Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Blaðsíða 28
MATUR Ef þú þráir sætindi, ert með þokukennda hugsun, þjáist af hármissi,ert veikburða og veikist oft gæti verið að þig skorti prótín. Egg, kjöt,
fiskur, grísk jógurt, mjólk og hnetur eru full af prótíni.
Prótínskortur?
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.3. 2016
Getty Images/iStockphoto
Páskamat-
seðillinn klár!
Það fer að styttast í páskana og ekki seinna
vænna að fara að huga að matseðlinum. Grænir
safar mega bíða betri tíma því á hátíðisdögum er
um að gera að njóta þess að borða alvörumat!
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Skinka á beini (ef til), soðin (2-3 kg)
1 og 1/4 bolli púðursykur
1/3 bolli ananassafi (úr dós), geymdu
ananasinn til skreytingar
1/3 bolli hunang
1 appelsína, safinn og kjötið
2 msk. dijon sinnep
1/4 tsk. mulinn negull
Hitaðu ofninn í 165°C. Settu
skinkuna í fat eða eldfast mót.
Settu púðursykur, ananassafa,
hunang, appelsínusafann, sinnep
og mulda negulinn á pönnu og
láttu suðuna koma upp. Lækkaðu
þá hitann og láttu malla í 5-10
mínútur.
Bakaðu skinkuna í ofni í 2 tíma.
Taktu hana þá út og penslaðu með
sósunni. Bakaðu hana áfram í 30-
45 mínútur og penslaðu hana á 10
mínútna fresti. Berðu fram
skreytta með ananashringjum úr
dósinni.
Páskaskinkan
5 eggjahvítur
200 g ljós púðursykur
5 dl rice krispies
Þeytið eggjahvítur og púðursykur
vel saman. Bætið rice krispies út í
og hrærið varlega saman við með
sleikju. Skiptið deiginu á tvær
pappírsklæddar bökunarplötur í
hringi sem eru ca. 24 cm í þver-
mál. Bakið við 150 gráður í 1 klst.
FYLLING OG OFAN Á:
7 dl rjómi
3 kókosbollur
1 bolli smátt skorin jarðarber (+
nokkur heil til skreytingar)
½ bolli hrískúlur (t.d. Nóa kropp,
Góu brak, Freyju hrís eða annað)
BINGÓKÚLUSÓSA
1 poki/150 g bingókúlur (eða aðrar
súkkulaði/lakkrískaramellur)
1 dl rjómi
50 g suðusúkkulaði
SKRAUT
Jarðarber
Hrískúlur
Nokkrir bitar af púðursykurs-
marengsbotni sem er keyptur í búð.
Byrjið á sósunni. Bræðið allt sam-
an í potti við vægan hita. Setjið til
hliðar og leyfið að kólna. Þeytið
rjómann. Hrærið kókosbollunum
saman við. Setjið annan botninn á
tertudisk og dreifið skornu
jarðarberjunum yfir. Setjið svo
rúmlega helminginn af rjómanum
ofan á jarðarberin og hrískúlur
þar ofan á. Leggið hinn botninn
yfir. Dreifið restinni af rjómanum
yfir. Skreytið með jarðarberjum,
hrískúlum og marengsbrotum.
Hellið vel af bingókúlusósunni yfir
allt saman. Kælið í um 4 klst. áð-
ur en borið er fram. Frá eldhus-
perlur.com.
Rice krispies-marengs-
bomba með bingókúlusósu
Sæng og koddi kr. 12.936
Rúmföt kr. 6.742
Ullarteppi
kr. 8.245
25% afsláttur af
fermingargjöfum