Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Page 20
VIÐTAL
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.3. 2016
E
dduverðlaunastyttan sem
Kristín Júlla fékk í fyrra
fyrir förðun í Vonar-
stræti hefur fengið fé-
lagsskap. Nú standa
þær tvær saman því Kristín fór heim
með aðra styttu um daginn, að þessu
sinni fyrir förðun í kvikmyndinni
Hrútum; mynd sem sópaði til sín ell-
efu verðlaunum. Kvikmyndasmink-
an Kristín hefur í nógu að snúast og
margt hefur drifið á daga hennar
síðan lífið tók aðra stefnu.
Fjórtán tíma dagar
Kristín kemur til dyranna eins og
hún er klædd, eða réttara sagt inn á
kaffihúsið í Borgartúni. Hún er
frjálsleg til fara í flaksandi köflóttri
skyrtu og lítið sem ekkert máluð.
Förðunarmeistarinn segist yfirleitt
bara nota dagkrem og maskara. En
persónurnar sem hún skapar eru
vandlega farðaðar, oft svo vel að það
lítur út fyrir að þær séu það alls
ekki! Við súpum á tvöföldum latte og
hefjum spjallið.
Kristín á ættir að rekja til Siglu-
fjarðar þar sem hún á hús en er upp-
alin og býr enn í Garðinum, lengst
suður með sjó. Þar býr hún með
manni sínum Guðmundi, sem er sjó-
maður og tveimur sonum en elsti
sonurinn er fluttur að heiman.
Hún vill hvergi annars staðar búa
en segir stundum leiðigjarnt að
keyra til og frá vinnu til höfuðborg-
arinnar. „Það er yndislegt að vera í
Garðinum en ég er dálítið leið á því
síðustu ár að vera alltaf að keyra á
milli. Það getur verið erfitt á vet-
urna; þetta er búið að vera þungur
vetur. Ég er svona klukkutíma á
milli staða og þegar það eru tólf tíma
tökudagar verður dagurinn minn
fjórtán tímar,“ segir hún.
Skyndiákvörðun
sem breytti öllu
Kristín rekur sitt eigið fyrirtæki,
Júlla ehf. og segist hafa nóg að gera.
Verkefnin bíða hennar í röðum. En
hún hefur ekki alltaf verið í þessum
bransa. Áður en hún fór í förðunar-
nám var hún í ýmsum störfum en
hún varð ung móðir. Þegar hún var
rúmlega þrítug, þriggja barna móðir
í Garðinum, var hún orðin leið og
þyrsti í að komast í spennandi starf.
„Ég er svo mikill spennufíkill og það
hentaði mér aldrei að vinna níu til
fimm. Þetta var skyndiákvörðun í
raun og veru. Ég sá auglýsingu frá
No Name-förðunarskólanum og
hugsaði bara, já, já, ég læri þetta og
fer að vinna við kvikmyndir,“ segir
hún en mörgum fannst hún setja
markið hátt. „Fólki fannst ég bara
klikkuð, maður fer ekkert bara og
lærir förðun og fer svo að vinna við
kvikmyndir en ég ætlaði aldrei að
fara í árshátíðarfarðanir. Ég fór með
þetta markmið, að fara að vinna við
auglýsingar eða bíó,“ segir Kristín.
Byrjaði ferilinn
í sjálfboðavinnu
„Ég trúi mjög á alheimslögmálið,“
segir Kristín er hún fékk strax verk-
efni í kvikmyndum. „Ég tók ákvörð-
un um að fara í kvikmyndaskólann
og bauð mig fram í útskriftarverk-
efnin hjá nemendunum þar. Þá var
Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri
skólastjóri þar og hún var mjög hrif-
in af þessari hugmynd. Þau borguðu
bara bensínið. Þar kynntist ég því að
vera á setti og kynntist fullt af fólki
sem er í dag fólk sem er að vinna í
bransanum,“ segir hún.
Eftir þessa reynslu fór Kristín á
framhaldsnámskeið í förðun hjá
Eskimó en þar kenndi Fríða María
Harðardóttir. „Þar kynntumst við
mjög vel og hún var á fullu að vinna í
auglýsingum. Hún tók stóra áhættu
og sendi mig að vinna í Coca Cola-
auglýsingu sem hún ætlaði að gera
og Reynir Lyngdal leikstýrði. Þetta
voru þriggja daga tökur. Þetta var
fyrsta reynslan mín í að bera
ábyrgð. Þarna var ég bara komin
inn. Það var hringt í mig fljótlega
aftur út af auglýsingu,“ segir Kristín
en eftir þetta fór boltinn að rúlla.
Að búa til venjulegt fólk
Ég spyr hvað sé skemmtilegast við
starfið. „Að fá að skapa. Að fá að
skapa karaktera. Mér finnst bara
ótrúlega gaman að fá að búa til
venjulegt fólk,“ segir hún. Ég hvái.
„Búa til venjulegt fólk?“ „Já, venju-
legt fólk, oft er það mesta vinnan.
Tökum dæmi með Rétt þar sem að-
alpersónurnar, sem Steinunn Ólína
og Steini Bach leika, eru bara alger-
lega venjulegt fólk. Það er ekkert
búið að búa til glamúr í kringum það,
svona er bara fólk,“ segir Kristín.
„Þarftu þá mikið að gera?“ spyr ég
sem ekkert veit um kvikmyndaförð-
un. „Jú, það er svo fyndið, maður
þarf einmitt svo mikið að gera. Eins
og í Rétti, ég er að mála Steinunni
Ólínu heilmikið. Það er oft mesta
trixið, að búa til þetta náttúrulega.
Við vorum að búa til hana Gabríelu.
Steinu fannst geggjað að fá að leika
þennan karakter og við þurftum að
taka hana heilmikið niður, hún er
glæsileg kona og alltaf flott. Þetta er
líka erfitt fyrir leikkonu, að líta alltaf
út fyrir að vera svona, með hárið
alltaf dáldið slepjað. Þetta var heil-
mikil vinna, við þurftum til dæmis að
byrja alla morgna að setja rúllur í
hárið, þú hefðir aldrei trúað því!
Hún er með smink, meik og maskara
en þú sérð það ekki,“ útskýrir Krist-
ín. „Það er alveg vinna að gera fólk
„dull“!“
Siggi safnaði tánöglum
í marga mánuði
Kristín naut þess mjög að vinna að
myndinni Hrútum. „Mér finnst svo
skemmtilegt að gera bíómynd þar
sem þú sérð ekki að fólkið er farðað,
og þannig á það líka að vera,“ segir
hún. „Ef búningar og smink eru ekk-
ert áberandi heldur falla algerlega
að öllu hinu, þá er það vel heppnað.
Eins og með Hrúta, ég er rosa stolt
af henni. Þar er ýmislegt sem fólk
gerir sér ekki grein fyrir. Ég lét
Sigga Sigurjóns safna tánöglum í
marga mánuði! Hann þurfti að hafa
langar og gular táneglur en hann
klippir þær einmitt í myndinni. Lísa
konan hans Sigga var ekkert ánægð
með mig! Og hann að safna öllu
þessu skeggi,“ segir Kristín og bros-
ir að þessu. „Allt sem ég gat til að
gera hann slæman! Ég lét hann
safna hárunum í nefinu og hann
mátti ekki klippa augabrúnirnar,“
segir hún hlæjandi. „Hvernig fannst
honum þetta?“ spyr ég. „Honum
fannst það æðislegt! Ótrúlegur mað-
ur, samvinnuþýður. Honum fannst
þetta bara æðislegt. Þeir fóru í svo
mikinn karakter, hann og Teddi, og
æfðu þetta mjög lengi,“ segir Kristín
en hún segist njóta þess að vinna
með slíkum listamönnum.
Pústað í stólnum
hjá Kristínu
Oft setjast leikarar í stólinn hjá
Kristínu og fá útrás. „Þá verða þeir
svo miklir vinir manns. Þetta er
mjög náin vinna. Persónulegustu
tengsl leikara eru við sminkuna,“
segir hún. „Ertu eins og barþjónn-
inn, eins konar sálfræðingur?“ „Já,
algjörlega. Það er 100% trúnaður
þarna inni. Við erum fyrir luktum
dyrum. Það er pústað í þessum stól!
Leikari kemur kannski illa stemmd-
ur eða þreyttur og kemur inn til okk-
ar og svo mætir hann á sett eftir
klukkutíma og allt í góðu, lítur ótrú-
lega vel út og ekki að sjá að neitt hafi
verið að. Leikstjóri veit aldrei hvað
er búið að ganga á. Leonardo di
Caprio lýsti þessu vel í ræðu einu
sinni en þar þakkaði hann sér-
staklega sminkunni sinni. Hann
sagði einmitt að leikarar væru ekki
neitt ef ekki væri fyrir sminkurnar á
slæmum dögum.“
Móri er í uppáhaldi
Kristín segir að Móri í Vonarstræti
sé sá karakter sem hún haldi mest
upp á af sínum sköpunarverkum.
„Ég held að það verði bara alltaf
Móri. Bæði útlitslega og ekki síður
karakterinn sem lifnaði svo við að
hann er ennþá í lífi mínu. Maður trú-
ir svo virkilega að Móri sé bara til.
Við Steini áttum ótrúlega náið
vinnusamband, þetta var ekkert
smá, hann var í stólnum hjá mér tvo
til þrjá klukkutíma á hverjum
morgni. Hann er með gerviskegg og
gervihár og gervitennur,“ segir
Kristín en ekki var hægt að láta Þor-
stein safna skeggi vegna annarra
sena þar sem hann var skegglaus.
Hún lýsir þessu nánar. „Móri var
með alskegg alla myndina og það
eru límingar. Það eru alveg ótrúlega
mörg „extreme close up“ í þessari
mynd. Það var líka svo góð samvinna
á milli okkar Steina og það var aldrei
farið af stað án þess að ég væri búin
að fara yfir allt,“ segir hún sem fylg-
ist með öllum tökum á mónitor og
getur því gripið inn í ef hún sér að
gervið er ekki að virka.
Þetta er líka oft mikil samvinna
með ljósamönnunum. „Eins og í
Að skapa
venjulegt fólk
Kristín Júlla Kristjánsdóttir var venjuleg þriggja barna móðir í Garðinum
þegar örlögin tóku í taumana og ein auglýsing í blaði breytti öllu. Hún
ákvað að fara að farða fyrir kvikmyndir og auglýsingar. Nú, rúmum áratug
síðar, gerir hún það gott í bransanum. Tvær Eddur sitja á hillunni og ótal
skemmtilegar minningar hafa skapast sem hún deilir með lesendum.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
’ Ég lét Sigga Sigurjóns safna tánöglum í margamánuði! Hann þurfti að hafa langar og gular tá-neglur en hann klippir þær einmitt í myndinni. Lísakonan hans Sigga var ekkert ánægð með mig!