Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Blaðsíða 27
13.3. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27 Róshildur Jónsdóttir og Snæbjörn Þór Stefánssonreka saman hönnunarfyrirtækið Hugdettu semvar stofnað árið 2008. Þau fengu þá hugmynd að starfa með öðrum vöruhönnuðum og gekk það vonum framar. „Hópurinn heitir 1plús1plús1 en við hittumst öll á sýningu í Stokkhólmi fyrir ári,“ segir Róshildur en í hópn- um auk þeirra eru finnsk hjón og sænsk kona. „Við náðum mjög vel saman bæði í faginu og sem vinir,“ segir hún og úr varð að þau myndu vinna saman að verkefni. „Þessi hugmynd varð til á fimm mínútum. En þá hugsuðum við: Við erum ekki í sömu löndunum, hvernig gætum við gert þetta,“ segir Róshildur en þá kviknaði sú hugmynd að allir myndu vinna saman að hlut án þess að sýna hinum vinnu sína fyrr en í blálokin. „Við hönnum hlut saman og gerum það eins og þegar maður brýtur upp á pappírinn,“ útskýrir Róshildur og vísar til leiks sem þekkist hjá börnum; að teikna efsta hlut og brjóta svo pappírinn þannig að næsti teiknar sinn hlut án þess að sjá hvað fyrsti gerði og þannig koll af kolli. Á þann hátt hanna þau hlutina „blindandi“ þar sem hvert teymi á einn þriðja í hlutnum. Lampar, kertastjakar, skápar og speglar voru viðfangs- efnin sem þau völdu sér. Allir hlutirnir eru í þremur pört- um. „Við vorum búin að ákveða hvernig hlutirnir eru skrúfaðir saman svo þeir passi saman, en við vissum ekki hvaða efni yrði notað,“ segir Róshildur. „Það er svo hægt að raða þessu saman á 27 mismunandi vegu, þrír í þriðja veldi.“ Buðum hinu óvænta upp í dans Það var fyrst núna um daginn sem þau hittust með sína parta og settu þá saman. „Þetta var algerlega óræður hlut- ur þangað til við hittumst,“ segir Róshildur en þau voru mjög ánægð með útkomuna. Við erum að bjóða hinu óvænta upp í dans,“ segir Snæbjörn. „Það myndi aldrei neinn hanna svona hlut og það sem gerist er að það kvikn- ar eitthvað nýtt sem maður sér ekki annars staðar. Maður fer ekki út í búð og kaupir eitthvað eftir þrjá aðila. Þessi skekkja sem verður kom okkur mjög á óvart, hversu fag- urt það er. Það er nettur ljótleiki við sumar samsetning- arnar og sumt er alveg rosalega fallegt. Svo gæti kúnninn kannski á endandum raðað sínu sjálfur saman. Þetta er al- veg ný hugsun í þessum geira,“ segir hún og hyggjast þau halda áfram samstarfinu og þróa fleiri hluti saman. „Þetta er það langskemmtilegasta sem við höfum öll gert,“ segir hún. „Það óvænta býr til eitthvað nýtt,“ segir Snæbjörn. „Það er eitthvað dulrænt og óvænt sem kemur,“ bætir Róshildur við. Sýningin er opin til 1. apríl en nánar má lesa um verkin á hugdetta.com og 1plus1plus1.net. Kertastjakarnir komu skemmtilega út en þeir fást hjá Spark Design Space. Lampi með skermi úr fiskbeinum er eitt af sköpunarverkum teymisins. Hið óvænta býr til eitthvað nýtt 1plús1plús1 heitir samstarfsverkefni vöruhönnuða frá þremur Norðurlandaþjóðum en þar fengu þeir að leika sér „blindandi“ saman. Afraksturinn er nú á sýningu í Spark Design Space á Klappar- stíg. Hjónin Róshildur og Snæbjörn eru íslenska teymið og segja verkefnið eitt það skemmtilegasta sem þau hafa gert á ferlinum. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’ Þessi skekkja sem verður kom okkur mjög á óvart, hversu fagurt það er. Það er nettur ljótleiki við sumar samsetn- ingarnar og sumt er alveg rosalega fal- legt. Svo gæti kúnn- inn kannski á end- andum raðað sínu sjálfur saman. Þetta er alveg ný hugsun í þessum geira. 1plús1plús1-teymið skipa þau Elina Aalto, Petra Lilja, Klaus Aalto, Snæbjörn og Róshildur. Klaus, Snæbjörn og Petra bregða á leik og leggjast hjá spegli sem er hann- aður af 1plús1plús1. Komdu og vertu eins og heima hjá þér EMPIRE Grátt eða brúnt slitsterkt áklæði Stærð: 80 × 70 × 102 cm 79.990 kr. 89.990 kr. ASPEN Klæddur leðri á slitflötum. Margir litir. Stærð: 80 × 85 × 102 cm 119.990 kr. 159.990 kr. CLARKSTON Leður La-Z-Boystóll. Brúnn, vínrauður eða svartur. Stærð: 97 × 102 × 118 cm 139.990 kr. 199.990 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.