Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Blaðsíða 12
Svarhlutfall er almennt lágt.
Í áðurnefndri könnun Vísis vildu
aðeins 39% svarenda taka afstöðu.
Í könnun Félagsvísindastofnunar
Háskóla Íslands sem birt var á þess-
ari síðu fyrir nokkrum vikum var
sama uppi á teningnum, aðeins um
þriðjungur svarenda tók afstöðu.
Fæstir virðast enn vita hvaða
manneskju er best treystandi til að
fara með lyklavöldin á Bessastöðum.
Sem er ekki óeðlilegt miðað við
hversu margir af þeim sem orðaðir
hafa verið við embættið liggja
undir hinum margfræga feldi.
Að minnsta kosti tíu ein-
staklingar hafa opinberlega sagst
vera að íhuga framboð, þar af sjö
konur.
Systurnar Guðrún Nordal og Sal-
vör Nordal hafa báðar sagst vera
að íhuga framboð. Eins og nefnt
var framar er Stefán Jón Hafstein í
sömu hugleiðingum og nýlega steig
Sigrún Stefánsdóttir fram og
sagðist einnig íhuga framboð til
forseta.
Áður hefur verið greint frá því
að Halla Tómasdóttir sé að hugsa
sinn gang, en skorað hefur verið á
hana að fara fram. Þá hefur ver-
ið skorað á Andra Snæ Magna-
son sem ku liggja undir feldi.
Einn forsetaframbjóðenda frá
því í síðustu kosningum,
Hannes Bjarnason, hefur
gefið það út að hann sé að
hugleiða framboð. Linda
Pétursdóttir íhugar það
að bjóða sig fram og hið
sama gerir Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir.
Nú í vikunni tilkynnti
svo Bryndís Hlöðvers-
dóttir að hún íhugaði að
gefa kost á sér.
Undan feldi eftir páska?
Eflaust eru fleiri en þessi tíu sem
liggja undir feldi án þess að hafa gef-
ið það sérstaklega út. Össur Skarp-
héðinsson er sagður liggja einnig
undir feldinum góða en sjálfur hefur
hann hvergi beinlínis staðfest þær
fregnir, án þess heldur að hafa úti-
lokað framboð.
Þess má vænta að margir hugsi
sér að nýta páskafríið í kúrið undir
feldinum góða en stíga svo fram úr
og undan feldi eftir páska.
Yfirlýsing Katrínar Jakobs-dóttur í vikunni um að húnhyggi ekki á framboð til for-
seta Íslands breytir baráttunni um
embættið – sem þó er vart farin af
stað.
Fram til þessa hefur nafn Katr-
ínar verið það sem oftast er nefnt í
skoðanakönnunum og um eða yfir
fimmtungur og allt upp í fjórðungur
spurðra hafa jafnan nefnt hana sem
ákjósanlegasta forsetaefnið. Nú
þegar ljóst er að hún ætlar alls ekki
að gefa kost á sér kunna margir að
fara af meiri krafti af stað í und-
irbúning síns framboðs.
Stefán Jón Hafstein, einn þeirra
sem hafa oft verið orðaðir við fram-
boð, sagði í samtali við mbl.is í kjöl-
far yfirlýsingar Katrínar að staðan
væri breytt. Hann staðfesti að vera
sjálfur að velta fyrir sér framboði en
sagðist ekki hafa tekið ákvörðun
enn.
Vinsæll prestur í slaginn
Vigfús Bjarni Albertsson, sjúkra-
húsprestur á Landspítalanum, til-
kynnti framboð sitt um síðustu helgi.
Vigfús tilkynnti framboðið með
formlegum hætti á Borginni þar sem
stuðningsmenn hans blésu til hófs.
Vigfús virðist hafa afar þéttan hóp
stuðningsmanna í kringum sig en
þarf líklega að nýta næstu vikur vel í
að kynna sig betur fyrir þjóðinni,
enda ekki beint landsþekktur.
Vigfús Bjarni hefur skrifað þó-
nokkra pistla á vefinn tru.is þar sem
þeir sem þekkja ekki til hans geta
kynnst hans viðhorfum. Þá er að
Þau sem eru
undir feldi
Sjö konur og þrír karlar hafa með einum eða öðrum
hætti lýst því yfir á opinberum vettvangi að þau
íhugi framboð til forseta. Staða þess hóps sem er
undir feldi breyttist í vikunni þegar sigurstrangleg-
asti kandídatinn sagðist ekki ætla að vera með.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Getty Images/iStockphoto
Hannes
Bjarnason
Andri Snær
Magnason
Guðrún
Nordal
Halla
Tómasdóttir
Salvör
Nordal
Linda
Pétursdóttir
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Bryndís
Hlöðversdóttir
FORSETAVAKTIN
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.3. 2016
Auk þeirra tíu sem eru form-
lega undir feldi (og þeirra sem
kunna að vera óformlega und-
ir honum líka) hafa átta ein-
staklingar opinberlega lýst yf-
ir framboði til forseta Íslands.
Enginn hefur enn skilað inn
meðmælendalistum, sam-
kvæmt upplýsingum úr innan-
ríkisráðuneytinu, en ein-
hverjir eru þegar farnir að
safna undirskriftum.
Frambjóðendurnir átta eru
Elísabet Kristín Jökulsdóttir,
Þorgrímur Þráinsson, Hildur
Þórðardóttir, Ari Jósepsson,
Sturla Jónsson, Ástþór Magn-
ússon, Heimir Örn Hólm-
arsson og Vigfús Bjarni Al-
bertsson.
FORSETAEFNI
Átta í
framboði
TIL KOSNINGA
15 vikur
finna þónokkrar greinar eftir hann á
framboðsvefnum www.vigfus-
bjarni.is. Í könnun Vísis í vikunni
naut þessi nýjasti frambjóðandi
stuðnings 12% af þeim sem afstöðu
tóku í könnuninni. Nokkrum dögum
fyrr kom annar frambjóðandi fram,
Heimir Örn Hólmarsson rafmagns-
tæknifræðingur.
Það vekur þó athygli í könnunum
sem gerðar hafa verið á fylgi mögu-
legra og ómögulegra forsetafram-
bjóðenda að fáir taka enn afstöðu.
Sigrún
Stefánsdóttir
Stefán Jón
Hafstein
góðgæti frá Jóa Fel
Ekta súrdeigsbrauð, gerlaust
og enginn viðbættur sykur
Klettabrauð
að hætti Jóa Fel