Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Qupperneq 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Qupperneq 22
yfir var Sean Penn. Ég hefði aldrei trúað því. Ég hélt að ég myndi aldr- ei verða það. Það er bara mottó hjá mér að það er enginn æðri en ann- ar,“ segir Kristín og lýsir því hvern- ig það var þegar hún sá Sean Penn í fyrsta sinn. „Við vorum fyrir austan í tökum þegar Sean Penn kom. Hann labbar inn á hótelið, lítill og hjólbeinóttur „hillbilly“ í kúreka- skyrtu og gallabuxum, í bomsum með derhúfu. Sko, svo mikill „hill- billy“! Hann labbar bara inn og í al- vörunni, þá gerist það sem fólk talar um, ég fékk í hnén! Ég kiknaði bara,“ segir hún og brosir. Hún segir Penn hafa verið alþýð- legan og hann hafi til að mynda af- þakkað bílstjóra og viljað keyra sjálfur. „Hann kveikti sér bara í síg- arettu inni og enginn þorði að segja neitt og svo drap hann bara í á mat- ardiskinum. Og það voru bara allir eins og ég með í hnjánum,“ segir hún og hlær. „Einu sinni hlammaði hann sér við hliðina á mér í mat- artjaldinu! Og þá gat ég ekki borð- að,“ segir hún og sýpur hveljur yfir tilhugsuninni. Frjáls eins og fuglinn á jöklum Starfið hefur leitt Kristínu víða en hún hefur ferðast bæði innanlands og erlendis til að farða. Hún segir það, ásamt að búa til karaktera, það skemmtilegasta við starfið. „Það er eitt það skemmtilegasta sem ég geri, þessi forréttindi að fá að ferðast svona mikið. Þó að mér hafi alltaf þótt gaman að skoða landið mitt þá gerum við það ekki eins í þessum bransa, því við erum oft að fara á einhverja leynda staði. Ég er alveg sjúk í jöklana, bæði Langjökul og Vatnajökul. Það er heilun að vinna á þessum stöðum. Að vera uppi á jökli í heilan dag og ekki í símasambandi. Og í alvörunni, maður verður eins og fuglinn, svo frjáls. Maður losnar við allt, allar áhyggjur,“ segir hún upp- numin. „Svo hef ég unnið í svissnesku Ölpunum. Það var mikil upplifun að vinna í 3.000 metra hæð og fara í kláf í vinnuna. Ég að deyja úr lofthræðslu, ég hugsa að ég geri þetta aldrei aftur í lífinu!“ segir hún. Móri, aðalpersóna í Vonarstræti sem leikinn er af Þorsteini Bach- mann, er uppáhaldskarakterinn sem Kristín hefur skapað. ’ Við vorum fyrir austaní tökum þegar SeanPenn kom. Hann labbar inná hótelið, lítill og hjólbein- óttur „hillbilly“ í kúreka- skyrtu og gallabuxum, í bomsum með derhúfu. Sko, svo mikill „hillbilly“! Hann labbar bara inn og í alvör- unni, þá gerist það sem fólk talar um, ég fékk í hnén!“ Kristín farðar Sigurð Sigur- jónsson í útitökum á myndinni Hrútum í kulda og trekki. Kristín vann við þýsku heim- ildamyndina Amundsen vs. Scott sem fjallar um kapphlaupið á Suðurpólinn árið 1912. Það fór vel á með Kristínu og Theodóri Júlíussyni leikara. VIÐTAL 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.3. 2016

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.