar vandamál í loftslagsmálum. Áætl-
anir Íslendinga eru í raun ekki mjög áhuga-
verðar í þessu stóra samhengi þótt við getum
deilt reynslu okkar af nýtingu vatnsafls og
jarðvarma. Það eru hins vegar áform Kínverja
og Indverja. Kínverjar bera þegar ábyrgð á
drjúgum hluta losunar CO2 í heiminum en hafa
kynnt áform um að ræsa 155 ný kolaknúin
orkuver! Það hefði verið áhugavert að heyra
sjónarmið Kínverja í París um þessi áform.
Lof og loftslag í París
* Það hlýtur að vera hægtað bjóða þessu fólki íbetra partí en þetta.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Sigríður Á. Andersen
sigga@sigridur.is
Hrannar Pétursson, fyrrverandi
upplýsingafulltrúi Vodafone, er að
íhuga forseta-
framboð. Dag-
skrárgerðar-
maðurinn
Bergsteinn
Sigurðsson
skrifaði á Face-
book af þessu tilefni: „Hugmynd að
slagorði: Hrannar - hver annar?“
Rithöfundurinn Illugi Jökuls-
son bætir þar við í athugasemd:
„Þetta er nokkuð gott. Slær samt
ekki út slagorð
Ara Edwalds
þegar hann ætl-
aði sér frama í
pólitík. „Kjósið
Ara - af því
bara.““ Illugi
bætir við að reyndar hafi það verið
andstæðingar Ara sem hafi komið
slagorðinu á kreik en það sé jafn-
gott fyrir því.
Svanhildur
Hólm Vals-
dóttir lögfræð-
ingur birtir skjá-
skot af manni að
nafni Bob Burg
sem hafði sent
henni vinabeiðni á Facebook og
skrifar: „Kæru vinir - nenniði að
hætta að samþykkja fólk sem er
ekki til eða fólk sem þykist vera
annað fólk. Hér er vinabeiðni frá
einum slíkum. Myndin er af ein-
hverjum sérfræðingi sem kennir
fólki að eignast pening með því að
gefa og heitir Bob Burg og nafnið
virðist fengið hjá einhverjum Mart-
in sem býr í Suður-Afríku og líkist
Bob ekki neitt. Við eigum 40 sam-
eiginlega vini. Vona að þeim fari
fækkandi.“
Rithöfund-
urinn Birna
Anna Björns-
dóttir skrifar at-
hugasemd við
færsluna: „Besta
vísbending um gervifólk sem ég
kann er þegar allir sameiginlegu
vinir manns og viðkomandi eru
„frægir“ og Líf
Magneudóttir,
varaborg-
arfulltrúi Vinstri
grænna, segir:
„Ég hugsaði bara
þegar ég fékk
vinabeiðni frá þessum: „Þarna
kemur í ljós hverjir samþykkja
alla!““
AF NETINU
Á vefútgáfu hins geysivinsæla tímarits Wired birtist ítarleg umfjöllun í gærdag um Vestmanna-
eyjar en útgangspunktur greinarinnar er sá að þótt flestir þekki söguna af Pompei, fornu borg-
arinnar sem eyddist í eldgosi, viti færri af því að lítill bær á íslenskri eyju hafi hlotið sömu örlög
árið 1973; að fara undir hraun í eldgosi þótt vissulega hafi hann síðar meir byggst upp.
Í greininni er Vestmannaeyjabær kallaður „Pompei norðursins“ og er þar sagt frá heimsókn
ljósmyndarans Peter Holliday til Vestmannaeyja þar sem hann myndaði eyjarnar og fólk sem bjó
þar þegar gosið varð og býr þar enn en myndir hans eru nú til sýnis á Ljósmyndasafni Reykja-
víkur.
Wired um Vestmannaeyjar
Blaðamaður Wired kallar Vest-
mannaeyjar „Pompei norðursins“.
Ljósmynd/Peter Holliday
Frábærir dómar erlendis
Fufano fékk síðast dóm fyrir nýjustu plötu sína í
Guardian í gær, fjórar stjörnur.
Morgunblaðið/Eggert
Hljómsveitin Fufano, sem gaf út sína fyrstu
plötu á dögunum, Few More Days To Go, hef-
ur fengið frábæra dóma í erlendum miðlum
en One Little Indian gefur hana út í Evrópu
og Smekkleysa er útgáfuaðilinn hér á landi.
Ætlunin er að platan komi svo út í fleiri
heimsálfum. Nú síðast birtist dómur um hana
í Guardian en gagnrýnandi blaðsins gefur
henni fjórar stjörnur.
Ekki síður vekur það athygli blaðamanns-
ins að annar af stofnmeðlimum sveitarinnar,
Kaktus Einarsson, er sonur meðlims hljóm-
sveitarinnar Sykurmolanna, Einars Arnar
Benediktssonar.
Platan er komin út víða en One Little Indi-
an gefur hana út í Evrópu fyrst, svo fylgja
aðrar heimsálfur á eftir, en Smekkleysa á Ís-
landi. Auk dómsins í Guardian hefur birst
dómur í breska tónlistartímaritinu NME sem
gaf henni fjóra punkta af fimm og í The Line
Of Best Fit fékk hún 8,5 í einkunn þar sem
hæst er gefið 10.
Vettvangur