Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Blaðsíða 23
Fengum hláturskast
í stórhríð
Ég spyr hvað sé það klikkaðasta
sem hún hafi lent í. „Það er þegar við
lentum í Grænlandsstorminum uppi
á Langjökli 2012. Það var í janúar og
svokallaður Grænlandsstormur
gekk yfir landið og við vorum að
taka upp bíómyndina Frost. Við er-
um uppi í tökum þegar stormurinn
skellur á. Þetta var frábært fyrir
myndina. Það var rosalegt, ég held
að það hafi farið upp í 50 metra. Við
vorum með tvo skúra þar sem við
héldum til og það var kaðall sem var
strengdur á milli kamarsins og skúr-
anna. Við máttum aldrei fara færri
en tvö og helst þrjú í einu á kam-
arinn. Ég og Magga Einars bún-
ingahönnuður þurftum að fara og
fórum saman. Við skriðum. Á miðri
leið komumst við ekki lengra, við
gátum ekki andað. Þá lögðumst við
niður, haldandi í kaðallinn, og feng-
um hláturskast! Þegar ég hugsa til
baka hugsa ég: vorum við að gefast
upp? Ég veit það ekki. Við vorum að
kafna. Við hefðum auðvitað verið
rammvilltar ef við hefðum ekki verið
með kaðallinn. Svo bara hlógum við
og hlógum. Á endanum þegar við
komumst að kamrinum og opnuðum
hann, þá var hann alveg lokaður af
snjó,“ lýsir hún.
Þau voru svo kölluð niður af jökl-
inum af Almannavörnum. „Og þegar
við fórum í trukkinn þá var hann bil-
aður. Við héldum þar til í nokkra
klukkutíma,“ segir hún en saman
voru þau um tuttugu manns. „Maður
hefur oft lent í einhverju, en þetta er
minnisstæðast.“
Eddan er heiður og virðing
Við tölum um Edduna. Og það tvær.
„Það er ótrúlega gaman að fá við-
urkenningu á störfum sínum, það er
ákveðin virðing. Og flott að vera
með það á ferilskránni,“ segir
Kristín en hún segist hafa orðið
hissa að vinna Edduna í ár. „Ég er
ekki að segja að ég eigi það ekki
skilið, því ég er mjög ánægð með
þessa mynd, Hrúta. En hinar, Heba
Þóris og Áslaug Sigurðar sem voru
tilnefndar með mér gerðu líka flotta
hluti. Mér fannst við allar eiga hana
skilið.“
Kristín talar um heiðursverðlaun
Eddunnar sem að þessu sinni komu í
hlut Rögnu Fossberg. „Ég er svo
ánægð að Ragna Fossberg, móðir
þessarar starfstéttar, skyldi fá heið-
ursverðlaunin. Það er svo mikil virð-
ing og heiður fyrir okkar stétt. Mér
fannst með þessu að okkar stétt færi
upp á næsta plan. Það loðir ennþá
við að framleiðendur spyrji, þarf
sminku?“
Hollywood heillar ekki
Ýmislegt er á döfinni á næstunni.
„Ég er að fara að gera stuttmynd
sem Nanna Kristín er að leikstýra
og Ólafur Darri leikur aðalhlutverk.
Síðan er alls konar sem ég er ekki
búin að skrifa undir,“ segir hún dul-
arfull.
„Hvað um Hollywood, kallar
það?“ „Nei, ég hef neitað mörgum
verkefnum. Þetta heillar mig ekki
neitt. Mig langar frekar að vera
gervahönnuður að íslenskri bíó-
mynd, heldur en að vera aðstoðar-
maður að erlendri. Fínt að vera góð
á Íslandi.“
Kaffið okkar er orðið kalt og
kominn tími til að kveðja. Ég spyr
að lokum: „Hefurðu lent í að gervi-
nefið af einhverjum festist bara
ekki?“ „Já, iðulega,“ segir hún og
hlær.
Ben Stiller lét lítið fyrir sér fara
þegar hann var hér við tökur en
hann var með sína eigin sminku.
Kristín segir að Sean
Penn hafi fengið sig
til að kikna í hnjánum
svo um munar. Það
kom henni verulega á
óvart að verða „star-
struck“.
Kristín segist njóta sín upp á jöklum en hér
sést hún á Langjökli um hávetur.
Sigurður Sigurjónsson
þurfti að láta skeggið vaxa
en einnig nefhár og tánegl-
ur fyrir myndina Hrúta.
13.3. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
N
ýbýlavegur8.-200
Kópavogur-S:527
1717
-
dom
usnova@
dom
usnova.is
-w
w
w
.dom
usnova.is
Frítt verðmat
Viltu vita hvað þú færð fyrir
fasteignina þína ?
Fasteignasala venjulega fólksins...
Fagljósmyndun
Traust og góð þjónusta alla leið