Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.12.2015, Side 37
20.12. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Mikið er í gangi á jólamarkaðinum við Elliðavatn um helgina,
upplestrar, tónlist og fleira. Harmonikkuleikarar mæta á
svæðið og jólasveinninn kemur við. Jólaskógurinn á Hólms-
heiði er opinn kl. 11-16 báða dagana.
Harmonikkuleikari og jólasveinn* Krakkar, þið gerðuð ykkar besta, og ykk-ur mistókst hrapallega. Lærdómurinn afþví er: Aldrei að reyna.
Homer Simpson
S
telpan sem er í aðalhlutverki
nýjustu bókar Gunnars
Helgasonar, Mamma klikk,
er öðruvísi en flest börn að
ákveðnu leyti. Höfundurinn vill þó
ekki fara nánar út í þá sálma, til að
skemma ekki fyrir væntanlegum
lesendum.
„Pælingin var að fjalla um það
hvernig er að ná ákveðnum aldri
og finnast mamma sín allt í einu
breytast,“ segir Gunnar. Til að
sjónarhornið yrði ekki of einhliða
ákvað hann að stelpan gæti ekki
verið „venjuleg“ og það hvernig
hún er öðruvísi skýrir einmitt
hegðun móðurinnar, að hluta til.
„Ég talaði meðal annars við for-
eldra í Félagi einstakra barna, við
stelpu sem er í svipuðum aðstæð-
um og aðalpersónan í bókinni, og
það breytti öllu fyrir mig.“
Tilkynnt var í vikunni að Þjóð-
leikhúsið hefði tryggt sér sýning-
arrétt á Mömmu klikk og hún yrði
sett á svið næsta vetur.
„Það kom mér á óvart en ég
stefndi samt að því að koma bók-
inni í leikhús,“ segir Gunnar. „Þeg-
ar ég skrifaði umsókn um rithöf-
undarlaun tók ég fram að sagan
myndi rata í leikhúsið!
Ég sýndi nokkrum bókina og Ari
[Matthíasson, þjóðleikhússtjóri]
sannfærði mig með frábærri hug-
mynd. Ég sá þetta fyrir mér sem
25 manna sýningu á stóra sviðinu
en hann er með aðrar pælingar
sem kemur í ljós hvað verður úr.“
Gunnar hefur lengi unnið við að
skemmta börnum sem leikari og nú
eru barnabækurnar orðnar nokkr-
ar. Hvers vegna allt þetta barna-
efni?
„Stutta svarið er þetta: Mér
finnst ég eiga heima í barnaefni.
Það felst einhver galdur í því; ég
finn það sérstaklega þegar leikið er
fyrir krakka og maður heyrir þá
hlæja. Mér finnst heimurinn verða
betri ef barn hlær. Ég get til dæm-
is ekki ímyndað mér að sýrlensku
börnin sem eru að koma hingað
hafi hlegið mikið á síðustu fjórum
árum. Ef við getum látið krakka
hlæja þýðir það að eitthvað sé í
lagi; þeim líður vel. Börn eiga að
geta hlegið, það er eitthvað stór-
kostlegt við það.“
Þegar Gunnar var 12 eða 13 ára
skrifaði hann sögu í skólanum.
„Hún var 10 blaðsíðum of löng mið-
að við forskrift en kennarinn var
svo ánægður að hann las hana í
drekkutíma. Þá hugsaði ég um það
í fyrsta sinn að ég gæti kannski
skrifað!“
Á ritgerðarprófi í menntaskóla
ákvað Gunnar svo að skrifa barna-
sögu. „Ég fékk 9,5 fyrir ritgerðina;
þetta lá einhvern veginn fyrir mér.
Ég las rosalega mikið þegar ég var
strákur, það var mikið talað um
barnabækur og mamma var dugleg
að koma með bækur, ræða þær og
láta mann lesa. Það skilaði sér í
þessum áhuga á bókunum og stuttu
eftir útskrift úr leiklistarskólanum
skrifaði ég fyrstu barnabókina.“
Árið 2008 hóf Gunnar störf hjá
Latabæ og segir það hafa breytt
lífi sínu. „Þetta var risafyrirtæki
sem einbeitti sér að barnaefni, ég
var í samskiptum við útlönd vegna
leiksýninga sem byggðar eru á
þáttunum og var meðal annars í
því að hreinskrifa leikrit. Þá hugs-
aði ég með mér: Af hverju hef ég
ekki skrifað meira? Ég sá eftir
þeim árunum sem ég hafði ekki
verið að skrifa!“
Á meðan Gunnar vann hjá Lata-
bæ fékk hann hugmynd að „risa-
stórri, sagnfræðilegri skáldsögu
fyrir börn en það var svo mikið
verk að ég ákvað að best væri að
æfa sig fyrst. Dustaði því rykið af
nokkurra ára gamalli hugmynd og
skrifaði fyrstu fótboltabókina.“
Þær urðu fjórar; Aukaspyrna á
Akureyri, Víti í Vestmannaeyjum,
Rangstæður í Reykjavík og Gula
spjaldið í Gautaborg. Gunnar segist
enn mikið spurður að því hvort
hann ætli ekki að skrifa fleiri fót-
boltabækur og veltir nú fyrir sér
bók sem gerist á EM í Frakklandi
og annarri um fótboltastelpur. „Svo
er ég með framhald af Mömmu
klikk á borðinu, þannig að það er
nóg framundan.“
MAMMA KLIKK
Ef barn hlær
batnar heimurinn
„Börn eiga að geta hlegið, það er eitthvað stórkostlegt við það,“ segir Gunnar.
Morgunblaðið/RAX
GUNNAR HELGASON, LEIKARI OG RITHÖFUNDUR, HEFUR
SKRIFAÐ ENN EINA BARNABÓKINA OG ER MEÐ NOKKRAR
Í UNDIRBÚNINGI, TIL DÆMIS FLEIRI FÓTBOLTABÆKUR.
KATHERYN WINNICK
Deeply involved in the Arts since its early days, RAYMOND WEIL is thrilled to
count acclaimed TV series Vikings’ leading star Katheryn Winnick as its new Brand
ambassador. Her strong personality, natural beauty and undisputable charisma
make her the perfect match for the independent Swiss matchmaker.
Join the discussiong using #RWKatherynWinnick
Söluaðilar:
Gilbert úrsmiður Meba - Rhodium GÞ - skartgripir & úr
Georg V. Hannah, Kef. Leonard Halldór Ólafsson, Ak.
Meba Úr & Gull, Hafnarf.
Collection noemia