Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Qupperneq 17
Morgunblaðið/Eggert
13.3. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
Þetta leggst frábærlega í mig. Einsog hvert annað mannsbarn á Ís-landi er ég þrælspenntur fyrir
þessu móti,“ segir Guðmundur Bene-
diktsson, sem mun lýsa öllum leikjum Ís-
lands á EM og öðrum helstu leikjum á
mótinu.
„Það er dásamlegt að fá að taka þátt í
þessu móti, þó það sé ekki með sama
hætti og mig dreymdi um í æsku. En nær
kemst ég líklega ekki þeim draumi. Og
það mat byggi ég á ástandi líkamans,“
heldur hann áfram og skellir upp úr. „En
að öllu gríni slepptu þá er það mikill
heiður fyrir mig að vera fenginn til að
lýsa frá þessum risastóra viðburði.“
Guðmundur viðurkennir að beiðni
SkjásEins hafi komið honum á óvart enda
er hann í fullu starfi sem íþróttafrétta-
maður hjá öðrum fjölmiðli, 365. „Miðl-
arnir náðu samkomulagi sín á milli og
fyrir það er ég þeim báðum afar þakk-
látur. SkjáEinum fyrir að leita til mín og
365 fyrir að lána mig í verkefnið. Ég er
bara lánaður eins og hver annar leik-
maður og sný aftur til minna starfa hjá
365 að EM loknu,“ segir Guðmundur og
bætir við að hann sé einnig þakklátur
hinum vinnuveitanda sínum, KR, þar sem
hann gegnir starfi aðstoðarþjálfara
þjóðarstoltið hjá okkur Íslendingum – en
þetta verður eitthvað ennþá meira. EM í
Frakklandi verður eitthvað sem við mun-
um aldrei gleyma.“
Guðmundur segir rétt að stilla vænt-
ingum í garð íslenska liðsins í hóf en þó
sé alveg ljóst að liðið fari ekki til Frakk-
lands bara til að vera með. „Það er eng-
in ástæða til svartsýni. Það getur enginn
bókað eitt né neitt gegn íslenska liðinu
og í fyrsta leiknum verður öll pressan á
Portúgal og stórstjörnunni þeirra. Ég sé
okkur ekki tapa þeim leik. Sjáum svo
bara til með framhaldið. Þetta verður
stórkostleg veisla!“
meistaraflokks karla, fyrir að gefa sér
grænt ljós til að taka verkefnið að sér en
Guðmundur mun lýsa leikjum Íslands frá
Frakklandi.
Fyrst og fremst stolt
„Það er fyrst og fremst stolt sem kemur
upp í hugann,“ svarar Guðmundur þegar
hann er beðinn að ímynda sér hvernig
honum verði innanbrjósts þegar íslenska
liðið gengur inn á völlinn í fyrsta leikn-
um. „Það eru ekki allir búnir að átta sig
á því hversu risastórt það augnablik
verður og gera það örugglega ekki fyrr
en á það reynir. Það er jafnan stutt í
Eitthvað sem við munum aldrei gleyma
Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir viðurkennir að hún sé nú enginn sér-
fræðingur um knattspyrnu. En þannig er það einmitt hugsað, hlut-
verk þeirra Hugrúnar Halldórsdóttur verður að fjalla um stemn-
inguna og mannlífið kringum mótið í stað þess að rýna endilega í
sparkið sjálft. Og finna öðruvísi vinkla.
„EM verður hálfgerð þjóðhátíð enda
munu margir sem alla jafna fylgjast ekki
með fótbolta sökkva sér á kaf í stemn-
inguna. Okkar hlutverk verður að
finna áhugaverðar sögur í kringum
mótið, hvort sem það er í heima-
húsum, í fyrirtækjum eða á götum
úti, og tala tungumál almennings. Það
verður nóg af sérfræðingum til að
greina leikina sjálfa,“
segir Sigríður Þóra.
Hún gerir ráð fyrir
að verkefnið verði
svakalega skemmti-
legt og líst vel á
samstarfshópinn.
„Við þekkjumst
misvel innbyrðis og
fyrir vikið gæti dýna-
míkin á milli okkar orðið
mjög skemmtileg.“
Sigríður Þóra er hóf-
lega bjartsýn á gengi Ís-
lands á EM. Liðið hafi
alla burði til að koma á
óvart. „Það er stór-
kostlegt afrek hjá lið-
inu að komast á
þetta mót og mín
tilfinning er sú að
þetta sé bara byrj-
unin hjá þeim.“
Verður hálfgerð þjóðhátíð
Gylfi Þór Sigurðsson,
skærasta stjarna
íslenska liðsins.
Kolbeinn Sigþórsson
skorar gegn Tékkum
á Laugardalsvellinum.
Morgunblaðið/Eggert
Tólfan, stuðningshópur
landsliðsins, mun gegna
stóru hlutverki í sumar.
Morgunblaðið/Golli