Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Qupperneq 36
FERÐALÖG
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.3. 2016
Íbúar og gestir Genóa sóla sig á almenningsströndinni Santa Margherita Ligure. Stór hluti strandlengjunnar á ítölsku rívíerunni, og víðar um Ítalíu, er í eigu einkaaðila og því þarf að greiða fyrir aðgang.
Cinque Terre þýðir bókstaflega löndin fimm en um er að ræða fimm falleg
strandþorp á vesturströnd Ítalíu, í Liguria héraði.
AFP
Dómkirkjan í Mílanó er engri lík og eiginlega er hægt að skoða hana aftur og
aftur og sjá alltaf einhverjar nýjar hliðar og smáatriði sem gleðja augað.
AFP
Frá Mílanó og áfram
Tískuborgin Mílanó fellur oft í skuggann af öðrum ítölskum borgum, en það
er vel þess virði að verja nokkrum dögum í að rápa þar um, skoða fræg
kennileiti og þræða matarmarkaði. Þá er tilvalið að taka lest frá Mílanó og
sóla sig á ítölsku rívíerunni eða heimsækja falleg strandþorp.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Góður matur og afslappaðandrúmsloft er það semmargir tengja við ítalskan
lífsstíl. Fá lönd hafa náð jafn langt í
að laða að sér ferðamenn eins og
Ítalía, en samt er hægt að fara þang-
að án þess að þurfa að tæma budduna
eða lenda í endalausum túristagildr-
um. Mílanóborg er ekki endilega sú
borg sem fer efst á listann yfir þær
sem taldar eru eftirsóknarverðar til
að heimsækja á Ítalíu. Margir ein-
faldlega aka í gegnum borgina eða
nota flugvöllinn til millilendingar. Ve-
rona, Flórens og Feneyjar eru róm-
antískari og Róm toppar allar aðrar
þegar kemur að menningarverðmæt-
um og flúruðum minjum. En Mílanó
er lifandi og skemmtileg borg sem er
gaman að heimsækja og tiltölulega
þægileg yfirferðar.
Beint flug frá Íslandi
yfir sumarið
Beint flug er til Mílanó hjá Icelandair
frá því í lok maí og til loka ágúst. Hjá
WOW er flogið beint til Mílanó frá því
í byrjun júní og þar til í byrjun októ-
ber.
Borgin sjálf hefur upp á margt að
bjóða. Það er vel þess virði að skoða
Duomo, dómkirkju borgarinnar og
helsta kennileiti hennar. Meðal
merkra minja borgarinnar sem er
erfitt að láta framhjá sér fara, eigi að
heimsækja borgina á annað borð, er
síðasta kvöldmáltíðin eftir Leonardo
da Vinci í kirkjunni Santa Maria delle
Grazie. En eins og með alla fjölfarna
staði er gott að kynna sér vandlega
fyrirfram hvenær þeir eru opnir (og
helst mæta snemma morguns áður en
röð tekur að myndast).
Mílanó eru auðvitað þekkt sem
tískuborg og það er ekki erfitt að
finna fatabúðir í borginni.
En það er líka vel þess virði að
kynna sér matarmarkaði sem eru
víða um borgina. Þá koma bændur úr
nágrannabæjum og selja sínar vörur
beint úr þar til gerðum bílum. Flest
hverfi borgarinnar eru með sína
markaði á vissum dögum. Vart er
hægt að hugsa sér ferskari afurðir en
þær sem er ekið rakleitt frá býli, auk
þess sem verðið á matarmörkuðunum
er jafnan lægra en í matvöruversl-
unum. Fyrir utan hvað stemningin er
góð.
Innan borgarinnar er neðanjarð-
arlestarkerfi sem er þægilegt og ein-
falt í notkun. Fyrir þá sem vilja njóta
útsýnis meðan farið er milli staða í
borginni er upplagt að ferðast með
sporvögnum.
Mílanóborg er ekki sérlega stór
svo það er líka auðvelt að komast fót-
gangandi milli staða. Fyrir þá sem
vilja sjá meira af Ítalíu, og jafnvel
komast á strönd, er til dæmis hægt að
verja 3-4 dögum í Mílanó og halda svo
af stað í að skoða fleiri staði á Ítalíu.
Þótt Mílanóborg sé ekki við sjó er
tiltölulega einfalt að taka lest frá
borginni og komast þannig á fallega
ítalska strandstaði. Lestarsamgöng-
ur eru almennt góðar á Ítalíu og til-
tölulega ódýrt að ferðast með lestum
milli staða.
Nágrannaborgin Genóa er miðjan
á hinni svokölluðu ítölsku rívíeru, en
strandlengja Liguria-héraðs gengur
jafnan undir því nafni. Um einn og
hálfan tíma tekur að komast með lest
frá Mílanó til Genóa. Þessi aldna
hafnarborg er mikil matar- og menn-
ingarborg og hluti gamla bæjarins í
Genóa er á heimsminjaskrá
UNESCO.
Cinque Terre eru vinsæll viðkomu-
staður ferðamanna, enda fátt sem
toppar fegurð þessara fimm þorpa.
Þessi víðfrægu þorp hanga nánast ut-
an í klettum á ströndinni vestur af La
Spezia á vesturströnd Ítalíu. Það er
vel þess virði að gera sér ferð þangað,
en um þrjá tíma tekur að komast með
lest til Cinque Terre frá Mílanó.
Þá má nefna að frá Mílanó er að-
eins klukkustundar lestarferð til hins
fagra Gardavatns þar sem finna má
skemmtigarða og fádæma náttúru-
fegurð. Frá Mílanó eru ferðamönnum
því nánast allir vegir færir.
Litrík húsin við höfnina í Porto Venere nálægt Lerici, sem er suður af Genóa,
eru heillandi. Í Porto Venere eru þrjú þorp, öll á heimsminjaskrá UNESCO.
Ítalíuvefurinn góði
www.minitalia.is er kjörin
uppspretta fróðleiks um Ítalíu
og allar hennar lystisemdir.
Á skemmtilegu ferðabloggi
á slóðinni www.where-
milan.com má finna ýmsar
upplýsingar um Mílanó og
meðal annars lista yfir matar-
markaðina og hvenær þeir eru.
VAFRAÐ UM ÍTALÍU
Kannið allan kostnað
Það borgar sig að kynna sér vandlega hvað kostar að ferðast
með skíði og skíðaskó milli landa. Oft rukka flugfélög svo
mikið fyrir að bera búnaðinn milli landa að það jafnvel borg-
ar sig að skilja skíðin eftir heima og leigja þau á staðnum.