Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.3. 2016 Ef marka má veðmangara í Bret-landi eru aðeins um 30% líkurá að að Bretar samþykki í júní að ganga úr Evrópusambandinu. Nokkrar kannanir hafa reyndar sýnt meirihluta með útgöngu en þá er oft um að ræða ótraustar netkannanir. En margir minna á að stóru kannana- fyrirtækin stóðu bókstaflega með brækurnar á hælunum eftir þing- kosningar í fyrra: ekkert þeirra hafði spáð því að Íhaldsflokkur Davids Camerons forsætisráðherra myndi hreppa þingmeirihluta. Meira en helmingur Breta segir í skoðanakönnunum að aðildarsinnar beiti hræðsluáróðri gegn útgöngu, spái allt að því heimsendi. En það sem flestir álitsgjafar segja að gæti snúið meirihlutanum gegn aðild er að flótta- og farandmannavandinn í álf- unni verði óviðráðanlegur. Ráðleysi æðstu manna ESB í því máli er með slíkum ólíkindum að jafnvel dyggustu stuðningsmenn fórna höndum. Fleira veldur því að margir efast um að Cameron geti strax byrjað að fagna sigri í þjóðaratkvæðagreiðsl- unni 23. júní. ESB hefur orðið fyrir miklum álitshnekki síðustu árin. Víð- ast hvar í sambandinu er enginn eða sáralítill hagvöxtur, atvinnuleysið er mikið, einkum hjá ungu fólki. Efnahagsvandi Grikkja er óleyst- ur, vinstristjórnin þar í landi hefur í örvæntingu stórhækkað skatta á fyr- irtæki. Þetta veldur því að þúsundir fyrirtækja hafa nú flutt sig um set til grannlanda og borga því ekki lengur skatta í gríska ríkiskassann. Niðurstaðan af margra mánaða til- raunum Camerons til að fá aukin sér- réttindi handa Bretum í ESB minnti á dæmisöguna um fjallið sem tók jóð- sótt og fæddi litla mús. Um það voru bresku blöðin sammála. Cameron, sem bar sig vel, hlýtur að hafa hugsað François Hollande Frakklands- forseta þegjandi þörfina þegar hann sagði á fundi með fréttamönnum að staða Breta í ESB væri óbreytt. Þeir hefðu haft ákveðnar undanþágur og hefðu þær enn! Nokkrir ráðherrar Camerons styðja útgöngu og ekki fer milli mála að heiftin í innbyrðis átökum íhalds- manna vegna málsins er orðin mikil. Önnur þjóðaratkvæða- greiðsla? Boris Johnson, hinn vinsæli borgar- stjóri Lundúna, ákvað eftir heim- komu forsætisráðherrans frá samn- ingafundum í Brussel að styðja útgöngu. Fyrst í stað virtist hann eiga við að fella bæri samninginn í von um annan betri. En Johnson tal- ar nú skýrt og segir að markmiðið sé að ganga út. Það flækir málin að einnig vilja út- göngusinnar að önnur þjóðaratkvæða- greiðsla verði haldin um þá skilmála sem menn sættast á við ESB ef sam- þykkt verður að ganga út. Hvað gerist ef Bretar fella skilmálana? Ráðandi menn í atvinnu- og fjár- málalífi Bretlands eru yfirleitt ein- dregnir andstæðingar útgöngu, leið- togi Verkamannaflokksins, Jeremy Corbyn, sem áratugum saman var á móti aðild, er nú í þeirra hópi. En hvarvetna í vestrænum löndum er nú vaxandi andúð á hefðbundnum, ráðandi öflum. Nóg er að fylgjast með uppgangi pópúlistaflokks Mar- ine Le Pen í Frakklandi og sigrum Donalds Trumps í Bandaríkjunum. Þessi samstaða flestra valdamanna í Bretlandi gæti því haft öfug áhrif, aukið áhugann á útgöngu. Til eru íhaldsþingmenn sem segja óþarfa að Bretar reyni að grafa und- an sambandi sem muni hvort sem er ekki standast tímans tönn. ESB sé dauðadæmt. Kannski eru þeir tæki- færissinnar sem aðeins eru að finna þægilega leið til að komast hjá því að svíkja leiðtoga sinn í júní. Aðrir ótt- ast að útganga Breta geti ýtt undir misklíð og upplausn í álfunni allri, yrði slæmt fordæmi. Sagnfræðingurinn Timothy Garton Ash varð þekktur fyrir skrif sín sem blaðamaður um Austur-Evrópu þeg- ar kommúnisminn hrundi. Hann gagnrýnir skrifræði í ESB, segir líka að að evrusamstarfið hafi verið fá- dæma illa hönnuð umskipti. Evran hafi sundrað fremur en að sameina. Valdið fátækt þar sem markmiðið hafi verið hagsæld. En Garton Ash segist fyrst og fremst óttast illa upp- vakninga: átökin milli Evrópuþjóð- anna síðustu þúsund ár. „Ég held að þörf sé á öllum þessum þráðum margvíslegrar samvinnu til að koma í veg fyrir að þær taki aftur upp gömlu óknyttina,“ segir Garton Ash. Hann geti ekki ímyndað sér að ef ófullkomið samband eins og ESB leysist upp muni Evrópa breytast í svæði þar sem lýðræðisleg, auðug þjóðríki eigi með sér frjálst og frið- samlegt samstarf. Það sé óraunhæf bjartsýni. Þess vegna eigi fólk að styðja veruna í ESB. Hrakspár takast á í Bretlandi Bretland verður áfram til, hvernig sem þjóð- aratkvæðið um ESB fer. En flestir ráðamenn í efnahagslífinu segja úrsögn þýða eymd og vesöld. Gömul og grá eyja? Síðasta uppákoman í ESB- slagnum í Bretlandi er frétt blaðsins Sun um að drottn- ingin sé á móti aðild. Hirðin vísar öllu slíku á bug. Leikkonan Emma Thomp- son, aðdáandi Jeremy Cor- byns, hneykslaði nýlega marga þjóðrækna landa sína þegar hún sagði það „brjálæði“ að yfirgefa ESB, Bretland væri bara „pínulítill þoku- og rign- ingarafkimi … gömul, grá eyja“ og varla í Evr- ópu. Hún sjálf væri fyrst og fremst Evrópubúi. AFP Boris Johnson, hinn vinsæli borgarstjóri í London, með reiðhjólið við heimili sitt. ’ Við höfum ekki minnkað opinber afskipti í Bretlandi til þess að sjá evrópskt risaveldi koma þeim aftur á í Evrópusamstarfinu. Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. ERLENT KRISTJÁN JÓNSSON kjon@mbl.is EVRÓPUSAMBANDIÐ BRUSSEL Óvíst er hvort eining næst í Evópusamband um samning við Tyrki sem miðar að því að minnka straum flótta- og farandmanna til Evrópu.Tyrkir vilja m.a. að tyrkneskir borgarar geti ferðast án áritunar til Evrópulanda. BANDARÍKIN WASHINGTON Barack Obama Bandaríkjaforseti gagnrýndi harkalega Breta og Frakka í viðtali við tímaritið Atlantic í vikunni. Sagði hann leiðtoga þeirra ekki hafa beitt sér í Líbýu til að hindra ringulreið eftir fall Gadaffis. BÚRMA AYPUYDAWN Leiðtogi stjórnar- andstöðunnar í Búrma, Aung San Suu Kyi, verður ekki forseti. Henni tókst ekki að fá herforingjastjórnina til að breyta lagaákvæði sem segir að forseti landsins megi ekki eiga börn utan heimalandsins. Fullvíst er talið að þingið kjósi náinn samstarfs- mann hennar í embætti forseta. Sérfræðingar fara nú yfir tugþúsundir skjala um liðsmenn Ríkis íslams, IS, sem fyrrverandi liðsmaður samtakanna lak í Sky-sjónvarpsstöðina. Um er að ræða upplýsingar um 22.000 manns. Reynist skjölin traust er um að ræða mikið áfall fyrir IS sem einnig hefur farið halloka á vígvellinum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.