Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Blaðsíða 50
Í Meðgönguljóða-
seríunni hafa
komið út þrettán
bækur og þrjár
eru væntanlegar
til í næsta mán-
uði. Því til við-
bótar hafa komið
út ljóðasöfn, þýð-
ingar og líka smásögur sem gefnar
eru út undir heitinu Meðgöngumál,
en hugmyndin með þeirri útgáfu er
að skapa bókarform sem auðvelt sé
að kippa með sér á hlaupum, eða
eiga með kaffinu. Líka er útgáfan
viðleitni til að vinna með form smá-
sögunnar sem heild, að sögn Fríðu
Ísberg, sem er einn af ritstjórum
Meðgöngumála, með þeim Brynjari
Jóhannessyni og Elínu Eddu Páls-
dóttur.
„Þegar fólk les smásögusöfn les
það yfirleitt nokkrar sögur í einu,
með sömu rödd „sögumanns“ í
huga – les söfnin eins og skáldsögu.
Serían er tilraun til þess að upp-
fylla kröfu smásögunnar – að hún
sé lesin stök, sjálfstæð, óháð safn-
inu sínu. Þetta er vissulega líka
gert í bókmenntaritum, en ekki jafn
afgerandi og í stakri útgáfu.“
Í næstu viku koma út þrjú Með-
göngumál, smásögur Herthu Maríu
Richardt Úlfarsdóttur, sem Fríða
ritstýrir, og Björns Halldórssonar.
Fleiri Með-
göngumál
Fríða Ísberg
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.3. 2016
LESBÓK
Fyrir fimm árum ákváðu þauValgerður Þóroddsdóttir,Kári Tulinius og Sveinbjörg
Bjarnadóttir að hrinda af stað ljóða-
útgáfu enda fannst þeim nútíma-
ljóðlist ekki nógu aðgengileg.
Valgerður segir að upphaflega
hugmyndin hafi verið einföld, og
kannski svolítið næv, en þeim fannst
fólk setja sig í of miklar stellingar
þegar ljóð voru annars vegar, ljóða-
bækur voru of dýrar og ljóð yngri
skálda sáust nánast ekki. „Við Kári
höfðum verið að vinna saman að ljóð-
verki og vissum ekki hvað við áttum
að gera við það, það passaði ekki í
tímarit og ekki í hefðbundna útgáfu
þannig að okkur datt í hug að gefa
það út sem einskonar tilraun,“ segir
hún og þar með urðu Meðgönguljóð
til, en útgáfan heitir nú Partus.
Fundur þeirra Kára, Valgerðar og
Sveinbjargar var 2011 og fyrsta bók-
in, Þungir forsetar, kom út árið 2012
og önnur bók til, Herra Hjúkket eft-
ir Ástu Fanneyju Sigurðardóttur,
enda kviknaði strax áhugi annarra
skálda á að fá að vera með. Í kjölfar
Meðgönguljóða urðu síðan til út-
gáfuröð fyrir smásögur sem kallast
Meðgöngumál, og sagt er frá hér til
hliðar, og Meðgöngufræ, sem sinna
fræðitextum.
Valgerður segir að draumur
þeirra hafi verið að auka aðgang
fólks að ljóðum, gera bækurnar að-
gengilegri og ódýrari, en í gegnum
árin hafi komið í ljós að mikilvæg-
asta hlutverk útgáfunnar sé að gefa
skáldum aðgang að bókmenntaheim-
inum. „Við erum að selja bækur á
aðgengilegu verði, en við erum líka
að auðvelda ungu fólki að verða út-
gefin skáld.“
Í gegnum árin hafa ýmsar útgáfur
sinnt ungskáldum og rithöfundum
og oft hafa höfundar tekið sig saman
um að gefa út eigin verk og hver
sýslað með sitt. Valgerður segir að
Partus sé aftur á móti eins og hver
önnur útgáfa, en ekki höfundaforlag,
enda séu þau með ritstjóra sem sam-
þykkja útgáfu eða hafna. „Við bjóð-
um upp á ritstjórn, sem gefur okkur
ákveðna sérstöðu, því það er ótrú-
lega sjaldgæft að ungskáld fái al-
mennilega ritstjórn og ég veit dæmi
um það að fólk sem er að skrifa sína
fyrstu skáldsögu skrái sig í ritlist í
háskólanum bara til að fá ritstjórn,“
segir Valgerður.
Hjá Partus eru tveir ritstjórar,
Kári Tulinius og Kristín Svava Tóm-
asdóttir, sem samþykkja handrit eða
hafna þeim, en þótt Valgerður hafi
tekið þátt í ritstjórninni framan af er
hún svo önnum kafin við útgáfuna að
hún þurfti að hætta því.
„Svo erum við með ritstjóra út um
allan bæ,“ segir Valgerður. „Ég veit
ekki hvernig það gerðist en þekkt-
ustu skáld Íslands eru að ritstýra
fyrir okkur; Linda Vilhjálmsdóttir,
Jón Kalman, Eiríkur Örn Norðdahl,
Sjón, Anton Helgi Jónsson, Her-
mann Pálsson og fleiri. Við höfum
verið ótrúlega heppin með hve
margir hafa viljað hjálpa okkur.“
Meðgönguljóð og
Meðgöngumál
Meðgönguljóð spruttu af löngun ungskálda til að koma ljóðum til almenn-
ings. Sú útgáfa hefur síðan getið af sér tvær útgáfuraðir til, Meðgöngufræ og
Meðgöngumál, en tvö Meðgöngumál eru einmitt væntanleg eftir helgi.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Myndlistar- og skáldkonan Steinunn G. Helga-
dóttir sendi í vikunni frá sér sína fyrstu skáld-
sögu, Raddir úr húsi loftskeytamannsins. Í bók-
inni segir frá ungum manni sem leitar uppi
ellefu hálfsystkini sem öll eru fædd á sama
árinu, ástfælnum bóksala sem gengur aftur,
ólíkum systrum sem reka saman sjoppu í Þing-
holtunum og einmana loftskeytamanni sem er í
sambandi á öldum ljósvakans en skrifar skáld-
verk þess á milli. JPV gefur út.
Úr húsi loftskeytamannsins
Einar Már Guðmundsson hreppti Íslensku bók-
menntaverðlaunin 2015 fyrir Hundadaga fyrir
stuttu. Hundadagar eru skáldsaga, heimilda-
skáldsaga, þar sem heimildir eru notaðar á afar
frjálslegan hátt, en í bókinni styðst Einar við
sjálfsævisögur Jörgens Jörgensens, eða Jörund-
ar hundadagakóngs, og Jóns Steingrímssonar
eldklerks.
Mál og menning gaf bókina út á síðasta ári og
gefur hana aftur út sem kilju.
Hundadagar í kilju
Það vita það væntanlega flestir foreldrar, þótt
öðrum komi það kannski á óvart, að ein mesta
metsölubókasería síðustu ára er bókaröðin
Óvættaför sem Iðnú gefur út.
Höfundar bókanna eru nokkrir en skrifa þó
undir einu nafni sem Adam Blade. Árni Árnason
þýðir allar bækurnar, þar með talið þá nýjustu,
Mánaúlfynjuna Lúnu, sem er í fjórðu seríu
Óvættafarar og tuttugasta og önnur bókin í
heildarröðinni.
Enn Óvættaför
Borgir og eyðimerkur heitir skáldsaga um
Kristmann Guðmundsson eftir Sigurjón Magn-
ússon sem gerist snemma á sjöunda áratug síð-
ustu aldar. Á þeim tíma voru pólitískar deilur
hatrammar, ekki síst í menningarlífinu, og 1964
stóð Kristmann í málaferlum við Thor Vil-
hjálmsson vegna greinar sem Thor skrifaði í
menningartímaritið Birting. Borgir og eyði-
merkur kom upphaflega út 2003, en er nú gefin
út að nýju af Uglu.
Skáldsaga um Kristmann
Breskir bóksalar og -útgefendur
hyggjast veita árleg bóksalaverð-
laun í fyrsta sinn í Lundúnum 9.
maí næstkomandi. Stuttlisti verð-
launanna var kynntur í vikunni, en
alls verða verðlaun veitt í fjórum
flokkum: barnabók ársins, skáld-
saga ársins, fyrsta skáldsaga ársins
og bók ársins almenns eðlis.
Til barnabóka ársins eru til-
nefndar A Boy Called Christmas,
Mog’s Christmas Calamity, Grand-
pa’s Great Escape, The Lie Tree,
The Shepherd’s Crown, My Broth-
er is a Superhero, myndskreytt út-
gáfa Harry Potter and the Philo-
sopher’s Stone og Username: Evie.
Tilnefndar sem skáldsaga ársins
eru A God in Ruins, A Little Life,
After You, Go Set a Watchman,
Grey, The Buried Giant, The Girl
on the Train og The Green Road.
Sem bók ársins almenns eðlis eru
tilnefndar Deliciously Ella, Gut,
How it Works: The Husband, Lean
in 15, Norwegian Wood, Reasons to
Stay Alive, SPQR og The Road to
Little Dribbling.
Matt Haigh er til-
nefndur til bresku
bóksalaverð-
launanna fyrir bæk-
urnar A Boy Called
Christmas og Rea-
sons to Stay Alive.
Bresk bóksalaverðlaun
SÖLUVERÐLAUN
1. Notandi þarf að vera með fulla áskrift og
skráður á mbl.is
2. Það er gert á forsíðu mbl.is, efst í vinstra
horninu (Innskráning · nýskráning)
3. Þú færð Morgunblaðs-appið á App Store og
Play Store
4. Kennitala er skráð sem notandanafn
5. Lykilorð er það sama og á mbl.is
SVONA SKRÁIR ÞÚ ÞIG
Ef þú þarft frekari aðstoð hafðu þá samband
við okkur í síma 569 1100
VIÐBÓT FYRIR ÁSKRIFENDUR
v
Fáðu Moggann þinn hvar sem er og hvenær sem er
Nú fylgir Morgunblaðið í rafrænni útgáfu fyrir spjaldtölvur og snjallsíma
MOGGINN
ÁSKRIFENDUR ATHUGIÐ
*RAFRÆN ÚTGÁFA MORGUNBLAÐSINS, E-MOGGINN, FÆST BÆÐI FYRIR
IPAD OG ANDROID 2.2. OG NÝRRI ÚTGÁFUR.
**GILDIR FYRIR ÞÁ SEM ERU MEÐ FULLA ÁSKRIFT.
*
**